Leita í fréttum mbl.is

Ég er appelsínugul

hjól og hús

Um daginn keypti ég mér appelsínugula mussu.

Þegar ég labbaði framhjá búðarglugganum kallaði hún á mig, hvíslaði svo til mín þegar maðurinn minn heyrði ekki og lokkaði mig svo inn til að kaupa sig. Mér finnst ég voða fín í henni.

Í gær gekk ég framhjá öðrum búðarglugga og þar voru litlir appelsínugulir skór. Úr rúskinni og flatbotna með lítilli appelsínugulri flauelislaufu á ristinni. Þeir söguð...hæ við viljum að þú gangir á okkur og takir okkur með þér hvert sem þú ferð. Ég fór ekki inn en lofaði þeim að koma og sækja þá næst þegar ég ætti pening. Þeir skríktu og brostu hvor til annars.

Svo fór ég á markaðinn í dag og keypti kíló af appelsínum. Safaríkum og sætum og ætla að búa mér til appelsínudjús í fyrramálið.

oranges

 

Ég er meira að segja að hugsa um að kaupa appelsínugul sumarblóm og hengja við útidyrnar.

APPELSÍNUGUL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Miðað við þetta held ég að þú verðir ólétt fljótlega. Appelsínugulur litur á víst að hafa áhrif á slíkt, heyrði ég einu sinni. Hvernig líst þér á að láta hana heita Guðríði? Gamalt og gott íslenskt nafn!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.3.2007 kl. 20:26

2 Smámynd: Hugarfluga

Appelsínugulur var "the color" á mínu heimili síðasta sumar ... ásamt lime grænum.  Er að spá í að færa mig yfir í bleikt ... og lime grænt þetta sumarið. Gaman að leika sér að litum

Hugarfluga, 27.3.2007 kl. 20:31

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hljómar fallega, sól í sinni sól í hjarta

sól bara sól.

frá mér

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.3.2007 kl. 20:48

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Frú Guðríð......þetta er ekki í fyrsta skipti se þú telur mig ætla að fara að fjölga mannkyni. Það er ekki á döfinni enda barnabörnin farain að týnast til jarðar og það er mér meira en nóg. Minn appelsínuguli litur er um annrs konar sköpun. Ég ætla að skapa nýja plánetu fyrir okkur appelsínugula fólkið og leyfa hinum sem endilega vilja vera apakettir að búa á þessari.

Lime grænn er líka æði..vantar smá sumarliti í stofuna og svo auðvitað bara að setja nægilega mikið að litríkum blómum i alla vasa.

Það er svo annarlega komið sumar hér...graslyktin og allt blómstrandi og bara hlýja. Appelsínugulur er líka litur orkustöðvar sem sér um að afla lífsorkunnar og svo er hann litur Búddanna og húmanista.

Já mér líst bara vel á að vera APPELSÍNUGUL og drekka appelsínudjús.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.3.2007 kl. 21:05

5 Smámynd: www.zordis.com

Æj hvað þetta er sætt hjá Guðríði .............. gott orkubúst að kíkja inn!  

www.zordis.com, 27.3.2007 kl. 21:54

6 Smámynd: bara Maja...

Sól í hjarta  ferskur appelsínudjús hljómar vel núna...

bara Maja..., 27.3.2007 kl. 22:15

7 Smámynd: Ibba Sig.

Þú ert bara hippi í appelsínugulri mussu Katrín! 

Og ef frú Guðríður reynist sannspá þá vil ég benda þér á að Ingibjörg er agalega lekkert nafn á litla dömu.  

Ibba Sig., 27.3.2007 kl. 22:28

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú verður full af orku í appelsínugulu. Nú vantar þig bara eitthvað blátt með þá verðuru í öllum frumlitunum.

Svava frá Strandbergi , 27.3.2007 kl. 23:19

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Passaðu þig bara að fá ekki appelsínuhúð af þessu öllu.

Appel China er uppruni orðsins eins og þú veist kannski, eða epli frá kína.  Kannski veit þetta á einhver samskipti við Kína?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.3.2007 kl. 23:32

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm og meira afónothæfum fróðleik. Vissirðu að það er ekki minnst á epli í Biblíunni?  Granatepli jú, en það eru ekki epli í eiginlegum skilningi. Eva bauð Adam heldur aldrei epli. Ekki stafkrókur um það í Genesis. Þar er bara talað um ávöxt.  The fruit of the tree.

Þessu geturðu skellt fram í næsta teboði og hlotið aðdáun fyrir.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.3.2007 kl. 23:36

11 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Góðan daginn hér Skemmtilegur pistill og gáfulegar athugasemdir Gott innlegg svona í morgunnsárið að fá svona fræðslu. Er að fara í bæinn á eftir og einhvernveginn yrði ég ekki hissa á að sjá fullt af appelsínugulum lit á ferð minni í dag Hver veit?

Ein pæling út frá því sem Jón Steinar kom með: Getur verið að Adam hafi fengið appelsínu?

Megi dagurinn færa ykkur mörg bros

Guðrún Þorleifs, 28.3.2007 kl. 05:45

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já sáuð þið ekki myndina af eplinu sem ég setti inn með færslunni um þegar ég fór að týna eplin??? Þegar ég skar það svo í sundur var það bara appelsína ínnan í sér!!!!Appelsína í eplagervi. Það er ekki allt sem sýnist í henni veröld.

Og bara svo þið vitið það þá er ekki fræðilegur möguleiki á að ég muni verða þyngri...því eftir að ég byrjaði að lesa pistlana hennar Jónu Ingibjargar bloggvinkonu hefur það bara verið meira en nóg fyrir mig og alveg uppfyllt mínar villtustu drauma og þarfir. Já svona eionföld kona er ég nebbla.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.3.2007 kl. 07:41

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.3.2007 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 310915

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband