Leita í fréttum mbl.is

Á maður að fara að smíða örk?

Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði.

Var að horfa á veðurfréttirnar. Þar var einhver vitringur sem sagði frá því að fyrst það ringdi í dag þá þýði það að það muni rigna samfellt næstu 40 daga.

Og það er búið að rigna meira og minna hvern dag síðan í byrjun maí....!!!

Í fyrramálið þegar ég fer í skógargönguna ætla ég að kíkja í kringum mig eftir lurkum og bera þá með mér heim. Eins gott að eiga efni í eins og eina Örk ef það riginir og rignir og rignir. Gott að ég keypti mér þessi fínu skærgrænu stígvél fyrir helgina. Það eru myndir af regndropum á þeim...ætli það sé einhver fyrirboði??

Hvað hafa nú bretar gert af sér eina ferðina enn?

Hmmm...Vaknaði í morgun við rosalegar þrumur og  úrhelli en svo náði sólin að skína smá eftir hádegi og alveg fram undir kvöld og okkur tókst að grilla nokkrar kótilettur og gramsa í okkur áður en fyrstu regndroparnir byrjuðu að falla aftur.

Hvar er hann þarna bloggarinn sem er alltaf að kafa...kannski maður þurfi á námskeið hjá honum.

Nei ég smíða frekar örk. Best að gera lista yfir þau dýr sem ég ætla að taka með mér um borð. Voða sætt að hafa allavega tvo appelsínugula gullfiska í krús í brúnni..finnst ykkur ekki???

Dripp dropp..dripp dropp...

satúrnus

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú hefðir betur verið hér heima Snætrýna mín.  Hér hefur verið sleytulaus sól og heiðríkja síðan fyrir miðjan maí og virðist ekkert lát ætla að verða á.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.7.2007 kl. 21:59

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já ég veit...þið eruð með veðrið OKKAR!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.7.2007 kl. 22:15

3 identicon

Mér finnst alveg sorglegt að hugsa til Íslendinga í einhverjum regnlöndum núna, því sumarið hérna hefur verið engu líkt!
Viltu ekki bara skella þér yfir á örkinni, svo þú fáir smá sumar í kroppinn?

Maja Solla (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 22:16

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þið getið þá örugglega reiknað með 40 sólardögum til viðbótar. Er ekki sólarvörnin löngu orðin uppseld þarna heima? Ég get reddað ykkur nokkur þúsund brúsum á fínu veðri..hehe verði!!!

Ég og Nói sonur minn komum kannski bara siglandi..hann hlýtur að kunna að sigla Örkinni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.7.2007 kl. 22:21

5 Smámynd: www.zordis.com

Med ólíkindum zetta vedurfar hjá zér .... Hér vaeri lag ad fá dropana sem eru umfram hjá zér! Ég er viss um ad Nói geti keyrt örkinni zinni og 2 gullfiskar í brúnni eru snilld.  Bestu kvedjur frá einni stjörnu til annarar!

www.zordis.com, 15.7.2007 kl. 22:27

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Elsku Katrín komdu heim það er alltaf sól og hlýja það búið að vera æðislegt veður heima.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.7.2007 kl. 22:35

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Fegin að ég á Perluna núna, maður er við öllu búin              

Guðrún Þorleifs, 15.7.2007 kl. 22:45

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var að vonast eftir smá skúr.  Hm.. gæturðu sent mér eins og eina gusu, er að kafna úr sólarhöfuðverk

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2007 kl. 01:33

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sumarið hefur verið alveg einstakt um allt land. Ég er að ljúka fjallgöngufríinu mínu um austfirði. Í fyrradag var skýjað og hitinn ekki nema 9 stig og veistu maður varð bara feginn að fá einn svona al-íslenskan sumardag. Í dag mun sólin skína hérna aftur segir veðurspáin og líka á morgun og hitastigið hækkar aftur verulega næstu daga

Marta B Helgadóttir, 16.7.2007 kl. 07:50

10 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

velkomin í hópinn kæra kartín ! þó er eitthvað að glitta til hérna í dk

Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 11:27

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm sendu líka eina gusu hingað vestur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2007 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband