Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Húsmóður í vesturbænum rænt af róttækum byltingarsinna.

Ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig. Eins og allir vita sem mig þekkja hef ég ekki áhuga á stjórnmálum og kýs aldrei neinn flokk þar sem ég trúi einlæglega að það sé sama rassgatið undir þeim öllum saman og aðeins eiginhagsmunir og græðgi sem ráði för. Ég hef bara allt aðrar hugmyndir um samfélög og lýðræði en það sem hefur verið iðkað hér á landi of lengi.

En nú er eitthvað undarlegt að gerast. Hvort það tengist undarlegum ljósagangi á himnum undanfarið skal ósagt látið, en húsmóðir er farin að haga sér furðulega og vekja undrun hjá þeim er að henni standa og ekki síst henni sjálfri.  Innra með henni bærir nú á sér gamall byltingarsinni...sem lætur öllum illum látum, hertekur hinn fínlega húsmóðurlíkama og þrammar með hann á mótmæli og borgarafundi um allan bæ og skrifar ódauðlegar ræður í höfuð hennar og plantar þar alls kyns hugmyndum um breytt og bætt þjóðfélag. Annars konar samfélagsgerð . gildi sem halda manngildinu á lofti og situr svo og bloggar í gegnum fima fingur hennar daga og nætur eins og það sé no tomorrow!!!

Jahérna ..öðruvísi mér áður brá.

En ég held að bæði byltingarsinninn og húsmóðirin séu bara búin að fá sig fullsödd af bulli og bræðralögum sem eru bara fyrir fáa útvalda og heimta nú að þó öllu öðru sé frá þeim rænt muni þau aldrei gefa frá sér sjálfsvirðinguna sem er eitt það dýrmætasta sem svona par getur átt.

Já þið getið tekið hús og bíl, peninga og stöður, en sjálfsvirðinguna okkar fáið þið ekki kæru stjórnarhjú.  Ég fer ekki óspriklandi niður með hriplekri þjóðarskútu með ávísun upp á það að börnin mín og barnabörn..þetta vel gerða og fallega fólk mitt... verði múlbundin á galeiðunni næstu áratugina.

Nei...það verður ekki svo svo lengi sem ég anda og hugsa. Þess vegna er ég komin úr gráköflótta hagkaupssloppnum mínum, búin að rífa úr mér rúllurnar og sit hér rjóð í kinnum og rökræði við byltingarsinnann í mér um hvar við komum að sem mestu gagni  þessa dagana. Vð erum sammála um að gamli góði eldhúsvaskurinn verði að sætta sig við einmanaleika og afskiptaleysi..því við ætlum út að breyta, bæta og gera byltingu og  bölva  svo eins og gamlir sjóarar því hvernig farið er með fólkið okkar. 

Við horfum á hvert annað..ég og byltingarsinninn.. og sammælumst um að vanda vel til verka og vera bæði skynsöm og prúð, kjarkmikil og kærleiksrík óg láta engan segja okkur að við eigum ekki erindi.  En gefa samt ekki tommu eftir í sannfæringu okkar um að hér verði að verða til nýtt samfélag..sem er fyrir okkur öll.

Best að hella sér upp á kaffitár og hugsa málin. Það er nefninlega svo gott að gefa sér tíma til að finna hvað manni sjálfum raunverulega finnst og hvað maður er tilbúinn að láta bjóða sér og hvað ekki. Og fara svo og gera eitthvað íði. Annars fer bara sjálfsvirðingin ofan í klósettið með öllu hinu draslinu. Og það bara má ekki gerast.

p.s Gunnar sem stóð fyrir borgarafundinum í Iðnó í gær sagði í viðtali á Bylgjunni í morgun að honum fyndist komin tími til að gefa okkur stelpunum pláss.

Girl-on-a-Bridge-Print-C10279309

Hann sagði eitthvað á þá leið að við  værum svo jarðbundnar, klárar og meðvitaðar.. og það væri tímabært að gefa okkur tækifæri til að láta ljós okkar skína.InLove Mér fannst þetta bæði sætt og satt hjá manninum.

Það má ekki á milli sjá hvor  skín skærar..ég eða ljóssúla Yoko Ono ...sem ég horfi á út um eldhúsgluggann minn. Gott ef ég hef ekki bara vinninginn  Ég er allavega með orku á við þúsund milljarða..ath milljón er ekki lengur tala... vatta jólaperu og samt er enn bara október.

 

 


Sögulegur borgarafundur í Iðnó í kvöld

Var að detta inn úr dyrunum eftir magnað kvöld í Iðnó. Fyrir þá sem vilja fá samantekt og niðurstöðu fundarins og upplýsingar um næstu borgarafundi er mailið borgarafundur@gmail.com og þá munuð þið fá sendar upplýsingar til baka.

Ég þarf aðeins að sofa á því sem ég upplifði í kvöld..en ég er ekki frá því að nú hafi verið brotið blað í sögu þjóðar og ég hef það á tilfinningunni að samkenndin góða sé komin til að vera. Það var kraftur og hiti í mönnum og konum og nú er bara um að gera að beina þessari alíslensku orku í góðan og uppbyggilegan farveg. Það er mikil ólgan og mjög mikilvægt að nú verði vel haldið á málum. Hvet ykkur eindregið til að mæta á næstu borgarafundi því það var virkilega gott að heyra hvað fólki liggur á hjarta og heyra hvernig alþingismenn svöruðu fyrirspurnum fólksins. Enda var líka alveg kominn tími á að við fengjum tækifæri til að tala saman án þess að þurfa að gera það í gegnum fjölmiðla.

Ég hins vegar neita að trúa mínum eigin augum núna þegar ég horfi á 10 fréttir á RÍKISSJÓNVARPINU. sjónvarpi allra landsmanna og sé þessa margumtöluðu þöggun sem er í gangi. Ekki eitt orð um borgarafundinn og það var fullt út úr dyrum. Hvað er eiginlega í gangi??? 

 


Alvöru mótmælandi eða bara ósýnileg venjuleg húsmóðir??

Einn....

..hættu að telja.  Þetta er ég!!!

Ha ..þú aftur??

Já.

Varstu ekki hérna líka sl laugardag?? 

Jú og ég kem aftur og aftur..í úlpu og með lopahúfu enda atvinnumótmælandi.

Allavega er maður víst skilgreindur svo af þeim sem telja fólk fyrir fjölmiðlanna. Þeir segja "sama liðið alls staðar"..hehe Ég hef reyndar aldrei sést á Káraknjúkum, Hellisheiði eða í Keflavíkurgöngunni. Og ekki heldur klæðst úlpu eða lopahúfum en mér skilst að meginþorri þjóðar vilji hvorki vera nefndur sem "úlpa" eða "lopahúfulið" Ég hef hingað til bara mætt í minni svarthvítu tvítkápu og berhöfðuð eins og ósköp venjuleg húsmóðir úr vesturbænum. Það er kannski þess vegna sem talningamennirnir hafa ekki talið fólk eins og mig með síðast. Þeir hafa líklega haldið að "við hin" værum bara að spóka okkur í veðurblíðunni og fá okkur ís.

s_fashion1

En nú er ég búin að fá mér alvöru mótmælendagalla.....úlpu og lopahúfu með alíslensku munstri og mæti galvösk aftur á morgun og vil þá endilega vera talin með þeim þúsundum sem þarna munu mæta og mótmæla þögn ráðamanna og krefjast alvöru lýðræðis. Mikið hlakka ég til..við lifum á ögurstundum og eigum að taka þátt í því að móta hvernig samfélagi við viljum lifa í.  Og láta það skýrt í ljós hvað við viljum og hvað okkur hugnast alls ekki.

Austurvöllur á morgun laugardag klukkan 16.00 og ég bara finn það á mér að þetta verður eitthvað magnað og sögulegt.  Og ég verð brjáluð ef ég verð ekki talin með.....og talningmenn ríkisins verða bara að kunna að telja upp í meir en 500. Við húsmæður gerum bara þá kröfu. Takk fyrir!!!

 

 


Jæja þá byrjar hið íslenska uppeldi fyrir þræla framtíðarinnar.....

 ..hugsaði ég áðan þegar krakkarnir störðu óttaslegin á mig og héldu fast utan um hvort annað.

Ég færði þeim nefninlega þær fréttir að við værum að fara í sviðahausa og soðna lifrarpylsu hjá ömmu.

"En við borðum ekki svona brennda lambahausa" snökktu þau og leituðu í ákafa eftir pizzutilboði á ískápsshurðinni. Ég horfði kalt á þau og sagði svo " Þið hafið ekkert val greyin mín...þetta er matseðillinn næstu áratugina. Komiði svo hér til mömmu og fáið  stórt knús.....þá verður allt gottHeart

 


Hverjum treystir þú til að halda vörð um landið okkar..hvernig fólki erum við að leita að??

Jæja þá er ég komin aftur heim og uppí sófa og undir sæng þar sem mér er kalt og líður eins og ég sé að fá flensu. Með þungan haus og roða í kinnum. Veit samt ekki hvort það er eftir fréttalestur og pólitíska gjörninga eða bara ósköp venjuleg flensueinkenni sem valda roðanum í kinnunum...kannski bara innibyrgð gremja yfir þessu öllu saman

. Ég má samt til með að segja ykkur frá dýrðardeginum sem heimsótti mig í gær...Við hjónakorn brugðum okkur yfir lækinn og sóttum messu í Fríkirkjunni þar sem Páll Óskar predikaði. Mikið hvað það var skemmtilegt. Kirkjan var troðfull af fólki sem var að flýja hinn svellkalda íslenska raunveruleika um stund og kannski sumir að leita sér ljóss og stuðnings í stormviðrinu sem geysar um landið okkar andlega og líkamlega þessar vikurnar. Svo getur vel verið að heitar vöfflur með rjóma og funheitur kaffisopi í safnaðarheimilinu hafi líka trekkt að.

En hann Palli átti stund og stað í Fríkirkjunni í gær. Predikunin hans var ótrúlega upplyftandi, einlæg og hreinskilin. Allt atriði sem þjóð vor þarf á að halda þessa dagana og eins og það væri ekki nóg söng hann við Hörpu-undirleik strax á eftir og kórónaði þar með þessa stórskemmtilegu messu. Ég get svo svarið það að ég sá næstum glytta í skínandi geislabaug yfir höfði hans en það getur líka bara hafa verið hans eigin fína og flotta útgeislun.Halo 

487798

Mér datt í hug að setja á laggirnar smá leik hér á blogginu og leyfa ykkur kæru bloggvinir að tilnefna 10 manns í svokallaða íslenska bráðaþjóðstjórn sem þið mynduð treysta til að leiða ísland til betri vegar. Svona fólk sem er traustsins vert og hefur sýnt með verkum sínum og framkomu að því væri treystandi fyrir þessu fjöreggi okkar.  Bara svona rétt til að skerpa á því hvers konar fólki við erum að leita að. Hvaða eiginleika þarf það fólk að hafa og hvað gerir það traustsins vert. Það er okkur öllum hollt að skerpa skoðun okkar á því hvað við viljum og hvers vegna. Þetta mega líka þess vegna vera eðalbloggarar sem hafa eitthvað verðugt fram að færa að ykkar mati. Ég er sannfærð um að það leynast margar hvunndaghetjurnar hér á meðal okkar sem gætu lagt hönd á plóg..hver með sínum einstaka hætti..sammála???

Mér dettur t.d strax í hug Lára Hanna sem er einstaklega skipulögð og skýr kona með mikla réttlætiskennd.  Björk Guðmundsdóttur myndi ég líka vilja sjá þarna sem og Einar rithöfund Kárason Svo ætla ég að hugsa mig aðeins um og renna yfir bloggið meðan ég lista upp fleiri frábærar manneskjur sem ég myndi treysta.

Munið það líka að pólitíkusar framtíðarinnar eru kannski eitthvað allt annað í dag....það fæðist enginn sem slíkur en okkur er það hollt að skoða hvernig fólk við viljum hafa í framtíðarpólitíkinni okkar... ef við værum að kjósa menn og málefni hvaða menn/konur yrðu þar efst á lista ?

Sjáumst!!!

 


...úpps..verð of sein!!!

ætlaði að setja inn færslu um hvað ég gerði æðislegt í gær en þá varð mér litið á klukkuna og sá að hún er 08.45 og mér er ekki til setunnar boðið.

Bæ. 


Bjartsýnisenglar. trommusláttur og frumkraftar þjóðar.

Ég hef ekkert bloggað svo lengi að fólk er farið að hringja í mig til að athuga hvort það sé ekki í lagi með mig. Auðvitað er allt í fína með mig og mína. Við erum að æfa kreppusund og borða sviðahausa á milli þess sem við endurmetum fréttir og atburði líðandi stundar. Það er alveg ágætt að nota svona havarí til að endurmeta sín eigin gildi og hugarfar og hvað skiptir mestu máli í þessu jarðarlífi á plánetu Jörð.

3 goddesses

Fyrir mína parta tel ég að það sé tími til kominn á bylltingu hjá þessari þjóð..hugarfarsbyltingu sem umbreytir hegðun og hugsun íslendingsins og sjálfsmyndinni frá því að vera þræll yfir í að vera þegn. Fólk sem stendur upp fyrir rétti sínum og krefst heiðarlegra vinnubragða í samfélagi sem byggir á raunverulegum manngildum en ekki græðgi og eiginhagsmunasemi fárra.

Fólk sem notar réttláta reiði sína sem hinn besta  sóp og feykir burtu hugarfari og vinnubrögðum sem eiga ekki lengur samleið með þessari þjóð. Það er ekkert að því að þora að feykja forkólfum sem kunna ekki að skammast sín né líta í eigin barm eitthvað út í buskann svo þeir séu ekki að þvælast fyrir fólki sem veit hvað það vill fyrir sig og sína. Réttlæti og samkennd, heiðarleika og sannleika, vináttu og væntumþykju. Traust og trú á hið góða.images

Þessi  eyja okkar  sem nú stendur af sér stormviðri heimsins hefur alla burði til að bera til að verða ein albesta eyjudúlla veraldar til að búa á.

Með öllum þeim náttúrugæðum og gjöfum landsins, orkunnar og kraftsins sem býr bæði í landi og fólkinu okkar..íslendingum sem láta ekki bugast heldur setja undir sig hausinn og ganga geng stormum og fárviðrum. Það er ekki eins og við höfum ekki reynsluna af því að takast á við óblíðu og nátturuöfl. Núna eigum við að standa saman og sýna hvað í okkur býr. En ekki með því einu að sitja heima og sjóða slátur og spila við afskiptu börnin okkar eins og stjórnvöld vilja meina...ég held að allur þorri almennings hugsi nefninlega vel um börn og buru og hafi alls ekki gleymt sér í darraðadansi gullkálfanna...nei við eigum að standa saman gegn máttlausum og vit-lausum stjórnarherrum, gegn fólkinu sem taldi sig skörinni hærra sett en almúginn og vílaði ekki fyrir sér að knésetja þjóð fyrir þýfi.0064-0511-0515-5809_SM

Við eigum að standa upprétt fyrir þeim gildum sem við trúum á..manngildinu og að við erum öll jöfn á þessari eyju okkar og getum alveg lifað hér sátt og við allsnægtir.  Öll.

Það gerum við með breyttu hugarfari og heilbrigðari hegðun og samfélagslegri sýn á að við erum bara ein stór fjölskylda og eigum að vinna að öllum málum með þá hugsun að leiðarljósi.  Ég tek til í mér og þú í þér og hver tekur ábyrgð á sínu. Við eigum svo einstaklega mikið af góðu og vel gerðu fólki sem vill þessari þjóð svo vel....hvað erum við að hugsa að hafa svona tréhesta á tækniöld sem forsvarsmenn okkar???

Tréhesta sem trúa bara á sinn hag og hentisemi í stjórnun...eða eigum við að segja algjöru stjórnleysi??

Uss uss....við eigum svo miklu betra skilið og ég segi það og skrifa....Okkar tími er kominn. Notum tækifærið og tökum valdið okkar og kraftinn okkar til baka. Við erum mun betur sett með hann í eigin höndum og hjarta.

Svo er örugglega ferlega hollt og gott fyrir sálatetrið að mæta á Ingólfstorg í dag  klukkan 17.00 með pott og sleif og tromma í sig frumtaktinn og losa sig um leið við streytu og súran svip. Finna hinn íslenska eldhugakraft,,tromm tromm, tromm og þramma svo af stað inn í nýtt ísland sem ber nafn með rentu. Nýtt hugarfar og Ný sjálfsmynd. Kraftur og Þor...ekkert hor eða slef takk!!

Bara magnað segi ég ..já og eitt enn að lokum. Páll Óskar bjarstsýnisengill messar í Fríkirkjunni á Sunnudaginn og leikur svo tónlist með Monicu hörpuleikara. Það er örugglega sálarupplyftandi að fara og hlusta á þau. Maður á að velja það sem gerir manni gott og muna að elska sjálfan sig af öllu hjarta og svo alla hina líka. Og fyrirgefa þeim sem höfðu ekkert vit á því sem þeir gerðu....gefa þeim iðrunarfrí og far til Köben.... og velja svo fólk sem hefur hausinn og hjartað á réttum stað fyrir okkur og komandi tímana.            Elska ykkur öll og alls ekki gefast upp ...trommum saman í dag og dönsum bjartsýnisdansinn í miðbænum!!!M82~Dance-Alfred-Souza-PostersSinging-Butler-Print-C10292053silvanoaudis070300038

200524492-001 Banner%20Dancing%20GoddessesBA037


Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband