Leita í fréttum mbl.is

Ekki heppni...heldur Sköpun!!!

Nú liggur mér á hjarta.

love

Var að lesa bloggið hennar Zordisar sem ætti að vera skyldulesning hvern morgun fyrir þreytta og þjakaða íslendinga því það er svo upplyftandi og gefandi að það hreinlega setur man á ský. Einhver sagði þar að Zordis væri svo heppin. 

Að eiga sér dýrindislíf og dýrðardaga sem og alla hina dagana hefur ekkert með heppni að gera. Það hefur með hugarfar og hugsun og tilfinningu að gera. Það hefur með það að gera að vera opin og sannur og mæta lífinu eins og það kemur fyrir á hverri stundu með þann einlæga vilja í hjartanu að sjá það fallega og það góða í aðstæðum. Sama hvað. Að vera með opinn hugann og sjá og skynja alla þessa endalausu fegurð sem felst í þessu ævintýra lega lífi. Og það skapar hver mannvera innra með sér..líf hennar verður ekki svo fyrir einhverja óljósa heppni.10098378

Þarna er að verki innri vitund og sköpun. Yfir þessu búum við öll...alltaf! Það sem við hugsum og finnum innra með okkur leitar að samsvörun í veröldinni og laðar það eða dregur til okkar í samskonar formi.

Orkuformi.

Þess vegna skiptir það svo miklu máli að hafa þá ætlun að sjá og skynja í samræmi við drauminn okkar því það eru töfrarnir, neistarnir sem byrja að búa hann til og gera hann að daglegum raunveruleika okkar. Að hjartað og hugurinn séu í takt.

Hugsandi og sláandi fyrir kærleika og kátínu.

10135038

Með því að byrja að þræða þessar hugmyndir okkar upp á band og safna þeim og gæta þeirra vel daglega. Reyna að ná jafnvæginu smátt og smátt. Að einsetja sér að hugsa meira og betur hvern dag í þá átt að allt er gott og að útkoman verði einungis einstök í lífi okkar, verður orkubreyting í huganum og hjartanu og útsýnið mun bjartara og betra. Og þá fara að verða til fleiri perlur ..hugmyndaperlur og bjartar og litfagrar hugsanir sem safnast á þráðinn okkar og fara að móta lífið og stefnuna.

10135037

Lífið okkar og við förum að draga að okkur fallegri liti og fleira fólk sem vill bara gott. Sem getur horft á það góða og leyft ljósinu sínu að lýsa sjálfum sér og þér. Gefðu sjálfri/sjálfum þér þá gjöf að setja ljós í hugann og hjartað og byrja á þessu augnabliki að muna hver þú raunverulega ert. Skapari og mótandi alls þess sem er í lífi þínu. Hlustaðu þó ekki sé nema í 5 mínútur daglega í þögn á tónlistina sem leikur lífslagið þitt. Það er þarna . Innan í þér. Þú þarft ekkert að gera nema hlusta hljóð/ur og komast í takt. Heyra þinn tón og læra að hreyfa þig með. Fylgja þínu eigin lagi.

200133701-003217338

Hætta að hugsa um hvað öðrum finnst og vera bara það sem þú finnur innra með þér. Niður með grímuna sem við felum okkur á bak við. Eina sem hún gerir er að halda okkur frá hvert öðru. Því við erum öll eins og þráum það sama. Hvort annað og samræmi og jafnvægi. Frelsi. Sannleika. 

 Og það er allt þarna. Og það frábæra er að það hefur ekkert með heppni að gera, lukku eða krukku fulla af silfurpeningum. Þetta hefur bara með þig að gera. Hver þú ert þarna inni og að þú byrjir að muna eftir kraftinum þínum og hvað þig langar mest að gera og af hverju þú ert hér. Og dansir svo lífsdansinn við lagið þitt. í þínum takti. 200523617-001 Alveg þar til þú ákveður að næsta umbreyting sé tímabær.

Eigðu yndislegan dag troðfullan af sköpun og ljósi.

Og trúðu mér.536f4350

Þú hefur þetta allt í hendi þér.

Þessi veröld er þín.

Skapaðu!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef þig og bloggið þitt Katrín mín.  Það lyftir mér takk fyrir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2007 kl. 08:58

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég þakka fyrir þetta Katrín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 30.4.2007 kl. 10:03

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 30.4.2007 kl. 10:38

4 Smámynd: www.zordis.com

Hver er sinnar gæfu smiður .... heppni er ekki það sama og áunnin heppni en engu að síður báðar yndislegar!  Faðmur handa þér vinkona ....

www.zordis.com, 30.4.2007 kl. 12:58

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Takk takk. Það sem ég er að segja er að "heppnin" eins og hún kemur okkur fyrir sjónir á sér alltaf rætur og upptök einhversstaðar. Hún verður til fyrir tilstilli einhvers. Er ekki eitthvað sem dettur allt í einu yfir okkur þegar við eigum síst von á..þó það líti stundum þannig út. á einhverjum stað sköpðuðum við hana..með góðum orðum eða gerðum. Það góða ratar alltaf aftur til heimahaganna..sem og hið verra. Þess vegna er svo mikilvægt  að taka ábyrgð á því sem maður sendir frá sér leynt og ljóst.

Eigið góðan dag og brosið sætt öll sömul. "Bros getur nefninlega dimmu í dagsljós breytt" eins og Pálmi Gunnars myndi syngja það fyrir okkur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 13:20

6 Smámynd: www.zordis.com

Satt satt og svoooo saett ...... 

www.zordis.com, 30.4.2007 kl. 14:51

7 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Fínn pistill.

Steingerður Steinarsdóttir, 30.4.2007 kl. 16:11

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þörf áminning, takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.4.2007 kl. 18:00

9 Smámynd: Hugarfluga

Amen, Katrín Snæhólm. Hugarflugufaðmlag á leiðinni til þín.

Hugarfluga, 30.4.2007 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband