Leita í fréttum mbl.is

Draugar og skrýmsli í dagsbirtu....

Ég er ekkert að fara að blogga núna því ég þarf að fara að sofa. Eftir langan og flottan dag sem innihélt það að slá garðinn, þrífa teppið frammi á stigapalli, þvo þvott, ganga hringi í vesturbænum með barn í kerru sem segir fagnandi "bóm" í hvert skipti sem það sér blóm og róla í dekkjarólu þar sem óæðri endinn næstum festist...þá er kominn tími að halla sér þó það sé enn dagsbirta úti og klukkan ekkert voðalega margt. En ég vakna klukkan fimm á morgnana og þegar kona er komin á þann aldur að þurfa sína 8 tíma þá þýða engar rökræður við tímann. Hann ræður. Og kona sefur.

_dsc0030

Veit samt ekki hvort ég geti sofnað...er með hugmyndir um verulega draugalegan útvarpsþátt á Útvarpi Sögu á morgun mánudag. Alien Þið verðið bara að hlusta milli eitt og þrjú ef þið viljið vera pínu hrædd svona um miðjan dag.

En ekki segja að ég hafi ekki varað ykkur við!!!

Sunset

Jeminn...dagsbirtan úti blikkar..það er eitthvað dularfullt á seyði!!! Ég er farin uppí og breiði sængina upp fyrir haus. Og dreg tærnar uppundir höku..læt ekki skrýmslin undir rúmi fá tækifæri til að bíta í mínar fínu tær.

Night night....Crying

Annars er ég ekkert sérlega smeyk. Það myndi hjálpa að hafa  svolítið myrkur!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hrikalega spennandi!

Markús frá Djúpalæk, 18.5.2008 kl. 22:08

2 Smámynd: www.zordis.com

Góða nótt englakona!

Eg ætla að stilla mig í takt við þig

www.zordis.com, 18.5.2008 kl. 22:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Spurning hvort Útvarp Saga heyrist á Ísó, ég veit að ég get hlustað í tölvunni, en ég verð úti við.  Þetta er hrikalega spennó. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2008 kl. 22:18

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég býð spennt!

Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 22:24

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mí tú!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 18.5.2008 kl. 22:35

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bíð spennt.  Læt ekki draugaspenning fram hjá mér fara.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.5.2008 kl. 22:39

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hljómar spennandi, en ég næ ekki útvarp Sögu hér, sama hvað ég reyni, ætli það séu húsdraugarnir að skemmta mér Böööööö...

Kveðja inn í bjarta viku Katrín mín

Ía Jóhannsdóttir, 19.5.2008 kl. 09:04

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Við ætlum auðvitað ekkert bara að vera draugaleg um miðjan dag, við ætlum líka að tala um drauma og draumatáknmál. eðli drauma og hvernig hægt er að nota tónlist til að lyfta sér upp. Áhrif tónlistar eru nefninlega alveg mögnuð og um að gera að nota hana til að gera sér lífið léttara. Gestur minn í dag er Ingibjörg Þengilsdóttir. Kona sem veit sínu viti um lífið og tilveruna og hefur frá mörgu merkilegu að segja.

Við verðum í loftinu milli klukkan eitt og þrjú í dag.

Heyrumst!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 10:32

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já og hún Huld S Ringsted blogggvinkona verður í símaviðtali vegna hinnar mögnuðu draugasögu....sem þið getið lesið á blogginu hennar og fær hárin til að rísa.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 10:57

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Katrín klukkan hvað er þátturinn endurspilaður á sunnudögum?

Huld S. Ringsted, 19.5.2008 kl. 15:19

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Á sunnudögum milli klukkan 13.00 og 15.00 eða milli klukkan 14.00 og 16.00. Veit nánar um það er nær dregur helgi.

Takk fyrir viðtalið..þú varst alveg frábær!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 15:56

12 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Æ, ég missti af þér. Kemur þetta ekki á Netið?

Steingerður Steinarsdóttir, 19.5.2008 kl. 16:02

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Endurflutningur klukkan ellefu í kvöld útvarp saga 99.4 og svo aftur á sunnudaginn eftir hádegi kl 13.00 eða 14.00 Á NETINU ER HÆGT AÐ HLUSTA BEINT www.útvarpsaga.is.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.5.2008 kl. 19:11

14 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Missi alltaf af þessu; ætla að reyna á þessari slóð.... Good luck now and forever....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.5.2008 kl. 20:12

15 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Heyrðu, ég bara get ekki náð í neitt beint á þessari síðu ... var reyndar búin að reyna áður en taldi mig hafa misskilið eitthvað! Geturðu leiðbeint?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.5.2008 kl. 20:14

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innlitskvitt á þig duglega kona.  Ég er enn að láta mig hlakka til að fá gula tréið.  Hafðu það gott mín kæra.  Tree 

Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 20:57

17 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Steina á afmæli á morgun (þriðjudag) fædd 20. 05. 1960. Láttu það ganga.

Gunni Palli kokkur.

Gunnar Páll Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband