Leita í fréttum mbl.is

Ég finn lukku í þessum laugardegi

Lifðu í lukku en ekki í krukku á laugardegi eins og þessum.

Það er eitthvað gott og lukkulegt við daginn.

Bíð bara spennt að sjá hvað það er..ósýnileg tilhlökkun og eftirvænting.

10007859~Creatures-of-the-Woods-in-Their-Toadstool-Hats-Posters

MAMMAN með ungana sína. Ég er að strolla af stað með Theodóru og Kareni með litlu ömmustelpuna Alice Þórhildi að horfa á Nóa spila fótboltann.  Svo ætla ég að drekka kaffi með vinkonu minni og tala um tilveruna og framtíðina sem bíður okkar.

Hún hér og ég þar.

Drekkum kappúsínó og horfum á stækkandi fjölskyldur okkar.

Einu sinni vorum við bara tvær ungar konur sem fóru sínar leiðir. Núna förum við um í flokkum eða hópum af fólki á öllum aldri með mislitt hár og marglit augu. Fáum okkur meira kaffi og brosum yfir auðlegðinni og látunum.

1566~Chuckwagon-Coffee-Posters

Já við erum ríkar og litríkar ömmur

 Lífið er í lit og við vitum ekkert hvert það liggur

 fyrr en það liggur

 við fætur okkar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Bestu kveðjur frá þungbúnu Íslandi. Gott plan fyrir daginn.

Ingi Geir Hreinsson, 29.9.2007 kl. 08:58

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Eigðu góðan dag

Marta B Helgadóttir, 29.9.2007 kl. 09:57

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

En yndislegt! já, þetta er svo sannarlega alvöru ríkidæmi.

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.9.2007 kl. 10:32

4 identicon

Bestu kveðjur og góða ferð.

Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 11:14

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Berserkjamamma og litlu berserkirnir hennar.  Berserkjasveppir hafa frá aldaöðli verið notaðir til að auka mönnum móð í orrustum og svo er kenningar um að þeir hafi verið notaðir í helgihaldi í frumkristni og tengist saga þeirra "The holy grail".  þ.e. að þessi grail, sé í raun þessi sveppur.  Ég er þó meðmæltur því að fólk lesi innihaldslýsingu og aukaverkanir áður en þeirra er neytt.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.9.2007 kl. 11:24

6 Smámynd: www.zordis.com

Væri til í einn berserk núna .... svífa í gegn um mómentið, vera dugleg.  Ég skil þig svo vel núna, horfa yfir og allt um kring njóta þess að vera í hlutverkinu með mislitum augum og sálarstæðum. 

Ég held þá bara áfram að pakka .....

www.zordis.com, 29.9.2007 kl. 12:42

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Yndæl sem fyrr

Heiða Þórðar, 29.9.2007 kl. 13:53

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Góður pistill. Ég fann einn knallrauðan svepp úti í garði um daginn. Held að það geti varla hafa verið berserkjasveppur þar sem það vantaði á hann doppurnar, nema kannski þær hafi ekki verið komnar á hann.

Svava frá Strandbergi , 29.9.2007 kl. 14:13

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fallegt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.9.2007 kl. 14:50

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2007 kl. 15:13

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Tók um borð upplýsingar um sveppina og borðaði þá ekki..en þessi laugardagur varð laugardagur í krukku fremur en lukku.  Í krukku sér maður í kringum sig og velur eftir útsýninu þaðan.  Kanski ekki lukka en samt enn ein hrukka í andlitið sem gefur í skyn lífsreynslu og upplifun. Verið velkomnar hrukkur mínar..ég geymi ykkur í krukku minninganna og reynslanna mina. Sjást í kringum augun.

Lífið er um að hrökkva eða stökkva.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.9.2007 kl. 21:57

12 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Þetta er sófía fyrir sig, en mætti ég leggja til heilræði sem skúfaður faðir og afi, ekki útskúfaður heldur fjaðurskúfaður, til þess að auka líkur á lukku, væri það að skipta úr kaffi í te, helst grænt te.

Annars var Þórður sjómaður rómuð fyrirmynd í vökvaneyslu, því þegar öldurnar breyttust í vín sigldann í land til þess að ná sér i bland. Það hefur enginn toppað ennþá. En hann er víst dáinn, kallanginn ...

Herbert Guðmundsson, 29.9.2007 kl. 22:17

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hef drukkið grænt te svo lengi sem elstu menn muna...en akppúsínó er samt minn daglegi drykkur með vinum mínum.

Og sparkling water. Spriklandi vantnið gerir sitt líka. En mig langar að vita meira.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 00:02

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Sveppamyndin er svo krúttleg

Jóna Á. Gísladóttir, 30.9.2007 kl. 00:42

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já hún gefur mynd af því sem við gerum..erum bara umkringd okkar.

Öllu því fallegasta og því sem við berjumst fyrir....börnunum okkar ..alltaf!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband