Leita í fréttum mbl.is

Andvana magnvana máttvana..nei bara andvaka.

Ég get ekki sofið því ég sofnaði strax eftir kvöldmat þar sem heilinn í mér var svoooo þreyttur eftir akademískar ritsmíðar sem stóðu frá morgni til kvöldmatar... og vaknaði svo bara klukkan að ganga ellefu og er núna andvaka á vindsæng á miðju stofugólfi.

Theodóra sefur hinumegin við mig í tveggjasæta sófanum og Nói í þriggjasæta sófanum á móti henni og snýr tánum beint í hausinn á pabba sínum sem sefur á annarri vindsæng  með hausinn útvið svaladyrnar. Svona er það að eiga hvergi heima og  eiga gistinguna undir öðrum. Gott samt að þurfa ekki að gista í fjárhúsi í þessu veðri.

Annars er ég bæði með svefngalsa og komin í sannkallað jólaskap.  Jólaskapið held ég að sé tilkomið vegna þess að mannkyn hefur verið kallað til skráningar. Allavega ég og mín fjölskylda og höfum við nú farið á asnanum alla leið frá Hafnarfirði til Reykjavíkur  og skráð okkur til löglegs heimilis,  fengið skráð símanúmer, börnin  skráð í skóla og  Nói skráður í KR. Við eigum enn eftir að skrá okkur fyrir heilsugæslu og fá skrásetningarnúmer á bíl þegar við skilum asnanum. 

Já ef þetta er ekki jólalegt þá veit ég ekki hvað.

 

bed

 

Man það svo lengi 

sem lifað ég fæ

..man ég þá er hátíð var í bæ.Whistling

 

Night night 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús og klemm inn í nóttina María Mey

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 00:52

2 Smámynd: Ingibjörg R Þengilsdóttir

Velkomin heim og gangi ykkur allt í haginn - já núna verða allir að hafa útsýni yfir friðarsúluna - ég er með eitt það besta - sko bæði úr sumarhúsinu og blokkaríbúðinni í Breiðholtinu,  alveg dásamleg uppfinning.  Vona að þér gangi allt í haginn og kannski við heyrum bara í þér á einhverri útvarpsstöðinni eins og í gamla daga.

kv

Ingibjörg Þ 

Ingibjörg R Þengilsdóttir, 31.10.2007 kl. 09:41

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ það verður bara því betra að komast í sitt eigið fjárhús Katrín mín.  Vonandi kemstu þangað sem fyrst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.10.2007 kl. 11:44

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Varstu hvergi spurð um skóstærð eða fatastærð. ? þeir vilja alltaf hafa allt á hreinu. En afhverju fórstu úr Hafnarfirði til að skrá peyjann í KR hefði ekki verið betra bara að hafa það FH eða Hauka.?? Hafðu það annars gott,

Ásdís Sigurðardóttir, 31.10.2007 kl. 15:49

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko Ásdís mín...við erum í gistingu í Hafnarfirði en flytjum Á MORGUN í Vesturbæinn og þess vegna fer strákurinn í KR. Er einmitt á æfingu núna. Annað kvöld munum við sofa fyrstu nóttina og endanlega setja niður hælana í íslenska jörð. þar sem við erum komin með íbúðina og dótið okkar mætir á staðinn á morgun klukkan tíu Jeminn hvað það verður gott að sofa aftur í sínu rúmi með sínum manni. Er algerlega steinhætt við að flytja á elliárum til Ítalíu. Ætla bara að vera hér.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 20:09

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já segi það sama og Ásthildur.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.10.2007 kl. 21:31

7 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Nói er velkominn í KR.

Eru fleiri á leiðinni?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 31.10.2007 kl. 21:48

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 1.11.2007 kl. 00:55

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með þetta og gangi þér vel með ritgerina þín

hafðu fallegan dag í dag.

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.11.2007 kl. 07:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband