Leita í fréttum mbl.is

Ekki allt sem sýnist....

forboðnu eplin

Ég hafði bara ekkert að gera eftir hádegið svo ég skellti mér út að tína epli. "Epli á dag kemur heilsunni í lag" segjum við á íslandi meðan að í englandi segjum við.."An apple a day keeps the doctor away"!!! Páskasólin og vorkoman fengu mig til að fækka aðeins fötum enda verður manni bæði heitt við að klifra upp í stóru eplatrén og hrista þau duglega og syngja um leið hástöfum...Vorið er komið og grundirnar gróa..tra la la.

Nýju nágrönnum mínum líst örugglega bara vel á mig því þeir voru allir úti í glugga..samt smá feimnir ennþá því þeir földu sig bak við gardínur og ég sá bara í nefbroddinn á þeim. Gasalega lekker nýju laufin sem maður getur klætt sig í þegar maður er komin úr fötunum. Maðurinn minn kallaði mig Evu.."You Eva Me Adam "sagði hann og blikkaði mig.

Já þetta var bara alveg frábær dagur. Svo gerðist nú eitt skrítið og kom þá í ljós að spekingar hafa alveg rétt fyrir sér. The Wise Guys kalla ég þá alltaf enda er ég svo léttlynd....já sko þegar þeir segja að það sé nú ekki allt eins og það sýnist í henni veröld. Að oft sé flagð undir fögru skinni eða að maður eigi ekki að láta glepjast af umbúðunum.

Þessi sannindi eru dagsönn og viturlega mælt. Sjáiði bara með eigin augum. Rosalega var ég hissa. En nú er farið að kólna og ég ætla að fara úr laufblaðinu og skella mér í lopapeysuna mína og gammosíur. Eigið bara gott sunnudagskvöld öll sömul. Adam biður að heilsa...hann er enn með einhvern undarlegan glampa í augum þegar hann horfir á mig. Örugglega laufblaðið sem er að hafa þessi áhrif á hann..hann er forfallinn náttúrunnandi þessi elska eða að hann er svag fyrir konum á hælaskóm. Lengir lappirnar sko.

ekki alt sem sýnist


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrðu nú mig elskuleg er þetta rétti timinn til að týna epli? hehehehe.... og það í Evu klæðunum einum saman.  Dream on girl.  Þú gætir hafa verið að klippa hekkið eða eitthvað álíka.  Eplin hljóta að vera týnd í september eða október. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 17:56

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm og svo sýnist mér þetta vera spurning um epli og appelsínur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 17:57

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehhehehe, góð!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 18.3.2007 kl. 18:02

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ásthildur mín..það er ekki alltaf allt á kafi í snjó hérna allan ársins hring eins og á Ísafirði. Hér er varmi og vor og blíða. Nei þetta er kannski ekki rétti tíminn til  að tína epli enda var ég ekkert að því þegar allt kom til alls. Appelsínur voru það heillin! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.3.2007 kl. 18:07

5 Smámynd: bara Maja...

Hehehe góð að venju

bara Maja..., 18.3.2007 kl. 18:37

6 Smámynd: Hugarfluga

*fliss* Æði! 

Hugarfluga, 18.3.2007 kl. 18:58

7 Smámynd: www.zordis.com

Það að klifra upp í tré er svoooooooooooo notalegt!  Ég er nýkomin niður úr Pálmatré þótt svo að döðlutínslan sé ekki hafin .......

www.zordis.com, 18.3.2007 kl. 19:36

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært að tína epli í mars !

kveðja héðan

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.3.2007 kl. 19:51

9 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.3.2007 kl. 19:54

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mig dreymir einmitt um að geta týnt epli a Evuklæðum líka. Annars er ég svo oft á Evuklæðum þegar ég er ein heima. Nenni ekki að klæða mig. það er verst að það er fullt af gluggum á blokkinni hérna á móti en yfirleitt man ég eftir því að draga rimlagardínurnar niður alla vega hef ég ekki ennþá fengið kvörtun vegna ósæmilegrar hegðunar. Samt liggur stundum við að ég rjúki alsber fram á gang til að henda ruslinu þegar ég er sem mest utan við mig.

Svava frá Strandbergi , 18.3.2007 kl. 21:58

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Na hehehe núna er allt fullt af snjó hér á Ísó.  En kirsuberjatréð mitt er samt að fara að blómstra  Inn í garðskála, ég skal senda þér mynd þegar það byrjar í alvörunni

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2007 kl. 00:59

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Takk...og skilaðu kveðju til Möggu Áka...þið bara eruð systur í anda og efnisútliti. Hún er svo frábær kona!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.3.2007 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband