Leita í fréttum mbl.is

Litill tími..stutt blogg!

Dagarnir þjóta áfram og eru troðfullir af spennandi og krefjandi verkefnum enda bara ein vika til kosninga.  Fyrir þau ykkar sem viljið kynna ykkur stefnu Borgarahreyfingarinnar og kynnast frambjóðendum þá verðum við í Kringlunni daglega fram að kosningum og svo er auðvitað kosningaskrifstofan að Laugavegi 40 opin alla daga og alltaf heitt á könnunni.

Mig er hreinlega farið að dreyma í appelsínugulu og brest stundum í dúndrandi ræðuhöld í bílnum þegar ég er að koma mér á milli staða sjálfri mér til mikillar skelfingar og öðrum vegfarendum eflaust til undrunar..hehe.Kissing

Það gerist svo margt sniðugt á hverjum degi og það væri frábært að blogga um það allt, en eins og ég segi...svo lítill tími til að setjast niður og blogga nema helst eins og núna..seint um kvöld eftir langan dag og svo er að drífa sig af stað í morgunsárið og þess vegna er svefninn svo kær og vel metinn þessar stundirnar.

Kannski að næsta sunnudag hafi ég tíma til að fara yfir liðna daga og vikur...og hver veit hver staða konu verður þá?

Og ég velti fyrir mér fína og flotta planinu mínu sem ég sat við heilan dag að setja saman núna um daginn ...sem bíður nú ofan í skúffu og brosi með sjálfri mér þegar ég rifja upp þessi fleygu orð..

Life is what happens when you are busy making plans! Það var nefninlega akkúrat það sem gerðist hjá mér:)

Hafið það gott kæru bloggvinir og aðrir lesendur...en um leið og ég finn mér aðeins meiri tíma og þar til ég get skrifað almennilegt og langt blogg ætla ég að leggja fyrir ykkur spurningu sem hljóðar svona. "Hvar ætlar þú að setja Ð-ið þitt? 

Þetta er smá leikur og það kemur í ljós í næstu færslu hvað ég meina með þessu.

En auðvitað vona ég að sem flestir setji X-ið sitt við O

x-o-.jpg

 

 

 

 

 

 

 

www.borgarahreyfingin.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sko þig Katrín. loksins mynd. En "sáli" sendir bestu kveðju  

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 01:28

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ðið mitt er bara hérna í athugasemd á blogginu þínu.  X-O Það er málið.  Þjóðin á þing. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.4.2009 kl. 01:41

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Katrín mín ég óska ykkur góðs gengis.  Ég mun styðja mína menn í Frjálslyndum.  En ég óska ykkur svo sannarlega góðs gengis.  Öll frelsisöfl þurfa að verða sterk í vor.  Og litlu flokkarnir þurfa að komast að með sínar áherslur.  Annars lendir allt í sama farinu er ég hrædd um.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2009 kl. 10:32

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Gangi ykkur vel Katrín.  Ef ég kysi þá færi mitt atkvæði til ykkar.  Góðar baráttukveðjur heim.

Ía Jóhannsdóttir, 19.4.2009 kl. 14:21

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2009 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband