Leita í fréttum mbl.is

Síminn aldeilis frábær í að láta mann gera eitthvað annað en að glápa á sjónvarpið.

Halló er etta síminn..vildi bara láta vita að við höfum ekkert sjónvarp og vitum ekkert hvað við eigum að gera..erum búin að kveðast á um allt sem við kunnum.

Síminn..Aha...þar sem það er föstudagur og helgin að koma þá eru tæknimenn í bilunum í helgarfríi og verða viðbúnir á mánudag...en það tekur sko 1 til 3 virka daga að fá viðgerð.

Ok gott og vel...við förum bara með íslenska fyndni og spilum lönguvitleysu þangað til...

Halló..eretta síminn?

Vildi bara ítreka að það er allt enn bilað og kominn mánudagur.

Já...við erum búin að senda ítrekun og þeir munu hringja. Enginn hringir þó kona vakti símann sinn.

Halló eretta síminn..kominn þriðjudagur og enginn hringt...og við erum að verða biluð á þessari lönguvitleysu..ykkar og okkar!!!

Síminn...þú áttir að hringja sjálf og fá samband við tæknimenn í dag FYRIR klukkan 4..en þeir eru samt aldrei við... alltaf úti að laga skiluru??  Já ég veit..ég hringdi en fékk þau svör að það væri búið að ítreka og þeir myndu hringja.

Og ..á morgun erum við búin að skemmta okkur sjálf í meira en 3 virka daga.....munu þeir  þá koma og bjarga okkur frá lönguvitleysunni??

Síminn..því get ég ekki lofað...það er svo löng bið hjá okkur.

 Einmitt..og hvar erum við í röðinni??

 Ekki hugmynd..get ekki séð það hér..þetta er sko hjá tæknideildinni.

Ok..fáum við þá ekki afslátt af samningum við ykkur fyrir alla þá daga sem við erum að borga þjónustu en fáum EKKI?? Ég meina....það hlýtur að dragast af reikningnum okkar allir sá dagar sem við erum ekki að fá NEITT???

Sorry veit ekki..verður að tala við reikningadeildina um það..held samt ekki.

Held við fáum okkur bara venjulegt loftnet.

Það er ekki á neinn leggjandi að fá ekki að horfa á Gurrí og skagamenn vinna stórsigra í Tívíinu og þurfa bara að spila á meðan. Eða kveðast á og segja hvort öðru íslenska fyndni. Erum bara ekki í rétta skapinu.Devil

Meiri langavitleysan sem sum fyrirtæki eru..ha??? 

frh. Miðvikudagur 16. janúar

Jæja kæri sími..núna hringi ég fyrir klukkan 4 eins og þú sagðir mér í gær og helst um morgun til að fá samband við týndu tæknimennina.

Góðan daginn er að athuga með bilunina og þarf að tala við tæknimanninn. Krakkarnir búnir að liggja í flensu og svona og lítið við að vera nema ég kenndi þeim Kleppara. (kleppari er spil sem gerir hvern mann brjálaðan).

Já einmitt..fæ samband við tæknimann.  

Tæknimaðurinn....Ha hva?? Nei það er enginn á leið til þín enda bilunin að öllum líkindum okkar megin. Við erum að reyna að fá tæknimann til að líta á þetta.

Ha hva meinaru..ykkar megin??? Hvað varð um allar þessar ítrekanir til tæknimanna að koma til mín og hringja til mín???  Það eru svörin sem ég hef fengið undanfarna daga og setið við símann til að vera nú örugglega við þegar kallið kemur. Ertu að segja mér að þið hafið ekki aðgengi að tæknimanni sem getur lagað ykkar megin þegar bilar??

Ha jú..þarf bara að senda beiðni í þjónustuborðið og biðja um að það verði litið á þetta.

Ha...???

Meinaru að það hafi enn ekki borist beiðni frá ykkur um viðgerð..ha ha ha???? 

Jú það verður farið í það núna en ég veit því miður ekki hvenær þetta verður komið í lag.

Ég hugsa aldrei illa til fólks og geri það heldur ekki núna. Þetta fólk sem þarf að vinna við svona aðstæður eru fórnarlömb furðulegra viðskiptahátta og fyrirtækjaþjónustu sem kannski einhver kleppari setti saman af gamni sínu svona til að gera hálfa þjóðina ga ga. Hvað veit maður.??  En ég hafði svo samband við reikningadeildina og lét skrá að ég vilji fá afslátt af janúar mánuði í samræmi við hversu lengi þessi bilun mun vara. Ég borga ekki fyrir það sem ég ekki fæ. Það verður svo tekið tillit til þess þegar bilunin er komin í lag hvort og hversu mikinn afslátt ég fæ.

Þessi færsla er í boði Örbylgjuloftnets sem er á leið upp á mitt þak eins fljótt og auðið er. Það er sko þegar rafvirkinn kemur næst í bæinn. Hann er í fjölskyldunni svo við treystum honum.

Verð bara að fá mér eina kókosbollu til að ná mér niður..Whistling  Goshhhh!!

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hahaha ... sama hvar mann ber niður - langavitleysan klikkar ekki ... nú meiri alþjóðlegi andskotinn ;)

gerður rósa gunnarsdóttir, 16.1.2008 kl. 01:26

2 Smámynd: www.zordis.com

Nota tímann vel þegar síminn rænir ykkur! 

Þetta er sko rétti félagsandinn, vona samt að þetta lagist hjá ykkur!!!

www.zordis.com, 16.1.2008 kl. 07:29

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þjónusta þeirra er stundum með ólíkindum. Ég hef margra ára reynslu af svona samskiptum við þá.   Stundum verður maður gjörsamlega gáttaður og orðlaus. Hver vísar á annan og niðursta oftast engin... 

Ég er með örbylgjuloftnet fyrir Digital Ísland og hefur það virkað óaðfinnanlega árum saman.

Ágúst H Bjarnason, 16.1.2008 kl. 09:12

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Já, það ber að varast svona svikafyrirtæki! 

En mig langar að spyrja þig spurninga Katrín Snæhólm, langar þig að vera með í samsýningu á blogginu núna í vor, ásamt mér og Steinu? Þú manst nú eftir framtakinu hjá okkur í fyrra, og lukkaðist það mjög vel.

Nú erum við að leita að fleiri góðum myndlistarfólki með okkur í lið. Ef þú hefur áhuga sendu mér t-póst á gudsteinnb@hotmail.com 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.1.2008 kl. 09:36

5 Smámynd: Guðrún Árnadóttir

Já það getur verið ótrúlega pirrandi þegar tæknin klikkar

..en mér finnst samt ótrúlega vel til fundið að fara að kveðast á og sé fjölskylduna fyrir mér við þá iðju.

Mín yngri dóttir vissi nú ekki einu sinni hvað það að kveðast á þýddi.

Vonandi sjáumst við bráðum,

Kveðja,

Guðrún Árna

Guðrún Árnadóttir, 16.1.2008 kl. 10:31

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, komdu nú að kveðast á kappinn ef þú getur. Það er með ólíkindum hvað þjónusta stórfyrirtækja getur verið ótrúlega léleg.

Steingerður Steinarsdóttir, 16.1.2008 kl. 10:43

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahaha snilldarfrásögn

Jóna Á. Gísladóttir, 16.1.2008 kl. 10:47

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

 góð langavitleysa og ég sem hélt að ég byggi í landi not possible, big problem

Ía Jóhannsdóttir, 16.1.2008 kl. 11:05

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÞÚ ERT ALLT OF ÞOLINMÓР ÉG hefði fyrir löngu verið orðin brjáluð og ræst út 112 til að redda málunum, þoli ekki svona.  Arg arg arg. Crazy 

Ásdís Sigurðardóttir, 16.1.2008 kl. 14:23

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Auðvitað er ég þolinmóð út yfir öll mörk...þegar maður á 4 börn lærir maður Þolinmæði..og það var líklega það sem ég þurfti hvað helst að læra..

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.1.2008 kl. 16:10

11 Smámynd: Sævar Einarsson

Áhugavert Katrín, hvar ertu staðsett á landinu ?

Sævar Einarsson, 16.1.2008 kl. 18:15

12 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ég sé að þið hafið ekki spilað Ólsen ólsen en ég skal kenna ykkur það um leið og ég kem með rafvirkjann í bæinn

Þú færð ÞOLINMÆÐIVERÐLAUNIN þennan mánuðinn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.1.2008 kl. 18:29

13 identicon

Þekki þetta en samt ekki frá Símanum heldur Hive. Búin að vera algjör pína alveg frá því að við fengum netið hjá þeim.

Bryndís R (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 18:44

14 Smámynd: Hugarfluga

Vá, Katrín. Samstarfskona mín lenti í NÁKVÆMLEGA svona atviki hjá símanum. Þetta var eins og copy/paste frá henni. Ótrúlegt metnaðarleysi ... alveg ótrúlegt!! Grrr....

Hugarfluga, 16.1.2008 kl. 18:46

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég er staðsett á höfuðborgarsvæðinu..ekki eins og að þurfi að fara yfir fjöll of firnindi til að komast hingað...Kom svo í ljós í morgun að þeir þurftu ekkert að koma til mín og vitiði hvað???

Þegar ég kom heim núna rétt áðan var sjónvarpið komið inn!!! En ég er gallhörð á því að ég vil fá frádregna af reikningi mánaðarins þessa fimm daga sem við erum búin að vera algerlega ótengd.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.1.2008 kl. 20:23

16 Smámynd: Guðmundur Hrafn Arngrímsson

Hvernig væri bara að njóta sjónvarpsleysisins. Það er ekki til meiri tímaeyðsla en sjónvarpsgláp og ekki þess virði að fara á taugum þó að skjárinn lifni ekki við. Hvernig væri að sinna börnunum, í ró og næði frá glamrinu í heilalausu sjónavrpsefninu. Gríptu daginn, þakkaðu fyrir að útsendingin klikkaði.

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, 16.1.2008 kl. 23:41

17 identicon

Sæl Katrín.

 Það er ekki hægt að gefa betri lýsingu á svona ástandi heldur en þú settir hér á Bloggið.Maður endurupplifði svona ástand nokkra daga vitleysu,en langar ekki í REPEAT. Sæl að sinni.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 06:39

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég brjálaðist hljóðlega við lesturinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.1.2008 kl. 12:45

19 Smámynd: Sandra María Sigurðardóttir

Þetta hittir beint í mark, sennilega hjá flestum. Þetta er svona tilfelli sem maður gleymir oft að tala um því maður er svo feginn þegar svona tekur enda.

Takk fyrir kommentið:) 

Sandra María Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 13:18

20 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Veistu, að maður heyrir margar svona sögur og á nokkrar sjálf(ur) í handraðanum. Að vísu eru þær ekki svona skemmtilega sagðar!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.1.2008 kl. 20:17

21 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Frábær frásögn

Marta B Helgadóttir, 18.1.2008 kl. 01:03

22 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hahaha, nákvæmlega svona þjónusta sem ég kannast við hjá Símanum. Þegar ég flutti fyrir tveimur árum síðan, tók það Símann meira en þrjár vikur að flytja númerið mitt á nýja staðinn - kom svo í ljós að bilunin var allan tímann í kassa hérna rétt fyrir utan húsið!! En þeir hikuðu samt ekki við að rukka mig fyrir "símamanninn" sem kom til að kíkja á tenginguna......! 

Og þegar maður þurfti að hringja til þeirra, þá var það iðulega rödd sem sagði:..... "þú ert númer.... 26 í röðinni..... vinsamlegast bíddu eftir þjónustufulltrúa......."     Það endaði allavega með því á mínu heimili, að við færðum allt okkar yfir til Vodafone. Og erum mjög ánægð með það og alla þá þjónustu sem við fáum þar.

Lilja G. Bolladóttir, 18.1.2008 kl. 04:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband