Leita í fréttum mbl.is

Til þín á Valentínusardaginn..með dúndrandi ást og tikkandi hjarta.

silvanoaudis070300038Rómantískir tónar og ágengir ástarsöngvar hvaðanæva úr heiminum verða fluttir þér af hinum færustu tónlistarmönnum og eingöngu til að minna þig á það hversu heitt ég elska þig. Mér dettur í hug rafmagnaður texti sem hljomar einhvernveginn svona..Ég elska þig svo mikið að ég gæti næstum dáið...bara snillingur sem semur svona..ha? Reyndar líður mér ljómandi vel og er alveg sprellfjörug og full af lífsgleði en læt þetta samt standa svona til að hafa dolldið drama með..enda ástin alltaf troðfull af Drama. Sjáðu bara Rómeó og Júlíu. Það var nú ekki lognmollan i þeirra sambandi.

4

 

Með þessum tónum dugar ekkert minna en sykursæt , já næstum væmin elskendakaka sem bráðnar í munni eins og ástarorð á heitum degi á Ítalíu. Ég mata þig og þú matar mig. Og við horfumst í augu á meðan og hittum kannski ekki alltaf á munn hvors annars, en elskendur með rjóma um allt andlit er líka flott..hef séð svoleiðis í bíómyndum. 

Ein þekktasta ástartjáningin er svo auðvitað rauða rósin.

 

image.phpimage.php

Án hennar er ekkert tindr, engin hjartsláttur eða  máttlaus hné. Rósirnar segja það sem  við getum ekki sagt þegar tilfinningin verður svo yfirþyrmandi og  máttug að það ná ekki nokkur orð yfir hana. Þá sendir maður bara bunka af rósum. Eldrauðum.  Sýnir þetta ekki að ég er tilfinningaríkasta og  rómantískasta kona á norðurhveli jarðar? Sumir segja að ég sé yfirdrifin en ég man aldrei hvað það orð þýðir.

Þetta er allavega mín Valentínusarkveðja til míns heittelskaða ...I love you, I love you I love you ......og af því að það er svo mikið af öllu hér..kökum, blómum og tónum mega bara allir sem hér lesa njóta líka og fá sér eins mikla ást og hamingju og þeir geta í sig látið.

Gleðilegan Valentínusardag.Heart  image.php

72801498 hjartakökur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Valentínusarkveðja til þín líka.

Steingerður Steinarsdóttir, 14.2.2008 kl. 09:47

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott innlegg Katrín mín, og gleðilegan Valentínusardag  Þennan dag fyrir ári síðan fæddists líka hún litla Evíta Cesil, og er því eins árs í dag.   Hjá henni á fæðingarstofunni voru svo tvær Ásthildar, svo hún var umvafin ást og hjörtum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 10:26

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Valentínusar whatever, elska alla alla daga ársins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 10:26

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Kveðja til þín á Valentínusardegi

Ía Jóhannsdóttir, 14.2.2008 kl. 10:29

5 identicon

Fallegur pistill... gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 12:03

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég mundi eftir að kaupa blóm fyrir manninn minn 

Bless í dag kæra katrin.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.2.2008 kl. 14:45

7 Smámynd: www.zordis.com

Ég fór út ad borda í hádeginu og fékk gefins pottablóm, minnir á stjúpur!  Saett af veitingahúsinu .....

Kaerleikskvedjur til zín á rósraudum deginum! 

www.zordis.com, 14.2.2008 kl. 15:29

8 identicon

Ég bíð eftir uppskrift af kjúklingasalatinu sem þú minntist á hér framar

Danadrottning (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 20:50

9 Smámynd: Guðrún Árnadóttir

Guðrún Árnadóttir, 14.2.2008 kl. 21:08

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þegtat er fallegur og hugljúfur pistill

Ágúst H Bjarnason, 14.2.2008 kl. 21:56

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

KRÚTTLEG  færsla hjá þér Katrín mín.  Ég ætla að koma í bæinn um helgina, verð í símasambandi.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband