Leita í fréttum mbl.is

Táknrænn gjörningur í Lækjargötu. Hefur ekki náð athygli fjölmiðla.

6a00d83451bf6769e201053662f4a7970c-800wi

Hvernig getum við útskýrt þetta fyrir þessum elskum?? Strangtrúaðir vilja klína á þau stórsyndum strax við fæðingu og ríkisvaldið ásamt auðvaldinu er búið að skuldsetja þau um milljónir á milljónir ofan áður en þau eru búin að læra að tala. Sorglegra en tárum taki.

Ég sá þessar myndir á netinu og ákvað að fá þær lánaðar til birtingar á blogginu mínu til að vekja athygli á þessum flotta gjörningi fyrst hann nær ekki athygli fjölmiðlanna. Vona að mér verði fyrirgefið það.

6a00d83451bf6769e20105365aabc6970b-800wi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er full ástæða til að vekja athygli á þessu. Var búin að rekast á myndir af þessu hjá tveimur bloggurum án þess að meira kæmi fram um þetta. Þetta er stingandi en flott.

Félagsgjald þitt í kapítalismanum! Er virkilega einhver tilbúinn til að kaupa þessa handónýtu stefnu svona dýru verði

Rakel Sigurgeirsdóttir, 14.12.2008 kl. 11:36

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 14.12.2008 kl. 12:16

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það er ekki bara félgasgjaldið í kapitalismanum sem ég hef áhyggjur af heldur og það að mörg þessara barna munu flytjast af landi brott með fjölskyldum sínum og kannski aldrei snúa aftur heim.  Hvernig verður hér umhorfs og hvernig getum við haldið landinu gangandi ef fjölskyuldufólkið sér enga aðra leið en eð flýja land með börnin sín?? Eru ráðamenn alveg að hugsa dæmið til enda. Kannski eru þeir að því...hugsa um að koma okkur öllum út á enda. Punktur basta. Allt búið bara.

http://www.aftenposten.no/nyheter/uriks/article2823087.ece

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.12.2008 kl. 13:49

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábært.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.12.2008 kl. 15:22

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sóðaskapur.

Hver ein ljósmynd á veggnum er listaverk og furðulegt að listakona skuli sjá eitthvað jákvætt við sullumbullusóðaskapinn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.12.2008 kl. 21:52

6 Smámynd: Ibba Sig.

Þetta er táknrænt, flott og svo satt. Og það var sagt frá þessu í sjónvarpsfréttum

Ibba Sig., 14.12.2008 kl. 22:16

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er ljótur sannleikur

Sigrún Jónsdóttir, 15.12.2008 kl. 01:04

8 Smámynd: Hinrik Þór Svavarsson

heimir ég elska þig .. sóðaskapurinn er aðeins lengra í áttina að höfninni þar sem verið er að byggja "tónlistarhús"!!!

Hinrik Þór Svavarsson, 15.12.2008 kl. 02:01

9 Smámynd: www.zordis.com

Undarlegt hvað þykir fréttaefni og hvað ekki.

Kær kveðja ...

www.zordis.com, 15.12.2008 kl. 11:48

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Svo birtast núna fréttatilkynningar frá fyrrverandi fréttampönnum þar sem fram kenur að "stórir aðilar úti í bæ" koma í eg fyrir að ákveðnar fréttir séu birtar. Hótuðu Reyni Trustasyni hjá DV að þetta væri spurning um hvort blaðið lifði eða dæi ef hann birti frétt um Sigurjón í Landsbankanum. 

Og Hiemir Þessar fallegu og listrænu myndir af börnunum okkar hæfðu ímyndinni sem við höfðum þegar þær voru settar upp. Verðmiðinn sem nú er kominn á þær vitnar um nöturlega framtíð þeirra og hvetur okkur vonandi enn fremur að standa vörð um þá framtíð með öllum hugsanlegum ráðum. Það eina sóðalega hér er framkoma ráðamanna gagnvart fólkinu í landinu og varðstaða annarra manna og kvenna um þetta ömurlega kerfi sem hér þrífst.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.12.2008 kl. 12:08

11 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Að koma ykkar sjónarmiðum á framfæri hversu góð sem þau eru, á listaverk annarra og eyðileggja þau þar með er og verður sóðaskapur að mínu mati.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.12.2008 kl. 07:09

12 identicon

Ég veit reyndar hvaða myndlistakona gerði þetta og jú, þetta náði athygli fjölmiðla: http://www.visir.is/article/20081214/FRETTIR01/168913849

Ragga (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 09:07

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sannleikanum verður hver sárreiðastur, og sannleikurinn svíður sé hann saurgaður.  Ég þakka þér fyrir að vekja athygli á þessum myndum, þær tala svo sannarlega sínu máli.  Hver ætlar að mótmæla sannleiksgildinu?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2008 kl. 10:25

14 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Sama hvað hver segir þá finnst mér þetta vera afar viðeigandi leið miðað við þær ósanngjörnu fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að velta gjaldþroti nýfrjálshyggjuhlauparanna yfir á fólkið í landinu. Þetta vekur svo sannarlega athygli á þeirri beinu aðför að lífsgæðunum sem hefur verið undirstrikuð skýrt og greinilega í endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi.

Katrín mig langaði til að vekja athygli þína á því að ég svaraði spurningunni þinni um það hvernig mér fannst myndin hér. Vildi bara tryggja að þú misstir ekki af svarinu mínu Biðst afsökunar á því hvað það varð langt

Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.12.2008 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband