Leita í fréttum mbl.is

Inná milli jóla og nýárs

Hvað geta dillkryddkorn verið löng? Ég var að fá mér smá graflax og sósu með og þegar ég ætlaði að setja uppí mig síðasta bitann sá ég að það var óvenju langt dillkorn í sósunni..það var svo langt að það hreinlega getur ekki verið kryddkorn. það var eiginlega jafnlangt og kóngulóarlöpp og trúið mér....ég veit hvað þær eru langar. Það gerðist nefninlega hér um daginn að ég sat og sprændi eins og saklaus sveitasprund í sveit í mínu fallega baðherbergi og varð þá litið upp í horn og sá eina enska kónguló hanga þar eins og feimið jólaskraut. Hún hlýtur að hafa smyglað sér með yfir hafið með kommóðunni þar sem við geymum húfur og vettlinga og skriðið út og fundið sér alíslenskt horn til að fagna jólum.

Núna er ég nokkuð vissum að þetta langa dill í sósunni hafi verið  ein löppin á henni og get ekki annað en hugsað um hvar restin af henni sé. Vonandi ekki í maganum á mér!!!Pinch Ég get svo svarið það að þegar ég sit grafkyrr þá finn ég litla veru stíga léttan sjöfættan dans í maganum á mér..Oh my, oh my!!  Það væri nú alveg eftir öllu að ég færi að taka upp á því að borða köngló svona á milli hátíðanna.

Ég hef alveg helling að blogga um en ég sit hér í stríði við litla putta Alicar Þórhildar sem elskar að hamra á lyklaborðið með ömmu sinni sem gefst fljótlega upp á að reyna að blogga að einhverju viti og þar fyrir utan þarf ég að slást við restina af familíunni um tölvuna..það skýrir lang bil á milli blogga og alltof fá innlistskvitt hjá bloggvinum mínum. En ég reyni að kíkja við eins oft og ég get.

Verð að fara...er með einhvern furðulegan kitling upp eftir vélindanu í mér og þori ekki fyrir mitt litla líf að opna munninn...hjálp!!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú ert nú meiri skvettan. Dill er náttúrlega planta og ekkert óeðlilegt við að það nái 1-2 cm kornið þegar það er þurrkað og saxað. Oft er það einnig notað ferskt og fæst í helstu verslunum hér. Svona lítur það út.  Annars var líkingin við feimið jólaskraut skemmtileg. Kannski hefur blessuð köngulóin einmitt reynt að breyta röddinni og þóttst vera Jólaskraut, þegar þú gargaðir á hana.

Gleðileg áramót elsku Snætrýna mín. Þér er ekki við bjargandi, svei mér þá.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.12.2007 kl. 12:19

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha verði þér að góðu Katrín mín

Jóna Á. Gísladóttir, 29.12.2007 kl. 12:42

3 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

 Þetta var nú skemtilegt.Góða meltingu.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 29.12.2007 kl. 12:43

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég hef séð svona enskar hefðarköngulær.  Þær eru engin smásmíði með sínar löngu lappir. Lófastórar.   Ætli þær séu ekki með blátt blóð eins og kóngafólkið í heimalandi þeirra?   

Ágúst H Bjarnason, 29.12.2007 kl. 12:53

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er að ímynda mér hvernig væri að hafa konguló innanborðs, munns.  Vildi nú helst ekki prófa það  

Ásdís Sigurðardóttir, 29.12.2007 kl. 14:17

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Feimið jólaskraut! Dýrlegt!

Svava frá Strandbergi , 29.12.2007 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband