Leita í fréttum mbl.is

þroski stráka og manndómsvígslur

 

í vasanum hans litla

Ég er að lesa bók sem heitir Raising boys en hún fjallar um af hverju drengir eru -öðruvísi og hvernig hægt er að hjálpa þeim að verða hamingjusamir og glaðir menn í góðu jafnvægi. Menn sem eru fullir sjálfstrausts og gæsku. Hvernig strákar læra nærgætni  gagnvart kynlífi og samböndum og hvernig skólar þurfa að breytast svo þeir verði góðir staðir fyrir fjörmikla stráka. Testosteronið breytir hegðuninni þegar það eykst svona mikið og heilinn í strákum virðist virka öðruvísi líka.

Þarna er líka talað um manndómsvígsluna sem er víst mjög mikilvæg fyrir unga drengina..og verið lögð mikil áhersla á hana í mörgum menningarsamfélögum þó hún fyrirfinnist ekki í vestrænum samfélögum. Bókin er skrifuð af Steve Biddulph og ég er að lesa mér til þar sem strákurinn minn er einmitt að fara af stað í gegnum umbreytinguna að vera strákur yfir í að vera ungur maður. Skrifa kannski meira þegar ég er búin að lesa meira..ef ég rekst á eitthvað merkilegt sem á erindi. Er bara rétt búin að renna í gegn og kíkja yfir kaflaheiti og svona. Staldra samt við þetta með manndómsvígsluna...hef einhvernveginn á tilfinningunni að hún sé mikilvæg en sé ekki fyrir mér hvernig hún ætti að vera í þessum samfélögum sem við lifum í í dag...?

Þetta eru nefninlega oft erfiðir tímar að fara í gegnum bæði fyrir unglinginn og foreldrana. Ég á tvær dætur sem eru núna orðnar ungar konur, svo eina litla og svo strákinn og verð að viðurkenna að mér finnst ég öruggari að fylgja dætrunum í gegnum svona prósess en stráknum . Örugglega bara vegna eigin reynslu sem kona. En mig langar að gera vel..og skilja betur þennan umbreytingarprósess og geta miðlað því sem hjálpar.  Auðvitað er pabbinn frábær og eyðir góðum tíma með stráknum en mig langar að skilja betur þennan heim strákanna.

Annars er þetta svo fínn strákur og góður..að ég held að hann sigli bara með stæl í gegnum þessi þroskaár.Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég skil hvað þú ert fara. það er sama hjá mér ég á 3 dætur og 1 strák  ég þekki ekki eins mikið um stráka   hann er komin í mútur en stelpurnar þekki ég betur það verðu fróðlegt að fylkjas með Katrín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 29.3.2007 kl. 19:08

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

'Eg ætla að láta ykkur stelpurnar um að finna út úr þessu, fyrst þið hafið ekki fattað það enn. Hehehe.

Eitt get ég sagt ykkur um stráka.  Þeir hafamiklaþörf fyrir að finna út úr þvíhvernig allt virkar og er samsett.  Sýnið því umburðarlyndi. Það þýðir ekki að þykjast eða vera yfirborðskenndur við stráka. Þeir sjá í gegnum holt og hæðir í því tilliti.  Ekki skamma stráka.  Aldrei!

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2007 kl. 19:55

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Heyrðu góði minn..ef þú veist leyndardóminn um strákana áttu auðvitað að segja okkur hann og leggja þar með strákum framtíðar lið sem og mæðrum þeirra....Auðvitað erum við ekkert búnar að finna út úr þessu enn. Verkefnið er rétt að hefjast..og ég vil svo reyna að gera vel. Ég skammast aldrei..nema tvo daga í mánuði en Það er fullur skilingur á þeim óhemjuskap hjá mínum..hehe. Þar er hann allavega búinn að læra smá um hvernig konur geta verið  á fullu tungli!...eða á ákveðnum stað í tíðahringnum sínum.

Svona Jaón Steinar..ef það getur einhver kennt okkur og leyft okkur aðvita smá leyndó ertu bara að gera góðverk darling. Og það hvarflar ekki að mér að skamma þig þarna skömmin þín!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.3.2007 kl. 20:08

4 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Ég á stelpu og strák. Mér finnst það hafa skipt höfuðmáli að sýna þeim elsku og hlýju og ekki síður traust. Svara því sem spurt er um, tala við bæði kynin án allra fordóma. Það er alveg hreinar línur að þau finna það besta út úr lífinu, höfum við gefið þeim það besta.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 29.3.2007 kl. 20:08

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þúhefur nú kannski séð eitthvað um hugi strákaí pistlunum mínum.  Annars er ekki víst að ég hafi verið eins og fólk er flest.  Strákar eru samt afar forvitnir og miklir vísindamenn í sér.  Það er ekki affarasælt að segja þú skilur það,þegar þú verður eldri eða ég veit það ekki.  Leggstu í að finna svörin.  Ég vildi ekki fermast, vegna þess að ég botnaði ekkert í hvað blessaður presturinn var að bulla.  Fyrst hélt ég að ég væri bara svona tregur en í dag sé ég að presturinn vissi jafn mikið og ég og að spurningarnar áttu fullan rétt á sér.  Svo kalla kennarar og foreldrar þessa áráttu uppreisn og berja niður með valdi. 

Strákar þurfa prívat herbergi og algera friðhelgi með sig og sína þanka.  Það er mikið að ske í þessum kolli og hann þarf hvíld og frið inn á milli.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2007 kl. 20:43

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já hvort það veitir ekki innsýn í koll stráks að lesa pistlana þína Jón Steinar. Alveg ómetanleg ferðalögin sem maður fær að fara með þér þar. Svo hafa strákar bara eins og stelpur mismunandi persónuleika og skoðanir...en samt eru strákar alltaf strákar og stelpur stelpur. Það er munur. Sem betur fer..ég vil endilega hafa þennan mun og rosalega sterkt og mikið jafnrétti um leið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.3.2007 kl. 20:52

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Akkúrat, jafnan rétt til ólíkra þarfa.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2007 kl. 21:50

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mundu bara þetta.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2007 kl. 03:06

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég er alveg sammála ! kynin eru að mörgu leiti ólik, það geta stúlkur verið líka, þannig að best er að hlusta á hvern einstakling fyrir sig og gera ráðstafanir út frá hverjum og einum.

ljós héðan

stein 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.3.2007 kl. 05:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband