Leita í fréttum mbl.is
Embla

Ég er svoleiðis búin að steingleyma hvernig maður bloggar.

Alveg sama hvað ég rembist eins og rjúpan við staurinn...ég get bara ekki bloggað. Alltaf þegar ég sest niður og ætla að skrifa eitthvað yndisaukandi og hjartahlýjandi tæmist  mitt kvenhöfuð og fingurnir sitja lamaðir á lyklaborðinu. Ætli hjartað í mér sé frosið og hausinn á mér loksins orðinn tómur? Bara galtómur.

Hugleiðslumeistarar myndu eflaust hrósa mér fyrir tómið og segja að ég væri bara í núinu...en svei mér þá ef ég vil bara ekki vera einhversstaðar allt annarsstaðar en í þessu raunveruleika núi sem við okkur blasir.

Var að lesa bloggið mitt frá upphafi og skoða hvernig bloggið hefur breyst eftir tímabilum í lífi konu. Fyrst var allt í álfum, ævintýrum , ljóðum og myndasögum. hugleiðingum um lífið og tilveruna, svo tók við heimflutningurinn og yfirgegnileg ást mín á landi, veðrum vindum, stormum og alíslenskri eftirvæntingu. Sú eftirvænting breyttist svo snögglega í bandóða byltingarhúsmóður sem bloggaði um mótmæli og mótmælti og barði bumbur og vonaðist til að með því yrði hægt að flytja björgin sem standa fyrir því að við getum hafið uppbygginguna á fallega draumórakennda framtíðarsamfélaginu sem ég ber í hjartanu.

Svo komu kosningarnar. framboðin og loforðarunurnar um að nú skyldi sannleikurinn verða sagður og allt sett upp á hið margumtalaða borð sem aldrei hefur fundist.. og enn heldur "ástandið " áfram og versnar bara ef eitthvað er.

Og ég get bara ekki bloggað meir. Er hvort eð er ekki búið að segja allt sem hægt er að segja, hugsa, halda og ímynda sér? Verður maður ekki að fara að gera eitthvað??

Einhverja hugmyndir kæru bloggvinir. Ég hef saknað ykkar mikið mikið....

Lífið fer í hringi og kannski ég fari bara aftur að yrkja ævintýraleg ljóð um hlýju og hjartalag hirðingja. Eða töfrastundir og trúverðugleika heimsins. Eða bara eitthvað...gott.

En samt...þetta myndi flokkast sem bloggfærsla..er það ekki:)

 

13207


Walk your talk!

Það er gott að þingmenn og ráðamenn hvetji þjóðina til góðra verka. Eftir að hafa hlustað á margar ræður frá Alþingi þar sem við fólkið erum hvött til að sýna samstöðu, vera kjarkmikil, skapandi, nota hug og hyggjuvitið ásamt því að taka nú höndum saman, snúa bökum saman og virkja mannauðinn til góðra verka og endurreisnar samfélagsins okkar, láta nú verkin tala og bretta upp ermarnar þá segi ég nú bara..."Hvernig væri nú að þingið og ráðamenn gangi á undan með góðu fordæmi og þingmenn og konur tækju nú höndum saman, sýndu samtöðuna, hugvitið, skapandi hugsun, brettu upp ermarnar og létu nú verkin tala. Að þeir sem senda þessi skilaboð frá sér geri þau að sínum eigin?

Einhversstaðar stendur að eftir höfðinu dansa limirnir og það er lágmark að þetta fólk gangi á undan með góðu fordæmi og hvetji svo þjóðina til að gera eins og þeir gera. Það þýðir lítið að standa í ræðupúlti og tala og mala um hvað við eigum að gera og hvernig við eigum að vera þegar þeir sjálfir eru svo uppteknir af því að gera alveg öfugt. 

Ég hef engar áhyggjur að þessir eiginleikar búi ekki með þjóðinni og að þá sé alla hægt að virkja til góðra verka....en hvatningin og fordæmið þarf að koma frá þeim sem voru kjörnir til slíkra verka og smitast svo þaðan út í samfélagið. 

Ég er stolt af félögum mínum úr Borgarahreyfingunni sem nú eru á þingi og finnst þau bera með sér ferska vinda og mikla von um breytingar á mörgum sviðum. Sérstaklega þeirri afstöðu að skoða hvert mál fyrir sig og fylgja því sem er gott fyrir þjóðarhag hvort sem tillögurnar koma frá stjórn eða stjórnarandstöðu í stað þess að vera í einhliða gallharðri stjórnarandstöðu sama hvað tautar og raular eins og sumir. Vonandi ná þessir vindar að hreyfa við hári á höfðum þeirra sem enn eru rígfastir í úreltum vinnubrögðum sem skila þegar upp er staðið akkúrat engu. Alþingismönnum ber fyrst og fremst að fara eftir eigin samvisku og sannfæringu og ég vona innilega að þeir geri svo og setji hag þjóðar framar hag flokksins eða flokkseigenda. Núna verðum við öll að vera nógu hugrökk til að uppræta spillinguna, samtrygginguna og hagsmunagæsluna og umbylta samfélaginu til góðs fyrir okkur öll.

caraman060500266

 

 

 

 


Myndir segja meira en þúsund orð.......

Móðir Jörð Kona Blá kona rauð Tré Rautt tré blátt

 

 

 Orð dagsins er

Matarskáld.

vatnskona Loftið skúlptúrkona mars satúrnus


Nýir vendir sópa....

...stolt af mínu fólki!

Núna verðum við öll að taka höndum saman og vinda okkur í verkin sem bíða..og þau mega ekki bíða lengur!


mbl.is Lýsa áhyggjum af foringjastjórnmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðarsýn?

Eitt vantar alveg í umræðuna um Ísland og það er hver framtíðarsýnin er. Hvernig sjáið þið framtíðarlandið og af hverju?

Eftir allt sem á undan er gengið...hvernig samfélag viljum við sjá rísa á rústum þess gamla. Hvaða gildi og hvers konar áherslur? Endilega deilið hugsunum ykkar og skoðunum með mér.

Andlegt ævintýri


Samtakamáttur og samkennd.....

kærleiksandi Nú verðum við að bera gæfu til að taka saman höndum öll sem eitt og takast á við öll þau stóru verkefni sem bíða okkar.

Verum bjartsýn og hugrökk... og óhrædd við að gera þær breytingar sem þarf að gera til að hér verði til öflugt lýðræðisríki og samfélag sem hugsar vel um allt sitt fólk. Ég er sannfærð um að við stöndum á merkum tímamótum og nýjir kraftar séu komnir til leiks. Bara það að konur eru nú tæp 43% á alþingi mun breyta áherslunum og við þurfum á visku og kvenvitundinni að halda eftir þessi hörðu stjórnmál sem hafa átt heiminn í árþúsund.

Ég er vongóð og bjartsýn og sé fyrir mér að við..og þá er ég að tala um okkur þjóðina alla... getum með sameiginlegu átaki og jákvæðu viðhorfi fundið magnaðan samtakamátt og umbylt samfélaginu okkar eins og við viljum hafa það.  Nú er þetta ekki um að halda með liðum heldur með okkur öllum.

Hugsum vel um hvort annað næstu mánuði og ár og hjálpumst að við að komast á fætur aftur í heilu lagi.

Blikkum gæfuna og góðvildina og sýnum okkur sjálfum og umheiminum sem nú horfir á okkur með eftirvæntingu úr hverju fólkið í þessu landi er gert.  Krafti, dugnaði, heiðarleika og samtakamætti.


Til þjónustu reiðubúin!

Núna verður að byggja brú á milli alþingis og almennings og tengja þarna á milli með sterkum tryggðarböndum og trausti.

Að fólkið eigi sína fulltrúa sem eru þarna eingöngu í þeim tilgangi að þjóna sem best og mest hagsmunum þjóðar en ekki flokks.

Ég hef verið að velta fyrir mér þessum hugtökum..háttvirtur þingmaður og hæstvirtur forseti alþingis og hef komist að þeirri niðurstöðu að mér hugnast ekki svona titlatog sem setur einhverja á hærra plan en aðra. Fyrir mér eru þingmenn ekkert annað en þjónar almennings og ættu því ekki að vera ávarpaðir sem háttvirtir eða hæstvirtur. Það er eitthvað svo elítulegt og passar engan veginn inn í þann nútíma sem við núna lifum í og sérstaklega ekki eftir allt sem á undan er gengið og virðing fyrir alþingismönnum farið mjög þverrandi. Þetta verður næstum eins og hæðnistitill miðað við það álit sem margir hafa á alþingismönnum núna.

Ég er alltaf að grúska í bókunum og í einni þeirra fann ég eftirfarandi orð sem ég ætla að leyfa ykkur að lesa með mér og íhuga. Þau eru úr Bókinni hans Gunnars Dal, Þriðja árþúsundið.

 

Góðir stjórnendur.

Það er aðeins til ein gerð af mönnum sem geta talist góðir stjórnendur. Það eru þjónar. Menn stjórna vel með því að þjóna fólki. Þessir menn hafa oft trúarlega afstöðu eða hafa ákveðna hugsjón að leiðarljósi. Sumir þeirra hefja jafnvel hvern dag á bæn eða hugleiðslu um að þeir megi láta gott af sér leiða. Það er erfitt að vera stjórnandi. Það er ekki auðvelt að horfast í augu við tíðarandann og svara spurningunni.."Hvað leiðir til góðs og hvað leiðir til ófarnaðar.

Lélegir stjórnendur spyrja aldrei þessarar spurningar og láta sér svarið í léttu rúmi liggja. Þeirra leiðarljós er framinn og persónuleg stærð. Greindum tækifærissinnum vegnar oft vel þó að þeir svíki sitt fólk og skilji það eftir í eymd sinni. Braut raunverulegs stjórnanda er ekki aðeins erfið, hún er líka oft hættuleg. Hann veit það en er hvorki kominn til að vinna eða tapa heldur til að axla ábyrgð.

Auðvitað eiga alþingismenn og konur að vera þjónar almennings og mér myndi alveg hugnast að ávarpið væri á þennan hátt t.d ..Kæru samfélagsþjónar!

En svo að lokum hvet ég ykkur til að kjósa samkvæmt hjarta og innstu sannfæringu ykkar því þannig verður útkoman fyrir þjóðina rétt.

Við verðum á Laugaveginum í dag með heitt á könnunni og það ætla landskunnir tónlistarsnillingar að koma og taka lagið. Kosningavakan okkar verður svo í Iðnó annað kvöld og þangað eru allir hjartanlega velkomnir. Við erum með fiðrildi í maganum fyrir morgundaginn og þá góðu tilfinningu að við höfum nú gert allt sem í okkar valdi stendur til að kynna Borgarahreyfinguna og frambjóðendur okkar fyrir fólkinu og nú er það í ykkar höndum að kjósa það sem ykkur hugnast best.

Eigið góðan og yndislegan dag....ég set inn nokkrar appelsínugular myndir í tilefni dagsins.

200356790-001 Flaming-June-c1895-Print-C10019635 xoqlinc.jpg


Augu heimsins hvíla á okkur núna

Curiosity-Print-C10206227

Við vorum með framboðskynningu á Borgarspítalanum í vikunni og þar var hópur frá London að taka upp efni og fylgjast með því sem hér er að gerast.  Þau voru nýkomin til landsins til að gera heimildamynd um kosningarnar hérna og telja að þetta séu einar mikilvægustu kosningarnar í heiminum i dag þar sem við erum fyrsta landið til að fara í kosningar eftir svona hrikalegt hrun.

Þau tóku við mig viðtal og það var mjög gaman að spjalla við þau. Þau eru líka sérstaklega að skoða hvernig framboð það eru sem spretta upp í svona umhverfi og aðstæðum eins og hér hafa verið síðan í október og hvert stefnan sé tekin. Það eru fjölmargir erlendir fréttamenn staddir hér núna og fylgjast grannt með öllu sem við erum að gera..bæði frambjóðendur sem og kjósendur.

Svo ég hvet ykkur til að vera almennileg, GÓÐ OG SÆT EINS OG VANALEGA....kannski við náum að bæta ímynd okkar fyrir umheiminum sem ég er eiginlega alveg viss um að við gerum, því íslendingar eru upp til hópa heiðarlegt og gott fólk og á hreint ekki skilinn þann stimpill sem hefur verið komið á okkur af örfáum manneskjum sem kunnu ekki fótum sínum forráð og gátu hvergi hamið græðgi sína. 

Það var mikið um að vera á kosningaskrifstofunni okkar í gær og greinilegt að nú þegar Borgarahreyfingin er orðin mjög raunverulegur valmöguleiki með að mölbrjóta hinn illræmda 5% múr að þá er fólk virkilega að skoða það og margir jafnvel að ákveða að kjósa okkur. 

Ég segi nú bara atkvæði greitt Borgarahreyfingunni er LIFANDI atkvæði en autt er dautt.

Þegar fólk spyr mig hvað það eigi að kjósa segi ég alltaf.."Maður á að kjósa frá hjartanu og út frá sinni innstu sannfæringu...þá verður útkoman rétt fyrir samfélagið.

a

Alls ekki  láta glepjast af glansmyndauglýsingum og fagurgala heldur horfa ískalt á verkin og dæma svo.

Og ég hvet þig líka til að gera það kæri bloggari.

austurv_llur.jpg Ekki hafði ég hugmynd um hvað þess vetur bæri í skauti sér þegar ég fór að mæta alltaf á Austurvöll í vetur af því að ég gat hreinlega ekki setið heima hjá mér og ekki mótmælt því sem hrundi yfir okkur og líf okkar allra.

Nú eru 3 dagar til kosninga og ég sit hér og skrifa ræðu sem ég ætla að vera með í sjónvarpinu annað kvöld. Það er óhætt að segja að maður læri eitthvað nýtt á hverjum degi og sé stöðugt að henda sér út fyrir þægindamörkin sín..en það er víst bara gott og hollt  og ekki síst þroskandi að gera það reglulega. Koningabarátta er einmitt kjörin fyrir svona þanþol..Kissing

Eigið góðan dag í rokinu og regninu...og munið að það er heitt á könnunni hjá okkur á Laugaveginum og volg vínarbrauð á bakka og heimurinn er að horfa á okkur öll!

www.borgarahreyfingin.is

xo

 


Þetta er nákvæmlega það sem við höfum fundið.....íslendingar vilja raunverulegar breytingar!

Mér hefur sjaldan fundist forsíða Moggans flottari en í morgun Smile

O listinn með FJÓRA á þing miðað við nýjustu könnun Gallup. Myndi vilja segja margt og mikið en læt nægja að hrópa ferfalt húrra fyrir framboðinu sem var kynnt til sögunnar sem eitt af "vonlausu" framboðunum fyrir nokkrum vikum en er svo sannarlega bjartasta vonin í íslenskum stjórnmálum í dag.

 Og nú má ég ekki vera að því að blogga meira um þessa frábæru frétt því ég þarf að halda morgunverðarframboðsfund núna klukkan 9.00 upp á Höfða.

Það er ekki slæmt að fá svona góðan meðbyr inn í daginn. Það er eiginlega bara alveg æðislegt og hvetur okkur í Borgarahreyfingunni til enn frekari dáða.

www.borgarahreyfingin.is

x-o-.jpg

 

 


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að kjósa með bundið fyrir augun?

apalæti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Á virkilega að bjóða kjósendum upp á þá vanvirðingu að ganga til kosninga án þess að aflétta leyndinni?

Það var leyndin  og blekkingarnar sem komu okkur í þá stöðu sem við erum í núna... Stjórnvöld vissu nákvæmlega hvað í stefndi en kusu að þegja um það og halda  blekkingarleiknum áfram.

Og nú tæpri viku fyrir kosningar er ljóst að leyndin mun áfram hjúpa fyrirætlanir og áform stjórnvalda.

Hver eru skilyrði Alþjóða gjaldeyrissjóðsins?

Hvert er raunverð á raforku til álveranna?

Hvað með bankaleyndina?

Hver er skuldastaða okkar og hvað á almenningur að taka á sig?

Almenningur í landinu á rétt á því að ganga að kjörborði upplýstur og vitandi um hvað atkvæði hans boðar raunverulega. Fjölskyldurnar eiga heimtingu á því að vita hvar þær standa  svo þær geti tekið mikilvægar ákvarðanir um líf sitt og framtíð. Annað er algerlega óásættanlegt.

Ég skora á ríkisstjórn og valdhafa að upplýsa okkur um þetta undir eins..annað er bara ekki boðlegt. Þessi þöggun og leyndarhjúpur sem umlykur allt í þessu samfélagi er ógnvekjandi og það á engin þjóð að láta bjóða sér slíka framkomu. Engin! Í Úkraníu fór fram opin umræða á alþingi og fyrir opnum tjöldum .annig að þjóðin var upplýst um hver skilyrði alþjóða gjaldeyrissjóðsins væru áður en nokkrar ákvarðanir voru teknar.

En hér fer allt fram á bak við luktar dyr og í einhverju leynimakki. En ekki mikið lengur.

Tökum höndum saman og kjósum leyndina burt.

www.xo.is

 

 

 

 

 

 


Næsta síða »

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 17
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 137
  • Frá upphafi: 268637

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 118
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband