Leita í fréttum mbl.is

Abc hjálparstarfið frábært..Þórunn bætir enn við sig börnum í Kenýa en vantar meira fjármagn. Við getum hjálpað.

Tók smá viðtal við Guðrúnu Margréti á útvarpi Sögu 99.4 í dag um starfið þeirra og fékk fréttir af Þórunni en hún fór til Kenýa fyrir viku síðan. Eftir að hafa séð hversu mikið er hægt að gera fyrir þessa peninga sem safnast frá styrktaraðilum hér heima þá langar mig að hvetja fólk til að leggja börnunum og þessu frábæra fólki lið sem starfar af svona mikilli óeigingirni og kærleika´við erfiðar aðstæður.

Þið getið hlustað á Guðrúnu Margréti í kvöld klukkan 22.00 (en þá verður þátturinn endurfluttur) og ekki bara hana heldur tvær frábærar bloggkonur sem blogga með okkur hér á moggablogginu. Það eru þær Steinunn Helga listakona,lífskúnster og kærleikskona í Danmörku og Jóna Ingibjörg frumkvöðull, kynfræðingurl, hjólakona og  hugmyndasmiðjaWink

Núna þarf ég að vaska upp..get ekki beðið eftir að standa við fallega eldhúsgluggann minn sem er nú troðfullur af sólblómum, marglitum glerkertakrúsum og blómstrandi friðarlilju. Það er ekkert meira afslappandi en að vaska upp eftir velheppnaða máltíð. Ég er glöð yfir að geta gefið mínum krökkum að borða og vera ekki í sporum mæðra sem ekki geta það.  þakka svo mikið fyrir hvað við höfum það í rauninni gott. "Það ber að þakka gæfu sína" sagði einhver vitur kona einhverju sinni og ég tek undir með henni.

Takk.Heart

untitledangel restinh

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábært að heyra í Steinu í dag! Góður þáttur hjá þér

Hrönn Sigurðardóttir, 26.5.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: www.zordis.com

Ég aetla ad ná endurflutningi záttarins!

SVo mikill sannleikur med zökkina í hjartanu.  Knús inn í nóttina

www.zordis.com, 26.5.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er búin að vera með barn hjá ABC í mörg ár.

Sara dóttir mín er með verkefni í skólanum sem gengur út á að safna fyrir skóla í Pakistan í samvinnu við ABC.

Ég er með það á hreinu að peningarnir nýtast hvergi betur.

Hlusta kl. 22

Góða nótt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2008 kl. 21:53

4 Smámynd: www.zordis.com

Er að hlusta og er það vel þess virði þótt klukkan hjá mér tifi í 0200 ...

Flottur þáttur og virkilega góðir gestir!

www.zordis.com, 26.5.2008 kl. 23:36

5 Smámynd: Bjarki Tryggvason

Þórunn kom í barnastarfið hjá okkur í minni kirkju að kynna fyrir börnunum ABC og sýna okkur heimildarmyndina sem hún tók fyrir ABC. Hún er alveg frábær og hreint ótrúlegt hvað hún hefur gert þarna!

Takk fyrir þessa færslu vinkona! 

Bjarki Tryggvason, 27.5.2008 kl. 13:23

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig duglega kona

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2008 kl. 00:39

7 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl kæra Katrín, Þórunn er frábær einstaklingur og er að gera ótrúlega góða hluti, en hugsið ykkur að geta verið við hjálparstörf í Afríku á launum.  Ekkert er frábærra í lífinu.

Eigið öll góðan dag.

kkv.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 28.5.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband