Leita í fréttum mbl.is

Athugun 22

sb10065369c-001Hvað dettur þér í hug þegar þú sérð þessa mynd??

Hugmyndir, sögur og ímyndir færast í athugasemdir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Klinkskortur

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.3.2008 kl. 23:17

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Blankheit

Huld S. Ringsted, 7.3.2008 kl. 23:25

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Henni fannst hún verða að brjótast út. Glerveggir umluktu hana á allan hátt. Veggir sem eitt sinn voru gegnsæir og hleyptu inn birtu voru smám saman að taka á sig nýja mynd. Nýtt form. Birtan komst ennþá inn en í minna mæli. Öll sýn var orðin brengluð og óljós. Hún var orðin fangi eigin peningahyggju og nirfilsháttar.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.3.2008 kl. 00:02

4 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Sónarmynd og sparigrís.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 8.3.2008 kl. 00:09

5 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ég sé nú bara ofan á hvirfilinn á einhverjum dauðum vesalingi sem er með gat á höfðinu, á stærð við sultukrukku. Mér sýnist líka í fljótu bragði að einhver hafi nýtt sér gatið til að geyma tóma krukku.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 8.3.2008 kl. 00:15

6 Smámynd: www.zordis.com

Brakandi klakar ... svalandi t.d. grýlukerti í hendi 10 ára krakka, sem er með pakka á leið í afmæli!

www.zordis.com, 8.3.2008 kl. 07:43

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Fyrst sá ég smástirni, en myndin fór síðan að líkjast ísklump með dýri innan í.

Ágúst H Bjarnason, 8.3.2008 kl. 09:34

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Svín að drukkna ! ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.3.2008 kl. 12:21

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ískaldur sparnaður.  Flott svín. Pink  Pink Pink  Pink Pink Pink  Pink Pink  Pink Pink 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 13:18

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sparigrís var það fyrsta sem mér datt í hug.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 14:01

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst þetta vera dýr en hvaða dýr það skal ég ekki segja.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.3.2008 kl. 14:07

12 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sparigrís steyptur í gler.  Myndin tekin um hánótt eins og er hér núna

Ía Jóhannsdóttir, 9.3.2008 kl. 02:29

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Geimfarahjálmur ... sparigrís ...

Guðríður Haraldsdóttir, 10.3.2008 kl. 00:26

14 Smámynd: Ólöf Anna

Nýtt líf.
Upphaf.

Ólöf Anna , 10.3.2008 kl. 02:30

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

  1.                                    Ofvöxtur

Þessi eini fiskur í búrinu hafði vaxið  svo undarlega hratt. Að lokum fyllti hann út í glerbúrið.
En hann hélt áfram að stækka,  ennþá svo undarlega hratt. Vaxtarkrafturinn  svo öflugur að glerið lét undan og trjónan á fiskinum  aflagaði  glerformið.
Það minnkaði sífellt vatnið í búriinu í jöfnu hllutfalli við vöxt fisksins. Vatnið seytlaði frá hringlaga opinu og niður kúluna. með róandi klið eins og lækjarspræna úti í Guðs grænni náttúrunni.
Að lokum var ekkert eftir  í þessu afskræmda búri annað en dauður risavaxinn fiskurinn.

Svava frá Strandbergi , 10.3.2008 kl. 12:50

16 identicon

Baggalútur

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 18:07

17 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Á sögusafni eftir daga Bónus gríssins ....

Hólmgeir Karlsson, 11.3.2008 kl. 23:37

18 Smámynd: Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador

Ja hérna, þetta er tómi sparibaukurinn minn...en vandræðalegt

Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador, 12.3.2008 kl. 07:15

19 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Glergrís - liklega sparibaukur.

Marta B Helgadóttir, 12.3.2008 kl. 09:19

20 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Gamall sparigrís sem einu sinni geymdi í maganum stóra drauma lítillar stúlku einhvers staðar handan við Atlanshafið. Þá var hann svo skínandi fallegur og bar í sjálfum sér óuppfylltar vonir og væntingar. En svo kom að því að stúlkan uppgötvaði raunveruleikann og að hann var búinn að drepa drauminn hennar. Í maganum hennar var lítill vaxandi draumur sem hún vissi ekki hvort yrði martröð eða skínandi fagur draumur sem myndi lifa áfram í dagdraumum hennar. Þess vegna kastaði hún sparigrísnum sínum í hafið því hana sveið að sjá stöðugt það sem einu sinni átti að verða. Hún snerist á hæl og leit aldrei til baka en grísinn svamlaði um úthöfin og leitaði að nýrri stúlku til að setja vonir í magann sinn.

Soffía Valdimarsdóttir, 12.3.2008 kl. 11:04

21 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hjartað mitt, þegar það stoppaði um daginn.

Halldór Egill Guðnason, 12.3.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband