Leita í fréttum mbl.is

Æ hvað ég er eitthvað....letileg og lúin í dag.

Flaming-June-c1895-Print-C10019635

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fór á skauta í gær og er ekki frá því að ég hafi fengið smá harðsperrur í handleggina enda engar smá sveiflur sem þarf til að halda jafnvæginu fyrir konu á svelli...lappirnar eru fínar og ég kom heim með alveg nýtt sett af lærvöðvum og afskaplega lögulegan kúlurass.

Ég er bara í draumastuði núna og elska þennan fannhvíta dúnmjúka snjó sem er yfir öllu. 

Hef það á tilfinningunni að núna geti eitthvað fallegt fæðstHeart 

Kannski ljóð um skautandi konu?

Hér er skaut

um skaut

frá skauti

til skauts

Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Skautastelpa með kúlurass  ég er viss um að eitthvað fallegt fæðist hjá svona fallegri konu. 

Væri til í að anda að mér snjónum og finna þyrl hans í kinnum mínum (ekki rasskinnum samt)   Þar fór ég með það en það er sennilega of hrollkallt að vera með beran bossann í snjónum ...

Knús inn í kvöldið!

www.zordis.com, 17.1.2008 kl. 18:39

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst snjórinn alltaf svo verndandi, eins og vera í vöggu.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 19:50

3 Smámynd: Hugarfluga

Gott hjá þér að skella þér á skauta!! Þrái sjálf ekkert heitar en útiloft og langan göngutúr ... sem verður að bíða betri tíma.  Knús á þig.

Hugarfluga, 17.1.2008 kl. 19:59

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært að fara að skauta !!

snjór og snjór, sé ekki mikið af honum hérna.... ekki ennþá !

Bless fallega kona,

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 20:11

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Yndisleg færsla, Katrín!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.1.2008 kl. 20:15

6 identicon

Það fæddist fallegt hjá okkur í dag. Við fengum lítinn frænda í dag

Bryndís R (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 20:25

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Katrín ekki inní myndinni að ég færi á skauta. Ég væri fljótlega hirt upp með kíttispaða. 

Ía Jóhannsdóttir, 17.1.2008 kl. 21:30

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Mikið rosalega er langt síðan ég fór á skauta. Það rifjast upp núna. Auðvitað var það á Tjörninni.  En, ég segi það sama og þú. Ég elska þennan fallega bjarta snjó sem er yfir öllu.

Ágúst H Bjarnason, 18.1.2008 kl. 05:57

9 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég þyrði ekki fyrir mitt litla líf að stíga á skauta núna. Ég er mjög hrædd um að það gæti orðið mín síðasta ferð á þessari jörð.

Steingerður Steinarsdóttir, 18.1.2008 kl. 10:39

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Flott mynd af konunni. frábært hjá þér að fara að skauta.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.1.2008 kl. 19:03

11 identicon

Sæl Katrín. Nýtt sett af lærvöðum eftir eina skautaferð. Er ekki nýji Fitkúrinn þarna fæddur?        Mér finnst þetta flott setning.

Nýtt sett af lærvöðum.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 02:21

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hefði kannski frekar átt að segja mjög styrktir og sterkir þumalvöðvar eftir skautaferð. Held ég hafi skautað með þumlana stífa útí loftið þar sem ég var með svo miklar harðsperrur í þeim..! Þó ég hafi eki skautað í meira en tuttugu og eitthvað ár þá gat ég brunað um svellið og meira að segja gert hring og hvaðeina. Þetta er bara eins og að hjhóla..einu sinni hjólað alltaf hjólað

Í lok eltingarleiksins sem við vorum í..foreldrar að ná börnum..skautaði ég rosa hratt og var einmitt að hugsa hvað ég væri nú klár að vera ekkert búin að detta..hugsunin ver rétt komin í gegn um kollinn á mér þegar ég byrjaði að detta..hægt og rólega datt ég sentimeter fyrir centimeter og gat ekkert gert. Þetta er alveg mögnuð tilfinning alveg þar til maður smellur á rassgatið og hausinn skellur í svellinu..sem betur fer var ég með fínan hjálm og meiddi mig ekki neitt.  Það verður sko ekki langt þar til ég fer aftur..þetta er svo skemmtilegt að bruna svona hratt eins og vonda ísdrottningin eftir svellinu. Með ískalt hjarta og ...segi ekki meir

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.1.2008 kl. 10:35

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er gott að vera í letistuði, og líka gaman að fara á skauta, þú hefur greinilega hitt á rétta mómentið fyrir hvort tveggja.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2008 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband