Leita í fréttum mbl.is

Foringjadýrkun er úrelt fyrirbrigði í nútíma samfélagi og við höfnum henni algerlega.

Borgarahreyfingin hafnar leiðtogadýrkun

Nýlega efld stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur tekið til starfa og í kjölfarið sent frá sér eftirfarandi tilkynningu.

Borgarahreyfingin hafnar leiðtogastjórnmálum eins og þau hafa birtst hér á landi hvort sem um er að ræða undanfarna mánuði eða áratugi. Þess vegna hefur Borgarahreyfingin ákveðið að skipta ekki með sér verkum skv. hefðbundnum aðferðum í hlutverk formanns, varaformanns og ritara og nota ekki þá titla í starfi sínu.

Um yfirstandandi helgi eru haldnir landsfundir tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins. Almenningur þarf að sæta því að horfa upp á nánast stanslausa umfjöllun á starfsemi þessara flokka í öllum fjölmiðlum þar sem fyrirferð flokksleiðtoga og leiðtogakjörs varpar stórum skugga á þá málefnalega umræðu sem annars ætti að vera í landinu.

Landsfundir sem þessir og sú skefjalausa leiðtogadýrkun sem þeir upphefja er lýðræðinu ekki til framdráttar. Borgarahreyfingin – þjóðin á þing bendir á að það er einmitt leiðtogadýrkun af þessu tagi sem leiddi til þeirrar ömurlegu niðurstöðu að Alþingi varð óstarfhæft. Ríkisstjórn landsins hrökklaðist svo frá þegar vanhæfni þeirra “leiðtoga” sem ríkisstjórnarflokkarnir höfðu á að skipa kom berlega í ljós.

Stjórn Borgarahreyfingarinnar mun koma fram sem heild og meta það í hverju tilviki hver kemur fram sem talsmaður hennar, eftir því hvert tilefnið er. Þess vegna mun Borgarahreyfingin sýna mörg andlit í aðdraganda kosninganna. Í því skyni hefur Borgarhreyfingin skipað sér talsmenn sem munu skipta með sér hinu s.k. “leiðtoga” hlutverki sem gamaldags stjórnmál og fjölmiðlaumfjöllun kallar svo sterkt eftir.

www.xo.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Er það ekki "anarkismi" að hafa enga leiðtoga?

Hilmar Gunnlaugsson, 28.3.2009 kl. 23:59

2 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Nei

Alexander Kristófer Gústafsson, 29.3.2009 kl. 06:34

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hæ Katrín, það er of mikið um skítkast og illindi hjá ykkur þarna í Borgarahreyfingunni. Það er vissulega þörf á nýjum, ferskum stjórnmálaöflum en þið náið ekki máli, því miður. Til hvers ertu að velta vöngum yfir foringjadýrkun? Hún er ekki stunduð á Íslandi og hefur aldrei verið - það var þá helst að vinstri menn á árum áður dýrkuðu félaga Stalín, en sú öld er löngu liðin.

Baldur Hermannsson, 29.3.2009 kl. 08:56

4 Smámynd: Þór Jóhannesson

Sé ekki betur en það sé uppi ákveðin foringjadýrkun í Borgarahreyfingunni á Þránni Bertelssyni - a.m.k. má ekki nefna þann háheilaga mann á nafn undir gagnrýnu ljós að þá rýkur gervi-byltingarliðið upp með upphrópanir og nafnaköll.

Hvar eru svo alvöru byltingarleiðtogarnar annars? Þessir sem töluðu á fjöldafundum og o.sv.frv., þú veist hverja ég er að tala um, Hörð Torfason, Þorvald Gylfason, Einar Már Guðmundsson o.sv.frv. - einhverra hluta vegna eru þeir hvorki í framboði fyrir Bloggarahreyfinguna og sjá sé heldur ekki hag í því að lýsa yfir stuðningi við hana!

Byltingarhreyfing minn-rass!

Þór Jóhannesson, 29.3.2009 kl. 12:20

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það að hafna leiðtogastjórnmálum eins og hafa viðgengist hér undanfarna áratugi þarf ekki að þýða anarkisma...það er heilt litróf þar á milli og það þarf ekki að líta lengra en inn í Laugardalshöll um helgina til að sjá mjög skýrt dæmi um foringjadýrkun og klapplið hans. Þór hvað áttu við?

Ég talaði t.d á útifundi sem og margir aðrir í Borgarahreyfingunni..við höfum greinilega bara trú á annarri leið en sumir aðrir sem þar töluðu. Það er bara allt í lagi með það og þú ættir að nota nú þessa orku þína til að styrkja það framboð sem þú aðhyllist fremur en að vera að agnúast stöðugt út í þá sem vilja nota krafta sína til mikilvægra breytinga.

Og mér finnst það framfaraskref að hreyfing eins og okkar kjósi að hafa ekki formann eða varaformann heldur sterka talsmenn út á við...og tel það algerlega í takt við kröfuna um breytt og betri vinnubrögð sem og aukið lýðræði.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.3.2009 kl. 20:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi gengur ykkur vel í kosningabaráttunni Katrín mín, látið ekki telja úr ykkur kjarkinn.  Það er reynt alla leið við önnur framboð en fjórflokkana. Og svo er okkur sagt aðvið köstum atkvæði okkar á glæ með því að kjósa það sem við viljum helst.   Þannig er nú lýðræðisástin í þessu landi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2009 kl. 10:26

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Skil ekki af hverju menn þurfi leiðtoga í lífinu yfirleitt. Ég vil ekki láta toga mig eitt eða neitt, ég vil ekki að neinn leiðtogi matreiði viðhorf og skoðanir ofan í mig eða segi mér hvað er satt og rétt. Ég er fullfær um það sjálfur.

Finnur Bárðarson, 30.3.2009 kl. 16:18

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

Finnur, ertu ekki í sambúð?

Baldur Hermannsson, 30.3.2009 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband