Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Bara einn dropi af bjartsýni breytir öllu.

14Jæja er ekki allt bara frábært....sumarið komið og mér að batna kvefið og á leið í vinnuna. Var að spá í að fara í flotta rauðrósótta sixtýs kjólnum mínum í vinnuna en sýnist á fuglunum í garðinum að þeim sé kalt. Kannski að hlýjar gammosíur og litríkur trefill geri betra gagn fyrir konu eins og mig í dag.

  Verðbólga, kuldabólga, skuldabólga og hálsbólga belgir út landann og nú veitir ekkert af bjartsýni og VON um betri tíð.

Sendi ykkur einn dúndurdropa af öllu góðu og óðu svo dagurinn og framtíðin megi fá yfir sig væna skvettu af góðum hugsunum.  Þínum og mínum.  Og munið það breytir öllu. Hvernig maður hugsar og sér út úr augum sínum og hjarta.

Gleðilegan dag öll sömul.Heart

 


Til umhugsunar....

Seven social sins: 

  • Politics without Principle

  • Wealth Without Work

  • Pleasure Without Conscience

  • Knowledge without Character

  • Commerce without Morality

  • Science without Humanity

  • Worship without Sacrifice

 Þetta er tilvitnun í Ghandi.


Change the world or go home....

480e1b28ae041001....ég sé að sumir ráðamenn eru komnir aftur heim á skerið. Spurning hvort þeir hafi áttað sig á hvar þeirra er mest þörf?


Matseðill dagsins..

Steiktur fiskur og franskar..krakkar með flensu og 40 stiga hita, hor og gubbupest, allt í drasli og dass af bjartsýni með hækkandi sól.   Á fimmtudag kemur sumarið. Bara tveir dagar þangað til. Syngjum saman sumarsöngva....Whistling

Daphne-Print-C10212470

 


Maddama kerling fröken frú á Listsýningum, útburði Moggans og Gyðju og galdrasýningu...allt á sama deginum.

Var að detta inn úr dyrunum eftir að hafa eytt deginum á útskriftarsýningu Listaháskóla íslands. Ég er alveg heilluð. Það var svo margt að skoða, sjá og upplifa en líklega ágætt að fara aftur þegar það er færra fólk en auðvitað var troðið út úr dyrum og mikil stemming í loftinu. Skapandi, töfrandi andrúmsloft og skrautlegt fólk í stíl við verkin sem þarna voru sýnd.

Ég er auðvitað alltaf í vinnunni og fann þarna tvo unga listamenn sem ætla að koma í þáttinn hjá mér á mánudag í næstu viku. Þau eru bæði mjög skemmtilega þenkjandi og með flottar hugmyndir og skoðanir sem ég held að hlustendur hefðu bæði gagn og gaman af að heyra um. Vitiði það að eftir því sem ég sé meira af unga fólkinu okkar því vonbetri verð ég um framtíðina. Þessi kynslóð er meðvituð, hugmyndarík og skapandi og þorir að fara sínar eigin leiðir og það var einstaklega upplyftandi að eiga samræður við þetta unga fólk í dag.

Tré rautttré bláttTré Gult

Já og meðan ég man.

Ég er auðvitað búin að skipta um skoðun um nafn á útvarpsþættinum mínum og hef nú ákveðið að hann skuli heita Maddama kerling fröken frú  eftir útvarpsþættinum sem ég var með á Aðalstöðinni. fyrir meira en heilum áratug .

  Mér fannst bara rétt að endurvekja hann og endurlífga Maddömuna og bjóða henni að þramma áfram í útvarpsheimum eins og henni einni er lagið og ljóðið.

  Ég er kona og mér leyfist að skipta um skoðun þegar mér hentar. Svo er ég líka komin á fimmtugasaldurinn og þá gerir maður frekar það sem konu sýnist og lætur sér í léttu rúmi liggja þó einhverjum finnist eitthvað um eitthvað sem maður segir og gerir..ekki satt??

Núna þegar ég er búin að blogga ætla ég að koma sunnudagsmogganum sem bíður í stöflum hér úti á stétt i vesturbæjarlúgurnar. og svo ætla ég að gera mig fína og fara og sjá Gyðjugjörninginn í Norræna húsinu klukkan átta í kvöld. Unnur Lárusdóttir tónlistarkona og gyðja með meiru og Reynir Katrínarson gyðjuheilari, galdramaður, seiðkarl og listamaður munu þar kalla fram krafta hinna íslensku gyðja og þeim til aðstoðar verður karlakórinn Fjallabræður sem er alveg hreint einstakur. Þið getið hlustað á þau á morgun klukkan 15.00 á útvarpi Sögu en þá verður þátturinn sem var sl mánudag endurtekinn en þau voru einmitt gestir hjá mér þá. Þá getið þið líka hlustað á þorvald Þorsteinsson listamann og rithöfund en hann var einnig gestur í sama þætti.

Isana

Er fjólublár ekki bara litur kvöldsins og sumarbleikur varalitur flottur á konu eftir ótrúlega góðan og upplifunar-ríkan dag???

Ég held það.

Góða helgi öll sömulHeart

Þessi fjólubláa hér til hliðar heitir Ísana og varð til á brúðugerðarnámskeiði sem ég tók í skólanum úti fyrir nokkrum árum. Ísana er sérstök vera sem býr í fjöllunum með fuglunum og kemur aðeins til byggða þegar mennirnir þurfa á visku hennar að halda.

Ég hef sagt henni frá ógöngunum sem við höfum ratað í á okkar litlu eyju og hver veit nema hún sjái sér fært að kíkja til okkar og veita leiðsögn úr ringulreið inn í jafnvægi.  Ísana ber með sér töfrajurtir í litlum silkipoka og úr þeim sýður hún seið sem magnar upp ævintýri og töfra.

Hún biður um velferð fyrir þig og þína. 


Bloggedí blogg....Moggedí Mogg.

Sko þegar maður fær loksins vinnu þá duga ekkert minna en svona 4 vinnur fyrir kvinnur.

Byrja daginn á því að hoppa og skoppa um Vesturbæinn með Nóa syni mínum og koma Mogganum og hundrað og sextíu sólarhringum heim til vesturbæinga áður en þeir vakna.  Það er eiginlega ekki hægt að vera meiri Moggabloggari en þetta finnst ykkur það nokkuð. Kona sem vaknar klukkan 5 um NÓTT og úr höndum hennar fjúka Moggar og bloggar svo í þokkabót á sama miðli hlýtur bara að vera aðal.

 Þegar þessum morgunverkum er lokið þá fer ég og sel auglýsingar.. Ertu að byggja. viltu breyta þjóðfélaginu..eða langar þig til að heyra hvað öllum finnst um allt???

Þá er útvarp Saga málið!!

.Á mánudögum er ég auðvitað með ímyndunarveikina og ímynda mér að þegar ég tala þá heyri allir í mér. Útvarp Saga aftur í aðalhlutverki sko....Og ekki nægir mér að fylla á fólki eyrun heldur ætla ég að fylla augun á fólki fyrir vestan á Reykhólum á sumardaginn fyrsta með málverkum mínum á eins dags listsýningu og segja skemmtilegar sögur og alvöru ævintýri.

vatnskonaskúlptúrkonaLoftið

Svo fauk á fjörur mínar "verkefni" og svo aðstaða til að stunda svolitla vinnu með fólki...og svo og svo og svo... já ég er eiginlega steinhætt að telja enda löngu komin yfir 4.

Ætla að leggjast með mínar frjálsu tær uppí loft og hvíla mig áður en ég fer að sofa svo ég verði falleg á morgun. Maður má ekki krumpast af öllu þessu orkuflæði og muna að hafa gæði í lífi sínu. Gæðin in my life now eru þau að það er allt fullt af svo frábæru fólki í kringum mig að ég gæti  næstum trúað þeirri dellu að það sé "of gott til að vera satt".

Það er ekkert of gott til að vera satt!!!

007_FXIW1_ITS_WONDERFULL_LIFE~It-s-a-Wonderful-Life-Posters

 

 


Vona að mig dreymi flott nafn á útvarpsþáttinn minn....

..sem ég byrja með á morgun á útvarpi Sögu 99.4. Það er alltaf best að sofa á svona hlutum og vakna svo með þá klingjandi í kollinum. Þetta verður svona þáttur þar sem farið verður um víðan völl ..ævintýri, sköpun og skemmtilegt fólk sem er að gera jákvæða og frumlega hluti og lifa draumana sína verða í aðalhlutverki sem og sögur úr hversdagslífinu sem gefa lífinu margskonar liti og blæbrigði.

Í fyrsta þættinum fæ ég til mín mjög spennandi fólk.

 Þorvaldur Þorsteinsson listamaður ætlar að koma og segja okkur frá Verkefni sem hann er að vinna að sem hann kallar Tækifærið Ísland/Tækifærið manneskjan í framhaldi af ritröð sem hann er með í Lesbók Morgunblaðsins..sérdeilis magnaðar pælingar og hugmyndir sem þar eru að fæðast.

Unnur Lárusdóttir tónlistarkona og gyðja með meiru kemur ásamt Reyni Katrínarsyni listamanni og gyðjuheilara og þau ætla að leiða okkur í ævintýraheim sinn þar sem þau eru svo sannarlega að lifa og starfa með sköpunargyðjunum. Einnig ætla tveir mjög flottir strákar að koma í heimsókn og segja okkur sögu af  óvenjulegum karlakór sem fer sínar eigin leiðir og stendur á sérstökum grunni í sínu starfi.

Þátturinn er á dagskrá alla mánudaga milli klukkan 13.00 -15.00 á Útvarpi Sögu fm 99.4 og ég vona bara að þið njótið vel.

En nú þarf ég að halla mér svo draumarnir mínir og ímyndir fái að sprikla og spana um hugmyndaheimana og vekja mig svo upp með frábæru nafni á þáttinn. Einhverjar hugmyndir???

Svei mér þá ef það eru ekki svona þúsund fiðrildi að flögra um í maga mínum núna..alltaf spennandi að gera gjörninga  í lífinu og njóta þess sem er, var og verður.

Verið glöð og góð!!!

 

 

 


Og bjöllurnar hringdu og klingdu í kolli mínum....

200462238-001......og ákvörðun hefur verið tekin.

Þessi dagur var einn af þessum töfradögum og í gegnum huga minn renna myndir af frábæru fólki og samferðarmönnum og KONUM.....sem aðstoða með lífspússlið.

Sem vita auðvitað það sem allir vita að við erum svo góð saman. Ég og þú. Við. Bloggvinir og aðrir vinir.

Þetta blogg er um samhljóm og óm sem klingir í kolli konu sem labbaði í gegnum bjölluhengið og vaknaði upp við ljúfan draum. Draum sem er um að láta sér líka við sjálfan sig og skilja það að við erum öll andlegar vekjaraklukkur sem klingjum og hringjum fyrir hvert annað.

Þannig er nú það. 


Þrír fuglar í hári mínu....

200172593-001..sem syngja samt sama sönginn.

rauði syngur ..Vertu þú sjálf/ur því kærleikur er cool.

Það er bara flott að láta sig aðra varða og gera það sem hjartað býður en ekki bankareikningurinn. 

blái syngur...Höfuð herðar hné og tær,

þú hin unga mær. Dulin skilaboð um fleiri og betri magaæfingar

Og sá brúni syngur...Það er engin leið að kreppa tær í kreppu í c dúr. Svo allir saman nú og rétta úr sér. Ég bara neita mér og þér um að trúa á kreppuna...í kreppum verður alltaf eitthvað mikilævgt til og ég stend með því.

Og ég velti fyrir mér hvern þeirra ég skuli hlusta á...lagið er hið sama en textinn ekki eins og höfðar til mismunandi  tilfinninga í konu.

Það er engin leið að hætta að syngja svona....Whistling popplag í Bloggdúr.

 

 

 


Lífið lætur ekkert snúa á sig....né mig!!

Þessu verð ég að deila með ykkur...er bara svo fyndið og skemmtilegt í sjálfu sér og sýnir það svart á hvítu sem ég er alltaf að segja að lífið er ævintýri sem er alltaf að segja sig sjálft alla daga.

200356790-001

Hef verið að hugsa um það undanfarið að stofna mitt litla fyrirtæki. Var reyndar búin að skrá eitt úti í London en gerði ekkert meira með það. Nafnið á fyrirtækinu mínu þar var Katrin by heart Ltd og svo kemur svona lítið hjartamerki sem lógó sem hefur einhvernveginn fylgt flestu sem ég hef búið til.

Var að hugsa um hvort ég ætti ekki bara að halda mig við gamla nafnið nema þessu þarna Ltd sem á auðvitað ekkert við á íslandi en það stendur fyrir limited. Ég er bara ekkert hrifin af svona orðum eins og limited sem þýðir takmörkun.

Svo ég hef ákveðið að endurfæða litla fyrirtækjasprotann minn og vinna þar með eigin hugmyndir og verkefni og gefa því betra nafn. Nafn sem er meira við hæfi. Nú heitir það Katrin by heartHeartunlimited!!!!

Og eins og lífið sé mér ekki sammála??

Á morgunflakki mínu um bloggið rakst ég inn hjá Vilborgu vinkonu minni og þar getur maður dregið spil og fengið vísdóm dagsins. The creator cards.

Þetta er það sem ég dró...


Are you limited by the people in your life? Are you limited by your circumstances? By your education? By God? If someone else is limiting you, why would you choose that? How is it serving you to believe those limitations?
What you believe is what you have chosen to believe, and your beliefs create your experience. Are you willing to re-examine your belief systems and then consciously choose the ones you really want?
The limitations you have chosen up till now have served you in some way, but in this moment you can choose again. Are you willing to be unlimited?

Og ég brosi bara með sjálfri mér og segi auðvitað..Já... en ekki hvað?? 

 

14


Næsta síða »

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband