Leita í fréttum mbl.is

Ótrúleg saga....um það sem eitt konuhjarta getur afrekað!!

Sáuð þið viðtalið við Þórunni Helgadóttur hjá Evu Maríu í kvöld ????

Ég á ekki orð yfir þessari stórfenglegu konu sem hún Þórunn er. Lifir og starfar í Kenýa við erfiðistu  aðstæður sem hægt er að hugsa sér og bjargar þar börnum í hundraðatali. Kona sem fer eftir innri sannfæringu og tilfinningu og með Guðs hjálp eins og hún segir sjálf lyftir grettistökum. Segiði svo eftir að hafa hlustað á sögu hennar og hvernig allt gerðist að það séu til tilviljanir. Saga hennar sýnir það hvernig lífið vinnur með þeim sem taka ákvarðanir og treysta því að það sem þeir þurfa komi til þeirra. Ekkert er ómögulegt. Ekkert!!

Vona að þessi þáttur sé sýndur á netinu..þið sem misstuð af honum bara verið að horfa og sjá með eigin augum hversu fólk er megnugt þegar það fylgir sannfæringu sinni og köllun til góðra verka í lífinu. Ég ætla bara rétt að vona að sem flestir sjái sér fært að styrkja þessi góðu verk sem þarna eru unnin og taki að sér barn hjá ABC hjálparstarfi.  Eva María fær líka þakkir fyrir frábæra þætti.

Þórunn Helgadóttir gangi þér vel og gakktu áfram þína frábæru leið í lífinu.Heart

horpuleikariEl-Vendedor-de-Alcatraces-Print-C1008343773459356Mother-and-Child-detail-from-The-Three-Ages-of-Woman,-c1905-Print-C10136725untitleduhig

Á morgun mánudag ætla tvær sérstakar konur að koma í þáttinn minn Maddama kerling fröken frú á útvarpi Sögu 99.4.

 Steinunn Helga sem hefur vakið athygli fyrir sín fallegu og kærleiksríku skrif á blogginu ætlar að spjalla við mig í gegnum símann og segja okkur frá lífi sínu og starfi í Danmörku og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur verður svo gestur minn í stúdíói og við ætlum að spjalla um hennar merkilegu vinnu, nýja fyrirtækið hennar og ýmislegt fleira skemmtilegt. Allar þessar konur sem koma við sögu í þessu bloggi mínu eiga það sameiginlegt að trúa á það sem þær eru að gera og eru hver um sig  kraftmiklar og hugaðar, og koma draumum sínum í framkvæmd og eru okkur hinum áminning og fyrirmyndir í að láta ekki okkar eftir liggja.

Þær áhyggjur sem ég var að burðast með á mínum herðum hafa nú minnkað svo mikið að þær hafa hreinlega horfið og orðið að engu eftir að ég hlustaði og horfði á Þórunni í kvöld. Nú er ég helst að hugsa um ..Hvar kem ég að mestu gagni í lífinu og fyrir hverja???

10007859~Creatures-of-the-Woods-in-Their-Toadstool-Hats-Posters

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Satt segirðu, Þórunn er hreint út sagt ótrúleg kona. Ég hef fylgst með henni um skeið og sá viðtalsþátt við hana fyrir 1 - 2 árum. Frábært að svona fólk skuli vera á meðal vor.

Ég er voðalega spæld með að geta aldrei hlustað á þáttinn þinn. Ég hefði sko viljað heyra í þeim stöllum báðum, Steinu og Jónu Ingibjörgu. Verður eitthvað hægt að hlusta á þætti Sögu á netinu á næstunni?

Gangi þér vel, ljósa man!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.5.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég veit ekki hvort eða hvenær þeir koma á netið en þátturinn minn er endurfluttur alla sunnudaga klukkan 13.00. Það er hægt að hlusta í beinni á netinu www.útvarpsaga.is.

Þórunn er bara inspiration fyrir okkur hin. Það er sko fullt hægt að gera í þessari veröld og láta mikið gott af sér leiða..bara ef maður vill og er ekki týndur í naflanum á sjálfum sér.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.5.2008 kl. 21:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verð að finna mér tíma til að hlusta, takk fyrir að benda á þetta viðtal Katrín mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2008 kl. 21:53

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þórunn Helgadóttir í Kenía

Flestir láta einhvern tíma hvarfla að sér að bjarga heiminum. Fæstir gera eitthvað í því.

En Þórunn Helgadóttir, sem er gestur Evu Maríu að þessu sinni, gekk skrefi lengra og flutti búferlum til Nairobi í Kenýa, eftir að hafa kynnst götubörnum þar.

Nú er hún gift 5 barna móðir og rekur heimili fyrir rúmlega tvöhundruð börn í borg, þar sem átök hafa verið daglegt brauð og fátæktin er gríðarlega mikil.

Þetta er óvenjuleg saga um Reykjavíkurdömu sem vildi gera eitthvað meira við líf sitt og lifa fyrir annað en eigin ánægju.

Sýnt: Í kvöld 19.40

Endursýnt: Í kvöld 01.20, Á morgun 15.55

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.5.2008 kl. 22:17

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég sá þetta viðtal og varð djúpt snortin...... allveg mögnuð kona ....

Fanney Björg Karlsdóttir, 25.5.2008 kl. 22:40

6 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sá viðtalið.  Maður getur ekki annað en dáðst að svona fólki.

Þorsteinn Sverrisson, 25.5.2008 kl. 22:53

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hlusta á morgun og kíki á þáttinn fljótlega.  Var bissí í kvöld.

Takk fyrir fallegan pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2008 kl. 00:02

8 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég sá einmitt viðtal við hana í kompási fyrir rúmu ári síðan og heillaðist af dugnaði hennar. Alveg frábær kona.

...og takk fyrir síðast! 

Laufey Ólafsdóttir, 26.5.2008 kl. 03:23

9 Smámynd: Marinó G. Njálsson

"Þórunn er af öðrum heimi, send hingað til að hjálpa."  Þannig var henni fyrir langa löngu lýst í mín eyru.  Ég held að þetta sé satt.  Mér finnst alveg einstakt hvað hún hefur fundið sig vel í þessu starfi í Kenía sem hentar henni alveg fullkokmlega.  Ég sá hana aldrei fyrir mér í brauðstritinu hér heima.

Marinó G. Njálsson, 26.5.2008 kl. 11:35

10 Smámynd: Bjarki Tryggvason

Þórunn kom í barnastarfið hjá okkur í minni kirkju að kynna fyrir börnunum ABC og sýna okkur heimildarmyndina sem hún tók fyrir ABC. Hún er alveg frábær og hreint ótrúlegt hvað hún hefur gert þarna!

Takk fyrir þessa færslu vinkona! 

Bjarki Tryggvason, 27.5.2008 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband