Leita í fréttum mbl.is

Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn......

veikasti hlekkurinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hver/ Hvað er veikasti  hlekkurinn í íslensku þjóðlífi???

Hvað gerir þessa þjóð veika??? 

Hvað heldur henni saman...hver er hennar styrkur???

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Í veku hlekkjunum er óheiðarleiki og svik. Í sterku hlekkjunum er heiðarleiki og virðing.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 13:30

2 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Kjósendur eru bæði veikasti og sterkasti hlekkurinn, kjósa yfir sig sama sukkið og spillinguna aftur og aftur en virðast ekki gera sér grein fyrir að þeir geta knúið fram breytingar.

Ingi Geir Hreinsson, 24.1.2008 kl. 14:00

3 Smámynd: www.zordis.com

Þú spyrð kona .... hugsandi ætla ég að spekulera en mér finns það geta verið svo margt og meira en kjósendur og þeir sem verða kosnir af fjöldanum. 

Heilbrigði og viðhorf á sjúkdóma og sjúklinga ... Ég er búin að skrifa og stroka út og skrifa meira og stroka meira út.

 ég ætla að láta hugsandi engilinn minn hvísla að mér einhverju sætu og senda þér það yfir hafið!  Svo getum við fengið okkur stjörnu kaffi langtíburtistan .... 

www.zordis.com, 24.1.2008 kl. 14:28

4 identicon

Til upprifjunar:

Ólafur F. í Silfrinu 2. des. 07
Hér er slóð á viðtal við Ólaf F. Magnússon í Silfri Egils 2. desember síðastliðinn:

http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/geyma/olafurf.2007-12-02.wmv


Kristján Þór Júlíusson um nýja meirihlutann í Reykjavík:
http://www.visir.is/article/20080124/FRETTIR01/80124016


Hér er því haldið fram að sjálfstæðismenn hafi lekið upplýsingum um heilbrigðisvottorð

Ólafs F,Magnússonar:

http://eyjan.is/hux/2008/01/22/bjortu-hli%c3%b0arnar/


kv. gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 17:42

5 identicon

Sæl Katrín.

Það er Hárrétt.

Ég hef alltaf skilið þessa setningu svo : Sá veiki með sínum litla styrkleika heldur saman keðjunni sem þó samstendur af mörgum hlekkjum með meiri syrkleika en sá  veiki hefur .

En alli þurfa þeir að mynda keðjuna eigi hún    að HALDA.

Takk fyrir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 21:59

6 identicon

Sæl Katrín.

Ég tók ekki eftir spurningunni við hlið myndarinnar. Og nú er stórt spurt.

þessi umræddi    VEIKI HLEKKUR ER " LYGIN".Hún slitnar við sannleikans dyr.

þjóðin er er haldin GRÆÐGI og VALDAGRÆÐGI sér til handa.

Það þurfa alltaf að verða einhvers konar HAMFARIR .

ÞAÐ ERU EINU SKIFTIN SEM HÚN STENDUR SAMAN.OG HANA SKORTIR TRÚFESTU.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Hugarfluga

Þegar stórt er spurt .... og allt það. Ég held að það sem geri keðjuna alltaf veikari sé öfund og græðgi, en það sem styrki hana sé trygglyndi og hjartagæska.  Ætli ég sé ekki afskaplega einföld í skilgreiningu minni?

Hugarfluga, 24.1.2008 kl. 22:34

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við sjálf erum veikasti hlekkurinn, við sem eigum að veita aðhald, en höfum ekki gert það, svo þegar allt er komið í óefni, þá fyrst förum við af stað, og erum reið, heiftug, og látum það bitna á þeim sem fyrir eru.  Ekki endilega þeim sem hafa staðið fyrir því sem er að gerast, við höfum leyft þessi svik, pretti og óheiðarleika svo lengi án þess að bregðast við.  Og nú uppskerum við eins og við höfum sáð.  Ég ætla bara að vona að það verið ekki að harmleik, þess sem er ef til vill veikastur fyrir.  Ég segi bara aðgát skal höfð í nærveru sálar, hvort sem okkur finnst sá góður eða slæmur.  Við tökum ekki til baka orðin hlut, ef við knýjum einhvern út í fenið, þá sitjum við uppi með það, sem eftir er, ég vona bara að fólk átti sig á því, áður en það er ef til vill of seint.  En ég er gáttuð á hatrinu og heiftinni í fólki, sem ég hélt að væri dagfarsprútt og gott fólk, en er að missa sig algjörlega í lágkúru og dónaskap.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2008 kl. 17:54

9 Smámynd: Vilborg

Takk kærlega fyrir að láta mig vita af blogginu hjá nöfnu minni.  Jiiii ég fékk bara gæsahúð og varð hálf feimin bara við lesturinn, vissi hreinlega ekki hvað ég gæti skrifað í komment við þessu.  Gaman að sjá hvaða áhrif þessi orð höfðu á hana og reyndar fleiri því að hann var vísr eitt aðal umræðuefnið á kaffistofum bæjarins í gær...hehehe!

Vilborg, 25.1.2008 kl. 22:00

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er sammála Inga Geiri. En einnig held ég að drambsemi þjóðarinnar sé að draga hana í svaðið. Við erum stærst, best, flottust, ríkust, hamingjusömust... á blaði einhvers staðar úti í heimi. Á meðan við rembumst við að viðhalda þessari ímynd gleymum við að hlúa að okkar eigin fólki; öryrkjum, fötluðum, öldruðum, börnunum og svo mætti lengi telja.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.1.2008 kl. 02:22

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kvitt og knús,

Bless

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 13:38

12 identicon

Sæl Jóna Á Gísla.

Þú gast ekki sagt þetta betur" Við erum stærst,best,flottust. ríkust,hamingjusömust...Á BLAÐI EINHVERS STAÐAR ÚTI Í HEIMI." og svo,framh........                               EN í RAUN?

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 02:58

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er sammála Þórarni Þ. Gíslasyni.

Svava frá Strandbergi , 28.1.2008 kl. 00:43

14 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Veikast hlekkur þjóðarinnar er andvaraleysi, meðvirkni og þýlyndi gagnvart valdinu, í bland við þjóðrembu, hroka og skort á umburðarlyndi gagnvart þeim sem eru á einhvern hátt öðruvísi.

Svala Jónsdóttir, 28.1.2008 kl. 19:52

15 identicon

Hvernig líst þér á, engin keðja er veikari en veikasti hlekkurinn og sterkari en sterkari hlekkurinn. 
Samfélagið eru þegnarnir, allir sem einn, sá veikasti og sá sterkasti og allt þar á milli, keðjan er því hvorki veik né sterk heldur stendur hún og/eða fellur með heildinni.

Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband