Leita í fréttum mbl.is

Vönkuð eftir magnaða vöknun!

This is THE week....zem þýðir þetta er vikan.  Aðalvikan.

Er að ýta sýningunni úr vör sem opnar á laugardaginn..og undirbúa mig undir starfsemi sem ég ætla að taka smá þátt í eftir helgina. Er með einhverjar flugur og risadreka í maganum út af því og finn hvergi sjálfstraustið mitt sem þyrfti eiginlega að fylgja pakkanum. Kannski þess vegna dreymdi mig drauminn í morgun sem glaðvakti mig og setti á fætur með stæl.

Í honum kom til mín örlaganorn og sagðist sjá straum upp úr kolli mínum og miðað við þann straum væri bara furðulegt og fáránlegt að kona hefði ekki meira sjálfstraustið. Setti hún mig svo niður í grasið og sendi í gegnum mig orkustrauma afturábak og áfram sem lýstu upp tilveruna og allt um kring..neistar skutust úr augum og eldingar glimruðu í kollinum. "Og hana nú" sagði hún svo með þjósti þegar hún reisti mig á fætur eftir gjörninginn.."Aldrei aftur svona rugl í þínu rými" Svo skundaði hún af stað út í örlögin og ég vaknaði með strauma og stefnur á hreinu fyrir mína léttfættu leið í lífinu...!!!

Það verður skondið og skemmtilegt að sjá hvað gerist núna..ha?

200508225-001

Orkupunktar og orkubrautir endasendast nú á milli hugmyndaheimanna og sækja sér nesti og nýja skó til að setja á fætur konunnar. Svo hún megi þramma þrengslin og syngja hástöfum um svona strauma og drauma.

252


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Vá!! þvílíkt stuð! það verður aldeilis eftir þér tekið góða mín enda ertu vel að því komin. Velkomin heim og ég hlakka til að sjá sýninguna þína. Kannski hitta á þig líka? Verður ekki sett nákvæm tilkynning hér um opnunartíma og svoleiðis?

Gangi þér allt í haginn eða "tu tu" eins og maður segir 

Ragnhildur Jónsdóttir, 27.11.2007 kl. 10:20

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrðu mig Katrín mín, ég er að uppgötva að ég aktually verð í Reykjavík á laugardaginn næstkomandi.  Og ég ætla að reyna að kíkja við, hvar er sýningin aftur ? Ég var ekki að leggja það á mig, af því að ég er svo langt í burtu.  En nú er það sem sagt ákveðið að ég verð á staðnum.  Ég get ekki sleppt því tækifæri að sjá sýninguna þína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2007 kl. 12:32

3 Smámynd: josira

Vá, segi ég nú bara  Til lukku með að sjálfstrausið er komið í ljós í átthagana tilveru... Ekki skrítið að það hafi týnst í öllum hamaganginum í flutningun og það var kannski ekki svo augljóst að muna í hvað tösku eða kassa það lenti, áður en lagt var í´ann heim...En auðvitað vissi örlaganornin góða það......hún beið bara eftir rétta augnablikinu, að aðstoða þig að finna það og þá á alveg magnaðan hátt...Hefði það ekki týnst, hefðirðu ekki notið þessa

yndislega drauma og strauma... 

josira, 27.11.2007 kl. 15:12

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 15:25

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég vildi að ég væri í Reykjavík svo ég kæmist á sýninguna þína

Gangi þér vel

Huld S. Ringsted, 27.11.2007 kl. 16:12

6 Smámynd: www.zordis.com

Wow hvað ég skil þig!  Gangi þér óendanlega vel, ég er svo spennt hérna megin er með þér í andanum ....  Endilega taka myndir svo ég geti fylgst með þér handan hafsins ...

Orkubúst og kærleiksknús

www.zordis.com, 27.11.2007 kl. 17:26

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.11.2007 kl. 21:21

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Verðskulduð heimsókn frá góðri örlaganorn, gangi þér vel

Marta B Helgadóttir, 27.11.2007 kl. 21:21

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góða lukku, bella.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.11.2007 kl. 22:59

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Stund og staður á laugardaginn? Ekki fer maður að missa af þessu! Gangi þér allt í haginn við "upphengið" og sjálfstraustið. Gott að kúrsinn er kominn áhreint.

Halldór Egill Guðnason, 28.11.2007 kl. 01:36

11 identicon

Viðverukvitt. Fylgist með.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 06:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband