Leita í fréttum mbl.is

Að skora körfu hjá sjálfum sér...

sb10065238i-002Eins og ég er búin að hoppa og skoppa síðan ég kom...og ekki skorað eina einustu körfu hjá sjálfri mér þá held ég að núna sé ég komin yfir í leiknum. Fimm tvö fyrir mér. Hafið þið lent í því að skutla boltanum í átt að körfunni og það kemur einhver illgjarn náungi ...nú eða illgjörn kvensa.... sem færir alltaf körfuna svo þið hittið ekki í mark??? Svoleiðis er ég búin að vera langa lengi...alltaf að tala sjálfa mig inná leikreglur sem henta mér engan veginn.  En í dag hitti ég ..og ekki bara einu sinni heldur nokkrum sinnum. Svo núna þarf ég að sofa og dreyma um bestu hugsanlegu útkomuna sem er í takt við soundið þarna fyrir innan.

Hef það á tilfinningunni að einhvern næstu daga skori ég körfuna sem segir...MARK!!! Svona karfa sem tikkar í öll boxin og lætur mér líða eins og heima hjá mér.  Hvernig getur maður gert eitthvað sem er ekki maður sjálfur?? Girl-on-a-Bridge-Print-C10279309

 Einu sinni var kona sem var bara svona.......kjéddling sem lagði land undir fót og fór að finna fjársjóð sem hún taldi falinn fyrir utan sinn eiginlega dvalarstað.

Hún hitti á ferð sinni alls kyns kynjaverur og furðufugla sem sögðu henni  furðusögur, ævintýri  og ljóð um lífið og þess margbreytilegu myndir....opnuðu læstar dyr og dönsuðu í takt við himintunglin. 

Sendu hana svo heim til sín og sögðu að fjársjóðurinn sem hún væri að leita af væri kannski bara í hennar eigin hjarta.Heart

Kona kíkti þar inn og fann að hún á heima hér. Í sér. Svo hún tók niður  GULA túrista hattinn og lagði leið sína yfir brúna sem brúar bilið milli þess er og verður. Berfætt og óhugnanlega bjartsýn.

Hvað sem það nú er eða verður, bara verður á þessari gulu leið ljóss og friðarsúlu.

Draumur i dós eða lítið leiðarljós.... á lífsins göngu.

Svoleiðis er nú það. Farin í bað!!!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg

Home is where the heart is, The soul's bright guiding star.

Home is where real love is, Where our own dear ones are.

Home means someone waiting To give a welcome smile.

Home means peace and joy and rest And everything worthwhile.

Gaman að sjá þig aftur eftir allan þennan tíma (og Theodóru í fyrsta skiptið!)...mjög stutt en mjög gaman

Kíki svo með mömmu við fyrsta tækifæri

Vilborg, 18.3.2008 kl. 01:21

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er ekki bara fallegt heldur fullt af vísdómi þroskaðrar sálar.  Katrín mín, þú ert gull og gersemi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2008 kl. 08:38

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gott að geta tjáð sig á líkingamáli Katrín mín.  Skil svo vel þetta með Gula hattinn. Fullt af knúsi fyrir þessa færslu. 

Ía Jóhannsdóttir, 18.3.2008 kl. 12:37

4 identicon

Konfekt að koma hér inn...kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 14:34

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Pistlar þínir eru alltaf svo sérstakir Katrín. Fullir af hlýju og speki...

Ágúst H Bjarnason, 18.3.2008 kl. 14:59

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, gull og gersemi eins og Ásthildur segir, ekki spurning.  Talandi um gult, þá eru rauða og bláa tréið komin í ramma og bíða þessa gula, róleg og sæl með lífið á Selfossi  Kisses  Kisses

Ásdís Sigurðardóttir, 18.3.2008 kl. 23:02

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Æ aumingja gula tréð getur ekki fæðst núna þar sem litablekið í prentarann minn fæst ekk á íslandi og dóttirin er að leita af slíku í bretlandi til að koma með heim um páskana....svo ég geti prentað meira.  En það kemur..það kemur!!! Á endanum kemur allt!!Gulur rauður og blár!!

Takk fyrir hlýleg orð og heimsóknirnar krúsilegu bloggvinir. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.3.2008 kl. 23:07

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Er hún berfætt ??? Hélt hún væri í Mary Poppins  

Regnbogans litir koma frá þér

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 18.3.2008 kl. 23:42

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það sem Ásthildur segir

Marta B Helgadóttir, 18.3.2008 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 310925

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband