Leita í fréttum mbl.is

Er ekki merkilegt hvað börnin upplifa??

Í kvöld þegar ég var að syngja fyrir dóttur mína sem verður ellefu ára á morgun 13 mínútur yfir níu annað kvöld..gömlu íslensku lögin okkar, þá sagði hún mér svo margt sniðugt. Og ég fór að velta fyrir mér hvernig börn upplifa hlutina. Í mínum huga eiga erindin sínar myndir og ímyndir en í hennar huga birtast allt aðrar myndir í gegnum sönginn og erindin en hjá mér. Við vorum að rifja upp alls konar lög og texta og bera saman við það sem hún var að syngja með krökkunum í skólanum sínum  í englandi og svo hér á íslandi.

"Mamma" sagði hún ...Í englandi fannst krökkunum stundum asnalegt að syngja með en þegar við syngjum saman hér þá er svo gaman að allir krakkarnir í sjötta bekk, og fimmta bekk, líka fjórða, þriðja, öðrum og fyrsta bekk syngja allir saman og það er bara svo fallegt að heyra það.

Við vorum að syngja .."Sofðu unga ástin mín" sem hún hefur haldið uppá í mörg ár og vill svo oft heyra áður en hún fer að sofa.

Reflet-dore-Print-C10065176

Svo sagði hún..."þegar þú syngur þetta sé ég fyrir mér...að það er lítil stelpa í herbergi liggjandi í gömlu trérúmi og allir veggirnir eru úr viði og hún liggur með lítinn kodda undir höfðinu og mjúkt teppi yfir sér og þú, mamman situr í stól og syngur og út úr munninum hennar kemur gull sem flæðir út um gluggann. Fyrir utan gluggann situr afi Baldur á svartri fötu með rauða skóflu og amma Sirrý á rauðri fötu með gula skóflu og þau eru að byggja sandkastala fyrir mig. Og það er bara svo gott og skemmtilegt..og ég má leika eins og ég vil í kastalanum. Og ég elska alla og allir elska mig. Held hún hafi líka verið uppnumin af því að halda alvöru fjölskylduafmæli í fyrsta skipti í 7 ár....Fjölskyldan skiptir nefninlega miklu máli.

 

Svo þegar við héldum áfram að syngja.."afi minn og amma mín út á Bakka búa.. og Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan gluggann..þá sagði hún.."Já það er líka úr þessum lögum sem ég man þetta...ég er búin að blanda saman öllum fallegum svefnlögunum okkar og þá sé ég alltaf þessa mynd.  

Ég elska samverustundir með börnunum mínum...þau eru svo vitur og falleg og eru alltaf að kenna mér eitthvað mikilvægt.  Algjörir englar krakkarnir okkar allra...við skulum alltaf muna eftir að hlusta vel á þau. Þau eru á stundum svo miklu vitrari og tengdari lífinu en við.

The-Creation-of-Adam-c1510-detail-Print-C10073290 

 

Í gegnum þeirra hreinu sálir kemur Guðdómurinn til jarðar og minnir okkur stóra fólkið á hvað er hvað og hvað skiptir mestu máli.

 Hversu oft gefum við okkur tíma til að skyggnast inn i þeirra hugarheim þegar við erum að gefa þeim eitthvað? Og skynja hvernig þau taka á móti?

Gefa okkur tíma til að skilja hvað þau eru i raun að upplifa og gefa þeim pláss til að deila því?

Maður er svo oft fastur í sínu eigin að maður gleymir að hlusta vel og fallega.  Á hvað aðrir hafa að segja og til málanna að leggja.

Maðurinn er ekki eyland. 

art_collage


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Falleg frásögn af fallegri stúlku.  Innilega til hamingju með morgundaginn. Það var svo gaman að hitta þig og ég er strax farin að hlakka til bloggvinahittings þar sem við getum spjallað meira.  Kær kveðja frá Selfossi.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 23:30

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ásdís mín ...sömueiðis!!! Pabbi þinn er fallegur gamall maður og þú bara geislandi kona!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.2.2008 kl. 23:36

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Yndisleg frásögn!

Ragnhildur Jónsdóttir, 17.2.2008 kl. 23:52

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mikið er þetta skemmtileg frásögn.  Ekki alls fyrir löngu vorum við, ég og dóttir mín einmitt að tala um þessar myndir sem tengjast sögum og ljóðum.  Hún sagði mér að þegar ég söng fyrir hana Bíum, bíum bamba ró áður en hún fór að sofa hefði henni alltaf þótt einhver vera á glugganum en þorði ekki að nefna það við mig því hún vissi hvað mér þótti lagið fallegt. Enda segir í textanum: og úti bíður andlit á glugga.  Ég var sem sagt að hræða barnið á hverju kvöldi en hafði ekki hugmynd um það. 

Ía Jóhannsdóttir, 18.2.2008 kl. 00:00

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fallegt, uuummmmm:-)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.2.2008 kl. 00:23

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég man eftir að syngja fyrir hana Bíum bíum bambaló.... fyrir utan bíður andlit á glugga..... og hún gat ekki sofnað vegna hugmynda um að það væri einhver að horfa inn um gluggann á hana alla nóttina. Best finnst okkur þó að fara með bænina..

Vertu nú yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni

Sitji Guðs englar saman í hring

með eilífri blessun sinni

Amen og Góða nótt og sofðu rótt!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.2.2008 kl. 00:29

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Til hamingju með dótturina og takk fyrir yndislegan pistil

Ágúst H Bjarnason, 18.2.2008 kl. 06:39

8 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með dúlluna þína í gær!  Við vorum með fjölskylduveislu og sungum afmælissönginn nokkrum sinnum og blésum á 13 kerti í tvígang ....

Theodóra verður galdrakona eins og mamma sín

www.zordis.com, 18.2.2008 kl. 09:33

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta lýsir svo fallegu sambandi milli móður og dóttur.  Takk fyrir að gefa mér þetta yndislega kona.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.2.2008 kl. 09:58

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með dúlluna þína fallegur pistil.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.2.2008 kl. 14:59

11 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Til hamingju með dömuna  og takk fyrir afmælisveisluna í gær  

Ef þið bara vissuð hvað það er gott að hafa ykkur hinummegin við lækinn elsku Katrín svo gott að vera búin að fá ykkur heim

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 18.2.2008 kl. 17:44

12 identicon

Börnin eru svo laus við alla spillingu og mengun sem umlykur okkur fullorðna fólkið í hinu daglega lífi.
Þess vegna virka þau oft eins og af öðrum heimi, sem er alveg stórkostlegt fyrir okkur hin að fylgjast með og gea gleymt okkur aðeins í.

Maja Solla (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 17:53

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðríður Haraldsdóttir, 18.2.2008 kl. 18:52

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er fallegt, og fallegt og rétt!

Blessi þig fallega kona

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.2.2008 kl. 23:44

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Nú er kominn valkostur fyrir þá sem vilja vera lausir við auglýsingar á bloggsíðum sínum.  Sjá hér

Marta B Helgadóttir, 19.2.2008 kl. 17:21

16 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

til þín og þinna!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.2.2008 kl. 21:29

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er greinilega skáldkona í dótturinni eins og móðurinni

Jóna Á. Gísladóttir, 21.2.2008 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 310913

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband