Leita í fréttum mbl.is

Barátta vondu stjörnumerkjanna við góðu stjörnumerkin

86008608æ,kækkkkkllluntitled´fklgdfkhuntitledækækuntitledbadtaurusuntitledflgkædfljuntitledgeminiuntitledleoountitledvm m

Hér eru hinar neikvæðu hliðar stjörnumerkjanna..þetta eru púkarnir sem sitja á annarri öxlinni ykkar og reyna að telja ykkur trú um að þið séuð ekki nógu góð, eða klár og allt bullið sem neikvæðu hliðinni dettur í huga að þylja upp úr sér.

Sem betur fer eru svo stjörnumerkjaenglarnir á hinni öxlinni og þar er sko annað hljóð i strokknum.

Hér koma þessar elskur og munið að trúa frekar á þá en bræður þeirra og systur hér fyrir ofan. En ekki gleyma að baráttan er alltaf í gangi og maður verður að vera duglegur að velja hvern einasta dag hvoru megin maður ætlar að vera...munið það!!!

untitledytruntitledlluntitledljojojuntitledlklj 8383dkddk8377untitledædfgdfgkuntitleddkkguntitledleoEP-8372good gemini

Þið megið líka alveg segja okkur hvaða eiginleika þið hafið úr báðum hópunum. Ég trúi því samt ekki upp á einn einasta bloggvin minn að hann hafi eitthvað neikvætt til að bera. Bara alls ekki!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Púkinn minn var dysjadur sídasta vor ... er reyndar afturganga og sagdi mér ad hann myndi elta mig uppi.  Í hans stad situr búttadur engill sem hvíslar stögugt snidugu í eyra og á hinni öxlinni fae ég líka gott gott!   Svo zegar púkinn naer ad klófesta sig í haelana á mér haegir hann á mér en aldrei zad mikid ad ég nái ekki ad henda honum frá mér!  Er nokkud högggód enda gömul skytta, og örfaett í zokka .....

www.zordis.com, 31.5.2007 kl. 21:46

2 identicon

Ha, ég temperamental? Nei, ég er ekki svoleiðis fiskur...
Over emotional, overly sensitive, indecisive og escapist. Þetta er það neikvæða sem ég sé þarna sem eiga við mig.. Læt aðra um að telja upp þetta jákvæða.      Held samt að ég sjái kannski eitthvað sjálf...

Maja Solla (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 21:50

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hvaða merki ert þú Zordís?? Maja Solla..sko. Maður á einmitt að vera duglegur að vita hvað er jákvætt við mann sjálfan stelpa!!! Svona romsaðu þessu uppúr þér. Ég er t.d tvisvar sinnum skemmtilegri...og hugmyndaauðugri en hinn helmingurinn af mér sem er tvisvar sinnum leiðinlegri og stjórnsamari en hinn helmingurinn...úff það er svo flókið að vera tvíburi..er farin að sjá og heyra tvöfalt!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.5.2007 kl. 21:59

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ef þetta er ekki hin tærasta snilld, veit ég ekki hvað. Yndislegt mótvægi við mærðina sem yfirleitt einkennir svona kort. Ég fer að bjóðast til að gerast umboðsmaður þinn, kortakona.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.5.2007 kl. 22:33

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheheh ég er allt úr báðum...

...hreinlega geðklofa

:)

Hrönn Sigurðardóttir, 31.5.2007 kl. 22:44

6 identicon

Sem naut hlýt ég að neita öllu hið neikvæða ... Nei nei, annars sýnist mér ég sjá hluti úr báðum hliðum sem eiga sér stoð í raunveruleikanum. Ég get verið nöldrari og þver ... og auðvitað er allt hið góða satt... - auðvitað "extremely good looking" ... nei annars, ég hrekk alltaf í kút þegar ég lít í spegil! Yikes!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 22:55

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Guðný Anna mín..þessi skemmtilegu kort eru alls ekki frumsamin af mér..setti þau inn fyrir þá sem hafa gaman af stjörnumerkjapælingum. En þú mátt samt alveg vera umboðskona fyrir mig...það er eitthvað svo hollywodd að hafa umboðsmann..ha?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.5.2007 kl. 22:57

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér finnst þetta neðra eiga öllu betur við mig, ljónið. Eiginlega er bara allt í efra frímerkinu bull ... sko.

Guðríður Haraldsdóttir, 31.5.2007 kl. 23:28

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég er meyja og algjörlega fullkominn ....................................................................................................................................................................trúir eeinhver þessari fullyrðingu   Þá væri ég ekki  meyja.  Gagnrýnin á allt og alla, en samt búin að vinna það mikið í sjálfri mér að ég er sátt við mitt innra sjálf, og líkama.  Ég get brosað til kerlingarinnar sem birtist mér í speglinum og sagt, elskan mín við gerum bara betur næst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.5.2007 kl. 23:57

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er vog. Þetta er snilld.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.6.2007 kl. 00:04

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sem steingeit er ég nokkuð ánægð enda fullkomin.  Get ómögulega fundið neitt neikvætt við mig.  Hef alltaf verið feilfrí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.6.2007 kl. 01:14

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég get nú bara alls ekki lesið eða séð neitt skrifað ljótt í kringum vonda ljónapúkann minn. Ég hlýt að vera svona blind á eigin galla.

Svava frá Strandbergi , 1.6.2007 kl. 01:22

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég get bara ekki þagað yfir þess lengur...GÓÐI Vatnsberinn finnst ekki...svo ég varð að fara og finna annan vatnsbera úr annarri seríu svo þaðyrði ekki gapðandi tóm í góða hlutanum. Ég er mjög sjokkeruð yfir þessu...veit einhver hvað hefur gerst með góðu vatnsberana? Ég hef alltaf átt svo góðar vinkonur í þesssu merki..slökkviliðsmaðurinn er eins og glöggir lesendur geta séð af annarri tegund.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.6.2007 kl. 08:12

14 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég er svo blessunarlega Ljón - og þar sem það er svo dökkur floturinn á efri myndinni þá get ég bara með engu móti séð mínar neikvæðu hliðar  En þessi neðri mynd á mjög vel við mig - og auðvitað Gurrí mína líka..........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 1.6.2007 kl. 08:22

15 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ljón, ó ljón...

Guðrún Þorleifs, 1.6.2007 kl. 08:50

16 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er fiskur ég ekki séð neitt  ljótt við hann en kannski er ég bara blind,

Kristín Katla Árnadóttir, 1.6.2007 kl. 09:37

17 identicon

OK, OK... við skulum sjá... Sensitive, helpful, imaginative, trusting, kind, compassionate, friendly... ég get ekki séð að það sé einhver kostur að vera sensitive, nema þetta sé svona kontrast á móti því að vera overly sensitive. Ég er sko alveg bæði, ljótur kokkteill.

Maja Solla (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband