Leita í fréttum mbl.is

Stoppistöð

Það er nú einu sinni svo í lífiinu að eitt tekur við af öðru og stundum er lítið stopp á milli lífsins uppákoma. Núna erum við að pakka og undirbúa flutinga fyrir mægðurnar fallegu sem hafa búið hjá okkur sl 10 mánuði, Litla Alice Þórhildur ömmustelpa og mamma hennar hafa fundið sér hreiður sem er bara hér í næata húsi við okkur stórfjölskylduna og við erum öll alsæl með það. Frábært verkefni eftir opnun sýningarinnar um helgina og ég segi bara takk fyrir frábæra mætingu og svakalega gott andrúmsloft

Mig langar a vekja athygli á einu verki sem ég setti upp í Ráðhúsinu og er ekki málverk heldur einhvers konar gjörningur sem ég hef kosið að kalla Stoppistöð. Þar koma við sögu tveir veglegir bekkir frá Reykjavíkur borg og með þeim fylgja 3 sögur. Tilvalið að tylla sér á bekk  og staldra aðeins við í lífsins amstri og hverfa  á braut inn í sagnaheim. þessar sögur eiga það allar sameginlegt að vera óraunverulegar en samt alveg dagsannar og gerðust í raun. Þið veljið ykkur bara spilara og smellið a ykkur heyrnartólum og ýtið á play og hlustið.  Og til að þið hafið það bara enn betra á meðan þið hlustið eru hvít mjúk skinn á bekkjunum sem færa ykkur hlýju og notalegheit.

Njótið vel og ég er farin að kaupa málningarrúllu og hvíta málningu því ég hef ákveðið að gefa nokkrum mublum andlitslyftingu í tilefni komu haustsins og gera  fínt og flott fyrir Herra vetur konung.  Set inn myndir síðar..er svo upptekin núna...má  reyndar líka segja uppnumin yfir þessari bráðskemmtilegu og töfrandi veröld.

480d6e420d04f144_pics1 Jiiii ekki segja mér að þessi mynd sé um það sem ég held að hún sé um. Ég verð að fara að láta athuga í mér sjónina..sá ekki fyrr en eftir á að það má líklega misskilja textann um það að vera uppnuminn þegar maður skoðar þessa mynd í almennilegri stærð..hehe.

 

En þetta er allavega hippaleg apaynja með eyrnalokk að dunda sér við sitt. Hvað sem það nú er.Errm

Muna að setja á "To do" listann minn að fá mér betri gleraugu.

 

p.s Í sambandi við myndina... Ég sá apaynju með flotta eyrnalokka snyrta á sér neglurnar og eintóm bros í kring...en þegar ég var búin að setja inn myndina í réttri stærð kom nú eitthvað annað í ljós. En ég ákvað að láta hana standa.

Hvet ykkur eindregið að koma við á stoppistöðinni...og segja mér hvað þið upplifðuð því það er framhald af þessum gjörningi og hvað hann framkallar. Einhverskonar rannsóknarverkefni. Og skiptir máli fyrir framhaldið. Hvaða máli skiptir að deila reynslu og upplifun með öðrum?

47f3b74348473004_naturesbest


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já kæra katrín, ég er alveg viss um að við þvælumst oftast á sömu víd dunum og á nóttinni erum við  í vísdóminum að læra og læra.

til hamingu með að fá þær svona nálægt, það er svo yndislegt.

knús til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 14:42

2 Smámynd: www.zordis.com

Annríki hjá þér kona!  TAkk fyrir góða stund og yndislegan tíma um helgina.

www.zordis.com, 1.9.2008 kl. 16:53

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Æi vesen að komast ekki á opnunina hjá ykkur skvísur. Algjörlega föst í fjölskyldumálum þessa dagana

Heiða B. Heiðars, 1.9.2008 kl. 20:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Apaynjan er flott, og það er sannarlega forvitnilegt með þennan gjörning þinn, ég vildi að ég væri í borginni og gæti farið og hlustað á dularfullar rökkursögur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.9.2008 kl. 21:08

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég mæli með stoppistöðinni þinni og sögustundinni. Ég hlustaði á sögu sem þú last með þinni rólegu, fallegu raustu, - og vildi að ég hefði haft miklu lengri tíma til þess!  Frábær hugmynd og falleg upplifun. Gaman væri að fá sögurnar þínar á sérlink á síðunni.

Gott er að mæðgurnar fara ekki lengra en í næsta hús.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.9.2008 kl. 21:25

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heiða vinkona sem var með mér á sýningunni gaf sér tíma á stoppustöðinni, henn fannst það ánægjulegt.  Cat 17   Dating  Dog 6  kveðja frá mér og mínum

Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 21:27

7 Smámynd: Heidi Strand

Takk fyrir siðast!

Ég kém aftur - til að fara á stoppistöðinni.

Heidi Strand, 1.9.2008 kl. 23:35

8 Smámynd: Elín Björk

Takk fyrir helgina Katrín, þetta var virkilega gaman . Við Zordís plönum ferð þangað í hádeginu á morgun þriðjudag, sjáumst ef þú verður við .

Elín Björk, 2.9.2008 kl. 00:02

9 identicon

Þetta er nú dálítið skondinn api og þykist sá gamli sjá hvað hann baukar  með vísan til "fyrra lífs" að sjálfsögðu.

Sannarlega flýgurðu í listinni stelpa

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 01:02

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Takk öll fyrir falleg orð og heimsóknir.kæru bloggvinir..þið eruð bæði gefandi og góð

Zordís og Elín ég kemst vonandi í hádeginu. Væri bara frábært að hittast þar..og þið hinar líka ef þið eruð á ferðinni.

Sjáumst!!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.9.2008 kl. 07:44

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Frétti af frábærri sýningu ykkar, leitt að hafa misst af þessu.  Innilega til hamingju með framtakið Katrín mín.

Ía Jóhannsdóttir, 2.9.2008 kl. 08:02

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2008 kl. 10:32

13 Smámynd: www.zordis.com

Er á staðnum núna! 

Var að hlusta á sögurnar í ró og næði á meðan fólk frá ymsum löndum tók púlsinn á sýningunni.

Það vantar sennilega rafhl. í litla creative spilarann ......

www.zordis.com, 2.9.2008 kl. 12:12

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 2.9.2008 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband