Leita í fréttum mbl.is

Jæja , safnaði mér 599 krónum og á nú fullt af myndaplássi og nýjan bloggvin sem málar með kaffi!!

Þetta var nú ekki erfið aðgerð þegar að henni kom. Að kaupa meira myndapláss en eins og þið vitið er ég löngu orðin full....af myndum..... og varð að auka plássið og víðsýnina mína.

Á flakki mínu um bloggheima rakst ég á skemmtilegan karakter sem málar ofsalega fallegar og skemmtilegar myndir á striga með kaffi.

Það er eitthvað við kaffið. Svo heitt og dulúðugt. Töfrandi.

Kaffisopi á réttri stundu getur læknað ýmis hjartasár og opnað fyrir góðar samræður milli vina. Höfgur ilmurinn og dökki liturinn gera líka sitt. Seyða mann á framandi staði í sjálfum sér og gefa hugarfluginu aukinn kraft. Vekur upp sofandi og heldur vakandi hinum þreyttu. Já alger töfradrykkur og svona lítur hann út kominn á striga og í mynd eftir  Berg Thorberg nýja bloggvin minn. Hann heitir auðvitað KAFFI á bloggvinalistanum mínum.

mynd007

Þessi kaffimynd er eftir hann og heitir... Last supper on pin street.

Já nú brosir lífið við mér.

Sólin farin að skína, heitt á könnunni og ég á fullt hús mynda.

 Reyndar finnst mér að málverkamyndir eigi að heita yndir.

Af því þær eru svo yndislegar.

Ykkur er velkomið að kíkja á yndirnar mínar í galleríinu mínu og svo mæli ég með yndunum hennar Zordísar bloggvinkonu, yndunum hennar Ipanama og kaffi yndunum hans Thorbergs. Ef þið heimsækið síðurnar þeirra getið þið skoðað allar yndirnar þeirra.

Bara svona ef þið viljið auka yndið í lífinu ykkar.

untitledjdgj

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Augnakonfekt  Klikkar ekki með kaffinu

Sumir eru hættir að sofa fyrir spenning  vildi bara að ég væri að koma líka

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.7.2007 kl. 14:18

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Við erumum kunnugir ég og Bergur. Hann er búin að gera þetta talsvert lengi og náð ótrúlegri leikni.  Það stælir enginn meistara Torberg.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.7.2007 kl. 15:22

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hulda mín..þið hjónin komið bara í langa helgarferð í haust og hvílið ykkur hérna í skógarjaðrinum. Eruð alltaf velkomin. Svo er líka alveg kominn tími á heimsókn sko!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 16:01

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég dáist að myndunum hans Bergs Torbergs. Ég sá hann í eiginn persónu eitt sinn á listahátíð  held ég, þar sem hann sat á gangstéttinni við Laugaveginn og málaði með kaffi. Mér skilst að hann máli myndirnar þannig að þær snúi öfugt við honum þegar hann málar, málar þær semsagt á hvolfi. Ég tók auðvitað mynd af honum sem ég geymi vel.

Svava frá Strandbergi , 31.7.2007 kl. 16:07

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Við hittumst bara í Skotlandi í haust

þar ætlum við hjón að dvelja frá 15-18 nóv í Byrone Castle

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.7.2007 kl. 16:39

6 Smámynd: Lúðvík Bjarnason

Augnyndi ;)

Lúðvík Bjarnason, 31.7.2007 kl. 17:48

7 Smámynd: Hugarfluga

Ég hef einmitt haft augastað á svona kaffimynd í einhvern tíma. Finnst þær snilldarhugmynd...ir.

Hugarfluga, 31.7.2007 kl. 19:20

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Cool. Á hvolfi segið þið. Vá, skrýtið

Jóna Á. Gísladóttir, 31.7.2007 kl. 19:58

9 Smámynd: Elín Arnar

Gaman að fá svona gallerí beint í æð. Þetta eru virkilega fallegar myndir hjá ykkur. 

Elín Arnar, 31.7.2007 kl. 22:25

10 identicon

Pabbi vinkonu minnar málar líka með kaffi, og bara öllu mögulegu.
En Katrín, þar sem þú ert svo listræn datt mér þú strax í hug þegar ég rakst á myndir eftir súrrealista sem heitir/hét Vladimir Kush.
Kannastu við nafnið? Rosalegur listamaður, ég er búin að fletta í gegnum myndirnar hans örugglega 15 sinnum í kvöld.

Maja Solla (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 22:31

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sannkallað augnakonfekt.

Marta B Helgadóttir, 31.7.2007 kl. 23:00

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu, það er þá hægt að gera meira við kaffi en að drekka það.  Sennilega miklu heilbrigðara bara að mála úr því hehe... En þetta er rosalega skemmtileg mynd. Þarf að fara rúnt og skoða.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.8.2007 kl. 07:27

13 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Humm... flott þetta kaffiyndi

Nú skelli ég mér "heim" og fæ mér gott Kaffitár.

Hafðu það sem best

Bloggvinaknús frá ferðalanginum

Guðrún Þorleifs, 1.8.2007 kl. 11:39

14 Smámynd: www.zordis.com

Virkilega fallegar og skemmtilegar myndir hjá honum.  Ég er búin að sjá fleiri kaffimyndir e. aðra listamenn og sést vel hvað það þarf lítið til að framkvæma fallegt og fulkomið verk án bruðls. 

kaffikveðjur á línuna!

www.zordis.com, 1.8.2007 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband