Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Hið kvenlega innsæi og flest allt sem byrjar á k...

Þú ert einstökÉg er bara slök í dag og hugsi. Það er oft ágætt að stoppa og líta yfir farinn veg og ígrunda hvað hefur gerst og hvernig það hefur haft á mann áhrif og hvert ferðinni sé heitið héðan. Það verður nú að segjast að síðastliðnir 5 mánuðir hafa heldur betur verið magnaðir á margan hátt og öllum undirstöðum verið kippt undan fótum okkar og við farið í boga um loftin blá og erum enn að velta fyrir okkur hvernig og hvar lendingin verður.

Ég segi nú fyrir mig að ég ætla að reyna að stýra henni sjálf eins vel og mér er unnt enda á fáa aðra að treysta nema sjálfa sig þegar upp er staðið..ekki satt?

Ekki ætla ég að treysta á vatnsgreidda vel flokks uppalda pabbadrengi til að hafa það í sér að grípa mig eins og ég vil vera gripin. Ef ég lendi standandi sem ég er nokkuð viss um að ég geri..enda eins og kötturinn í liðleika og kænsku..... þá kem ég undir mig fótunum með vitinu mínu eina og hinu margrómaða kvenlega innsæi sem svo mikill skortur er á hjá karlpeningi þessa lands. Sem segir sig eðlilega sjálft

Þar komum við sterkar inn stelpur!!!   Á kvenlega innsæinu sem er næstum göldrótt og karlmönnum algerlega hulið. Á þessu innsæi munum við fara svo langt sem augað eygir og sækja nýjar hugmyndir  sem enginn hefur enn séð og munu breyta öllu landslagi í hugsunum  og framkomu hér á þessari plánetu.

Annars er ég mest að spá í hvernig ég vilji klæða mig fyrir daginn og hvers kyns flíkur hæfa erindum mínum sem eru mikilvæg eins og alltaf. Vera kurteis, kjarnyrt, kaldhæðin, kærulaus, kafloðin, kerlingarleg, kvensnift, kappsöm, kynóð, karllæg, kvenremba, kjörkuð, kúnstug, kraftmikil, kenjótt, kaldlynd, kærleiksrík, kasólétt og ...æ, bara allt sem byrjar á k eins og nafnið mitt Katrín.  Þetta er svona bloggfærsla sem verður til þegar kona er andlaus og klæðalaus og lætur innsæi sitt ráða ferðinni út í buskann.

Eigið góðan dag Sideways

 


Smásaga um Gamla manninn og drauminn. Alls engin pólitík en heilmikil lífsfílósófía sem er bara gott á svona tímum.

Var að browsa í gegnum gamalt efni og fann þessa smásögu sem ég skrifaði einhverju sinni...er nefninlega að hugsa um að setjast niður og skrifa eitthvað smá hvern dag. Eitthvað skapandi og skemmtilegt til að halda spiritinu vakandi og upplyftu. Það var svo gott að fara á námskeiðið í skapandi skrifunum í janúar hjá þorvaldi Þorsteins....virkilega hvetjandi og ruddi burtu raunverulegum og ímynduðum hindrunum..svo nú er allt hægt! Mæli með svona námskeiði.

Hvernig væri svo að draga fram gömlu góðu smásagna og ljóðakeppnina sem ég var svo oft með hér á blogginu áður? Örugglega tímabært að gera það enda leynast sko snillingar á meðal bloggvina minna sem geta skáldað og skrifað í löngum bunum.

En hér kemur smásagan. 

 

Og gamla manninn dreymdi draum um konuna með tárin.

Þegar hún grét hrundu tár hennar í grasið og ummynduðust í glerperlur. Glerperlur fylltar af litum drauma hennar og þrám.

Hún geymdi þær í svuntuvasanum og lék sér með þær þegar enginn sá til.

Þegar hann fór gaf hún honum eina perlu sem hann setti í vasann, þorði ekki að horfa eða skoða betur það sem í henni var.

Hvað ef draumar hans og þrár færu að birtast honum.

Hann stakk henni djúpt í vasann í myrkrið þar sem engir litir sáust.

Þó hann þyrði ekki að taka hana upp í dagsljósið fannst honum gott að strjúka sléttan flötinn og hugsa um hvaða leyndardóma hún kynni að geyma.

Löngu gleymdar minningar fóru að bæra á sér. Minningar um opið hjarta og viljugan huga. Tilfinning um að vera stór en ekki lítill og aumur eins og núna. Lífið hafði kennt honum á óvæginn hátt að það borgar sig ekki að láta sig dreyma.Það var bara ávísun á vonbrigði og feilspor.

Betra að vera öruggur í því sem hann þó þekkti.

Að hver dagur rennur eins og allir hinir dagarnir. Hljóður í ærandi hávaða sálarinnar.

Í ómi fréttanna af því hvernig þessi heimur var orðinn..ómennskur og kaldur, grimmur og duttlungafullur. Það var betra að reyna að gleyma þessum földu skilaboðum hjartans sem vildi meira.

Þegar hann horfði í spegilinn á morgnana sá hann andlit sem hann kannaðist ekki lengur við. Tómleg augun störðu á hann..virtu fyrir sér lífsins rúnir í andliti hans. Eins og eyðimerkur sandar þar sem vindar blása og forma línur og form, þar sem hvorki er hægt að finna skjól fyir næðingi lífsins né brennheitum sólargeislunum sem brenndu upp hvern vott af lífi.

Hann rámaði í stundirnar á ströndinni. Þar sem ferskur vindur blés utan af hafinu og færði honum sögur og ævintýri úr veröldinni þarna úti. Og hann hafði látið sig dreyma um að sigla burtu til fjarlægra landa og verða sæfari og finna ástina og lífið sem myndi bíða hans þar.  Þá höfðu augu hans verið full af fjöri og birtu og sannleikanum um að lífið væri gott, að lífið væri fagurt og fullt af földum fjársjóðum.

En það var langt, langt síðan. Með tímanum höfðu öldurnar skolað burtu draumum hans, tilfinningar hans orðið eins og rúllandi steinarnir í fjöruborðinu sem komu og fóru í hverjum andardrætti sjávarins. Og sæfarinn verðandi byrjaði að gleyma ævintýrunum og sögunum frá veröldinni þarna úti, og með tímanum og öldufallinu gleymdi hann líka ævintýrinu um ástina og hinn fagra heim sem beið hans.

Þess í stað hafði raunveruleikinn tekið við. Raunveruleikinn þar sem hver verður að strita hvern dag til að lifa og svo að deyja með draumum sínum.

Hann leit á lúnar hendur sínar, snjáð fötin og fann hvað hann var þeyttur, svo óendanlega þreyttur.

Hann stóð hægt á fætur, kvaddi félagana á knæpunni og hélt út í myrkrið. Regnið lamdi auðar göturnar en honum var ekki kalt. Hann var vanur veðrinu, hann fann bara kuldann í sálinni. Hann gekk niður að ströndinni. Hafið, máninn og vindurinn. Hann andaði að sér ferskri sjávarlyktinni og hlustaði á öldurnar gæla hver við aðra um leið og þær komu við og heilsuðu honum. Eins og þær vissu að þetta væri hann..maðurinn sem hafði ætlað að taka sé far með þeim fyrir mörgum áratugum og láta draumana rætast.

Settis á veðurbarða trébekkinn  þar sem elskendur hittust á fögrum sumarkvöldum í litla þorpinu. Og hugsaði um lífið og raunveruleikann. Og fann í hjartanu söknuðinn.

Hann laumaði hendinni í vasann..strauk ljúflega um glerperluna sem konan í draumnum hafði gefið honum.

Hún var slétt köld og hættuleg. "Merkilegt" hugsaði hann með sjálfum sér að glerperlan hefði verið í vasanum á buxunum hans þennan morgun. Hann var viss um að þetta hafði bara verið draumur. Þegar hann leit í spegilinn  hafði honum brugðið þegar hann sá löngu gleymdum glampa bregða fyrir í augum sínum.

Hann strauk perluna aftur. Huldi hana í hendi sér og hélt fast um hana.

Hún hafði verið falleg þessi kona.

Með ljósgullið liðað hár, tindrandi augu og svolítið bústin undir svuntunni.

Hún hafði tekið hendi hans í sína og haldið henni að hjartanu. Leyft honum að finna sláttinn og hann skynjaði lífið og fannst hann vera ungur aftur.Og honum fannst hann hugrakkur og sterkur. Og hún hafði hvíslað í eyra hans ljóði um að það væri aldrei of seint. Hann vissi ekki alveg hvað hún átti við en samþykkti orð hennar.

Þegar kvöldaði og sólin gekk til náða bak við fjallið sagði hún honum sögur sem hún las úr perlunum. Hún hélt þeim í hendi sér og las úr litum þeirra.

Sagði honum sögur af ferðalögum á fjarlæga staði sem menn þekktu ekki. Þar sem konur ófu örlaganet úr silfruðum þráðum mánans. Gerðu úr þeim möguleika og tækifæri sem biðu þess að verða á vegi mannvera sem vildu lifa og læra. Og sem þorðu að fylgja hjartanu.

Hún strauk hrjúfan vanga hans blíðlega og grét með honum þegar hann sagði henni frá óttanum, frá því að hafa ekki þorað að vera hann sjálfur og hvernig hann hefði látið berast með straumnum og hundsað röddina sem hvatti hann til að vera stór.

Hvernig lífið hefði brugðist honum og hversu sorgmæddur hann væri. Frá unnustunni sem yfirgaf þorpið og  hélt á vit ævintýranna með öðrum manni sem var hugaður og hafði birtu í augunum og kjark.

Frá ölllum einamanalegu stundunum, svefnlausu nóttunum og  myrkrinu sem hafði tekið sér bólfestu í huga hans.

Konan í draumnum hafði valið fallegustu perluna sem hún átti og gefið honum.og kvatt hann með þeim orðum að lífið væri gott og lífið væri fagurt en það væri hans að sjá og skilja.

Máninn óð í skýjunum og varpaði fölleitri birtu á manninn í fjöruborðinu.

Hann tók perluna upp úr vasanum, opnaði lófann hægt og horfði á alla litina sem dönsuðu um í glerperlunni sem einu sinni var tár.

Og hann muldraði um leið og hann stóð upp..."aldrei of seint" og það var óvenjulegur glampi í augunum á honum og fótatak hans ómaði um þögul strætin þegar hann hélt léttstígur út í myrkrið.

 Það er sagt að enginn hafi vitað með vissu hvað varð til þess að gamli maðurinn tók sig upp og fór en sögur segja að hann hafi farið til fjarlægra landa og selt fagurlitaðar glerperlur á strætum og  alltaf klæðst fötum sem ofin voru úr silfurþráðum.

 

Marti157900070600021

Eitthvað nærandi fyrir líkama og sál......

B27

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það verður eitthvað hollt og gómsætt á mínum borðum um helgina enda verður kona lögulegri ef hún borðar lauka og rætur og  getur rakið sínar eigin rætur til jarðar sem er góð og gjöful.

Jörðin gefur okkur stöðugt endurnýjað umboð í sínum krafti og gefur góða sprettu af næringu og umhyggju til okkar sem á henni löbbum og liggjum og því ættum við að láta til leiðast að gera slíkt hið sama fyrir hana.

A.m.k vil ég frekar veita henni endurnýjað umboð til vaxtar og þroska en afdönkuðum þreyttum þingmönnum sem nú vilja endurnýjun setu sinnar á þingi en ættu frekar að baða sig í lyngi lengst uppi í sveit og fjarri þingsölum næstu aldir. Svo gala gaukar og gamlir laukar um gamalt vín á nýjum belgjum. Kona sér í gegnum svoleiðis enda eldri en tvævetra og hugsar um nýtt blóð fyrir nýja framtíð og fegurri mennsku. Dauðþreytt á gjamminu í varðhundum kerfis sem er löngu úrelt og dáið Mammoni sínum.

Bíður vonglöð eftir lýðræðisbyltingunni og makar á sig  bjartsýniskremum og sópar fast gólfið með nýjum vendi sem gerður er úr gegnsæjum réttlætishárum sem vaxa upp úr hausum þeirra sem hugmyndirnar setja fram af hugsjónum, heiðarleika og ekki síst kærleika.

487798 Það eru allir að bjóða sig og falbjóða í framboð þessa dagana og bjóða vináttu á fésbók og hvar sem maður kemur. Vertu bara vinur í raun segi ég og hugsa með sjálfri mér.."ef þú kemst  til valda  mundu að hafa þá helst og mest vald á sjálfum þér til góðra verka.

Ég læt ekki mitt eftir liggja og fer í framboð á eigin vegum. Ég býð mig fram í að standa vörð um það sem mér hugnast best og leyfa ekki atkvæði mínu í komandi kosningum að halda lífi í gamla genginu.

Mitt dýrmætasta atkvæði fer í nýja strauma og stefnur og það framboð sem kemur fram til að vera leiftrandi leiðréttingarafl fyrir alvöru lýðræði og hugarfarsbyltingu sem sameinar gott efni og góðan anda.

Kona þarf að axla sína eigin ábyrgð á framhaldinu fyrir sig og afkomendur sína og má ekki láta glepjast af fagurgala gömlu gaukanna sem fljúga svo burtu með fenginn sinn og hlægja að heimsku kjósendanna eina ferðina enn.

Nei.

Vöknuð þjóð mun ekki leyfa slíka gjörninga heldur galdra fram algerlega ný úrslit þar sem fólkið fær vinninginn og arfinn. Þjóðararfinn góða.

Auðlindina sem býr í brjósti hins venjulega íslendings og stórfjölskyldu hans. Þjóðarinnar sem sækir sér nú rétt sinn og lætur ekkert röfl stöðva sig á þeirri leið þó hún sé æði brött og torfær. Þarna handan við fjöllin er lindin góða og þangað er ferðinni heitið og þar verður áð og háð hin endanlega barátta við tröllin sem stálu andlegum fjársjóðum okkar og landi. Og það verður barist til sigurs. Jamm. 

 Og munið góðu næringuna..líkaminn og sálin verða mun lögulegri og léttari ef vel er með farið og næringin er af hinu góða...óða...ahhh! 

Góða helgi bloggvinir og aðrir.Heart

 


Nothing to say really!

Kosningar framundan.masks

Eruð þið búin að fá góðu fréttirnar??

Var að lesa það að vísindamenn hafi uppgötvað að það séu líklega margar margar plánetur á sveimi um himinhvolfin og geiminn sem séu eins og jörðin.

Mikið varð ég glöð..það er þá von að komast frá ruglinu hérna.

Vona bara að ef það er einhverskonar mannkyn á þessum jörðum þarna úti að það sé aðeins lengra komið í þroska en aparnir hér.

Ég sé það fyrir mér að ég muni sofa rosalega vel í nótt...bara eitt sem vefst fyrir mér.

Hvernig finn ég þessar jarðarplánetur og hvernig kemst ég þangað með mig og mína fjölskyldu???

Ef ég finn ekki út úr því fljótlega er mér allri lokið og segi pass.

 Ég er búin að fá svo nóg af því að reyna fóta mig í þessum súrrealíska farsa sem á að kallast veruleiki okkar og þrái nú bara frið og hamingju á þessari plánetu okkar.

Er það til of mikils mælst???

9077


Guð hvað ég vona að vinir mínir í englandi hafi ekki séð viðtalið við Geir á BBC.

Eða jú annars....þá skilja þeir algerlega hvers vegna svona illa er komið fyrir eyjunni okkar, landi , þjóð og framtíð. Þeir hafa átt erfitt með að trúa mínum fjálglegu lýsingum um hverskonar gaurar hafa hér valist til starfa en nú fengu þau það bara beint í æð..og verða bara að trúa sínum eigin augum! Ég meina Geir sagði það allt og nú þarf enginn að efast um hvað orðið vanhæfi þýðir..er það nokkuð?

En ef einhver efast enn um vanhæfi þessa fólk sem hér hefur farið með stjórn landsins þá leyfi ég mér að efast um dómgreind og hæfi þeirra hinna sömu til að draga rökréttar ályktanir og vona þeirra vegna að BBC langi ekki að tala við þá líka og sjónvarpa þar með enn meira af skömm okkar út fyrir landsteinana.

Og eins gott að alvöru fréttamenn eins og þeir gerast svo góðir þarna úti í heimi... fari ekki að tala við kollega sína hérna heima. Þá fengju þeir annað sjokk.   Hvað þá ef þeir skildu íslensku og færu að fylgjast með aulabrögðunum, undanbrögðunum og ruglinu sem viðgengst inni á alþingi þessa dagana meðan þjóðin húkir hnípin fyrir utan og getur ekki annað en grátið ill örlög sín og horfst í augu við þá staðreynd að það er engin að hjálpa okkur út úr hörmungunum.

Ég vil sjá fleiri kvenskörunga eins og Ragnheiði Ólafsdóttur koma þarna inn og taka í hnakkadrambið á þessum drengstaulum sem þarna tefja mikilvæg mál með gaspri og drambi sem verður þeim að lokum að falli.  Áfram Ragnheiður..þú ert að vinna þjóðþrifaverk með því að tala á mannamáli yfir hausamótunum á þessu fólki sem skilur ekki enn hvað er að gerast hjá öllu venjulegu fólki fyrir utan þykka steinveggi alþingis.

  Þessu venjulega fólki sem vonar nú og biður þess að það birtist ekki einhverjir ljótir ólígargar hinu megin við hornið og hrifsi af okkur mjólkina og brauðið, hendi orkunni okkar í poka og skrúfi fyrir vatnið áður en þeir láta sig hverfa til með ránsfenginn til fjarlægra eyja ..þar sem er reyndar töluð töluverð íslenska. Þar eiga þeir örugglega einhverja vini sem vita hvaðan ránsfengurinn kemur og geta glaðir sagt skál og hipp og hoj eins og alvöru sjóræningjar.

Ekki veit ég hvað bíður okkar í dag eða á morgun... það eina sem ég veit og hef alltaf sagt er að þessi ógnaröfl sem á bak við tjöldin fara nú hamförum munu ekki láta sitt af hendi með glöðu geði eða einhverri góðmennsku. Ó nei. Þau munu jafnvel saka friðsama húsmóður sem ber pott með sleif um fasisma, kommúnisma, valdarán eða eitthvað þaðan af verra og kannski bara vilja siga á hana lögreglukórnum með kommúnískum áróðursöngvum..ha?

Það er eins gott að fara að taka upp skjöld sinn og sverð og verja það litla sem við eigum eftir hér.

Í mínu tilfellli er það auðvitað ruslatunnulokið og ausan sem þjónar varnarhlutverkinu. Við þurfum að hefja þjóðarsöfnun fyrir stjórnlagaþingi og lýðræðinu okkar þar sem ríkisstjórninni finnst  réttindi okkar of dýr talið í krónum en velta kannski ekki fyrir sér hversu mörg líf og framtíðardrauma sú árás sem við höfum orðið fyrir kosti þegar upp er staðið og öll kurl komin til grafar?

Sem verður aldrei í þessu kerfi samtryggingar og vinavæðingar. Því miður. Og munu þau breyta kosningalögunum þannig að auðveldra verði fyrir ný fraboð að komast að...I dont think so. En ég bind mínar vonir við fólkið í landinu sem er búið að fá nóg að það veiti ekki gömlu öflunum brautargengi og láti ekki rugla sig í kosningabaráttunni sem nú er þegar hafin á alþingi islendinga.

Er það nokku skrítið að ónæmiskerfi konu gefi aðeins eftir á svona ögurstundum og hún sæki sér kvef og böggur?  Það er líklega flensan sem lætur mig sjá allt í dökkum litum núna en ég þekki mig og veit að með minnkandi hori og slefi ná ég fyrri bjartsýni og baráttuanda.

Hafið það gott bloggarar og ekki leyfa neinum að kasta ryki í augu ykkar ..núna er mjög mikilvægt að vera vakandi og hlusta vel eftir úlfavælinu í litlu lömbunum sem nú skoppa um borg og bý og vilja atkvæði og farveg fyrir sig og sína.

MEeeee.

480ff50bb8188prirodlub_04


Pstt...ég er bara hljóð heima hjá mér núna. Löggan kom með einhvern miða og bað mig að hafa ekki hátt. Davíð þarf frið til að hugsa.

Svo ég pakkaði mér bara ofan í rúm enda með hálsbólgu og kvef. Þeir hafa örugglega séð mig á götum úti æpandi "Vanhæf Ríkisstjórn" og örugglega eitthvað annað sætt líka svona í hamaganginum við að koma reglu á þetta samfélag okkar og ákveðið að færa mér svona miða með beiðni um HLJÓÐ. Suss, uss...þegiðu!!!

Annars æpti ég hátt og öskraði gærkveldi þegar ég horfði á Ingva Hrafn sem setur sjálfan sig á dagskrá stöðugt og alltaf á ÍNN ...þar sem hann kallaði mótmælendur "útsendara kommanna og að það væri alger fjarstæða að nefna byltinguna búsáhaldabyltingu þar sem þessir vitlausu útsendarar kommanna væru ofbeldisfólk sem hefði ekkert gert nema grýta lögreglumenn með björgum...eða grjóti.

Maðurinn fór hamförum í vitleysu og rugli og ég varð bara móðguð fyrir mína hönd og annarra búsáhaldabyltingarsinna sem hafa um leið og þeir unnu það þjóðþrifaverk að  koma einhverjum af spillingaröflunum frá kjötkötlunum...að þá stóðu þeir líka vörðinn um að lögreglan væri ekki beitt ofbeldi. 

Getur bara hvaða Hrafnsungi sem er opnað sjónvarspsstöð og röflað og ruglað eins og hann fengi auglýsingatekjur fyrir?? Kona spyr sig. Annars er gott að ég er hás og lágróma akkúrat núna. Það er nefninlega ýmislegt sem ég þyrfti að æsa mig verulega mikið yfir..en ég geri það bara næst. 

Skemmti mér í laumi yfir ungliðunum í sjálfstæðis sem eru nú að æfa sig í stjórnarandstöðunni og gera sig...ja hvað get ég sagt..hlægilega daglega með afneituninni og blekkingarhulunni sem villir þeim sýn og hefur alltaf gert, gerir og mun gera. En þeir villa okkur ekkert sýn og blekkingarhulunni hefur nú þegar verið svift af þeim með látum en þeir bara fatta það ekki.

Það er það sem gerir þetta allt svo grátbroslegt..finnst ykkur ekki???

En munið að ganga hægt og hljótt um gleðinnar dyr...veit reyndar ekkert hvar gleði hinnar harmi slegnu þjóðar er falin þessa dagana ....en ég veit hvar Davíð og félagar fela sig. Og þess vegna mun ég strunsa þangað um leið og ég er komin með hávaðaframleiðsluna í lag og læt enga minnismiða frá löggunni stoppa mig með að  hafa uppi ærandi hávaða þar til við höfum komið þessu samfélagi okkar á rétt ról aftur.

Vona að Davíð finni í þögninni rétta svarið og hverfi hljóðlega af sviðinu. 

Þið megið svo hvísla einhverju í athugasemdakerfið mitt ef þannig liggur á ykkur.

10120668


Hvar er húfan mín, hvar er potturinn minn, hvar er ausan mín....og sleifin mín og byltingin?

Farin upp á hól að æra þursinn sem situr sem fastast á þessari þjóð og neitar að hreyfa sig.

HEYRUMST!!!!!

 


Úr einu í annað...

EngillÍ gær fór ég á hitting.

Ég hitti magnaðar konur og drakk með þeim kaffi og drakk í mig það sem þær sögðu. Þær voru bæði vitrar og villingar í einu..sögðu sögur af lífum, löngunum og listum. Bara frábærar og fallegar allar saman.

Skellti mér svo í bíó og sá Vicky Christina Barcelona sem var bara yndi á að horfa enda Woody Allen mynd en mér finnst hann alltaf áhugaverður. 

Las svo um að Katrín nafna mín Jakobsdóttir væri búin að víkja vanhæfri stjórn LÍN frá.

Frábært hjá henni og eitthvað svo flott að sjá ímynd hinna nýju fersku ráðherra eins og hennar og gömlu þreyttu ímynda embættismananna á miðað við t.d ímynd Gunnars Birgissonar. Svona eins og góðu álfkonurnar séu mættar til að ryðja þursunum úr vegi svo þjóðin geti aftur orðið heil. Bara flott og vonandi framhald á þessu.Mikið held ég að námsmenn varpi öndinni léttar núna.

Annars er ég í pólitísku hvíldarfríi og reyni að minna mig á það daglega að ég er ekki pólitísk kona...en það gengur ekki vel. Alltaf eitthvað einhversstaðar sem setur mig af stað aftur. Það er ekki eitt heldur allt sem rekur mann áfram þessa dagana..það er hvergi skjól fyrir "ástandinu" í þessu þjóðfélagi.

Ætla samt að reyna að einbeita mér að skapandi skrifum og kannski smá myndlist í einhverja daga. Mála appelsínugulu búsáhalda byltinguna eða semja ljóðabálk um óhefta gremju sjálfstæðismanna og bræði eftir valdamissinn. Það er eiginlega fyndið á að horfa...svona úr fjarlægð allavega. Get alveg séð fyrir mér drulluslaginn sem verður þegar kosningabaráttan skellur á með öllu sínu. Þá ætla ég að ganga um í pollagalla.

En eins og ég sagði...ég ætla að lita dagana mína með mildum litum og mjúkum og halda áfram að drekka í mig visku kvennanna sem ég hitti í gær og kannski skapa eitthvað merkilegt.

Sideways  Svo er ég líka að reyna að passa mig að hemja skoðanir mínar svo ég verði ekki rekin frá Toyota. Ég er reyndar ekki að vinna þar en allur er varinn góður segi ég nú bara.

 

 


Er hugsi yfir framtíðarsýn í íslenskum stjórnmálum

Ég var að lesa það einhverstaðar að það væri útlit fyrir harkalegustu og ósvífnustu kosningabaráttu sem háð hefur verið hér á landi núna í vor. Ég trúi því svo sem alveg...valdabatteríin munu aldrei sleppa sínu án baráttu. Mikillar baráttu. Enda mikið í húfi. Heilu þjóðarframleiðslurnar og auðlindirnar sem menn virðast halda að þeir eigi aðgengi að og eignir allra landsmanna sem og sparnaður er nú ekkert lítið til að tryggja gömlu góðu völdin. Og almenningur sem verður bara vinnuafl eða tannhjól í þessu eilífðarhjóli græðgisbaráttunnar þar sem öllu er fórnandi í þessum leik fárra um auðinn og völdin. Þeirra sem geta aldrei fengið nóg.

Hryllilega illa gerðar skoðanakannanir gerðar af vanhæfum og trausti rúnum fjölmiðlum eru svo farnar að leka yfir fólkið og rugla það í ríminu.Er fólk virkilega enn að kupa áskrift hjá miðlum eins og Stöð tvö???

Svo skiptist kjósendahópurinn í sterkmerktar fylkingar hægri og vinstri eins og það sé aðalatriðið á meðan Róm brennur. Í stað þess að einhenda sér í að sækja vatnið svo það megi slökkva eldana sem loga alls staðar og bjarga sjálfum sér út úr þessum hildarleik og láta ekki reykinn villa okkur sýn. Er ekki sagt að brennt barn forðist eldinn?

Ég ætla rétt að vona að íslandsbörnin munu ekki henda sér á bálið sem brenndi aleigur og framtíð þeirra og barna þeirra..eins og sjálfvirkir viðarklumpar. 

Ég vona auðvitað að þessi lífstutta ríkisstjórn sem nú er við störf standi við sitt og komi lífsnauðsynlegum breytingum á...en árétta enn og aftur vantrú mína á þessu kerfi og flokkasystemi sem hefur haft sína eigin hagsmuni og sinna flokkspredikara að leiðarljósi alla tíð en ekki hag fólksins í landinu. Þess vegna verður nú að umbylta og breyta...hreinsa til þetta gamla og úrelta og hleypa að nýjum hugmyndum, fersku fólki og sterkri vitund um samkennd og sameiningu sem vinnur gegn þessum gamla huga um völd og græðgi.

Hugarfarsbyltingin þarf að verða.

Og hún gerist ekki í gegnum litgreinda vel uppalda flokksgæðinga sem auglýsa sjálfa sig á litprentuðum auglýsingabæklingum um löngun sína til að þjóna sér og sínum.

Ekki þér og þínum..heldur sér og sínum. 

Nei, hún gerist í okkar huga og okkar hjarta. Þessi Hugfarfarsbylting og nýja sýn mun mælast á því hverja við veljum til forystu í næstu kosningum. Hún mælist á ...hversu mun minna við látum blekkjast af umbúðunum og hæfni okkar til að greina raunverulegt innihald. Eða jafnvel á því að við höfnum gamla kerfinu alfarið og byggjum nýtt með nýjum gildum.

Ég treysti því að þessi þjóð viti að  tal til hægri og vinstri skiptir í raun engu máli.

Að við munum eftir aðalatriðunum núna sem eru þau að sækja vatnið, slökkva bálið sem brenndi allt og staðsetjum okkur svo kannski bara í miðjunni og höldum beint af augum á vit skapandi framtíðar og óendanlegra möguleika og verum fjólublá eða eitthvað.

Set hér inn fleiri myndir frá Perú... af því að ég er enn með Perú í æðunum og hjartslátt yfir þeim möguleika að ekkert kunni að breytast hér. Eða allt!!!

 peru_2.jpgperu_3.jpg


Næsta síða »

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband