Leita í fréttum mbl.is

Svona á að vera og gera...Frábær Öldubrjótur!!!

Um daginn þegar ég var að lesa Hugmyndabókina mína..er ekki enn búin að skrifa neitt á auðu blaðsíðurnar..fékk ég góða hugmynd. Reyndar búin að bubbla í maga mínum og kolli lengi, einhvers konar ímynd af því til hvers og hvernig stjórnmál og stjórnmálamenn ættu að vera. Sá fyrir mér að í stað þess að flokkarnir standi og þylji yfir almúgann hvað þeir muni gjöra, og lofa að ef þeir verði kosnir þá muni þeir gera hitt og þetta fyrir okkur. Og við sitjum og bíðum og verðum fyrir vonbrigðum stundum eða gleymum því sem lofað var eins og þeir. Treystum þó því að þegar hlutir eru framkvæmdir þá séu þeir gerðir á bestan hugsanlegan máta með okkar hag að leiðarljósi en það er þó því miður ekki alltaf raunin.

Mér finnst hinsvegar að hlutverk kjörinna fulltrúa þjóðar eigi að hafa það hlutverk að tala kjark og hugrekki, sköpun og framkvæmdagleði í þjóð sína svo hún megi gera margt af því sem þarf að gera sjálf og eins og henni þykir best og hagkvæmast.

Frábært dæmi um þetta heyrði ég svo í fréttunum í fyrrakvöld..þegar þar var tekið viðtal við  konur sem vinna við umönnun aldraðra. Þær  hafa stofnað samtökiin eða félagið Öldubrjót.  Öldubrjóturinn hefur þann tilgang að þjálfa og kenna útlenskum konum að verða virkir þátttakendur í  íslensku atvinnulífi. Ekki bara með því að geta talað íslenskuna betur..heldur með því að læra um bakgrunn og menningu, tónlist og fleira sem gefur þeim betri og sterkari tengingu og skilning á starfi sínu í umönnun aldraðra og betri tengsl við þessa þjóð sem er nú heimaland þeirra. Þetta gerir það líka að verkum að gamla fólkið okkar fær umönnun og samskipti sem gera því líka gott og þörfum þeirra er betur mætt. 

10129528

Stelpurnar sem vinna við þetta alla daga..sjá og vita hvað þarf og hvernig hægt er að leysa málin á sem bestan hátt fyrir alla. Þarna eru þær að mæta á faglegan hátt þeim vanda sem skortur á starfsfólki hefur verið. Þarna verður til gagnkvæm virðing og hjálpsemi og samstaða um að gera vel á þessum vetvangi sem þarfnast svo fleira starfsfólks svo vel megi vera. 

Þegar ein þeirra var spurð af fréttamanni..."En er þetta ekki hlutverk stjórnvalda að gera  þetta sem þið eruð að gera", svaraði hún.." Nei ekkert endilega...Við erum grasrótin og sjáum hvað þarf að gera þar sem við lifum og hrærumst í þessu umhverfi og vitum því betur hvað og hvernig best er að hafa hlutina og okkur finnst bara gott að geta lagt okkar af mörkum. Í samfélaginu þurfum við öll að vera með"

NY1~Doors-of-New-York-Posters

Og auðvitað á hlutverk stjórnvalda  m.a að vera það að styðja við og virkja svona flotta vaxtarsprota sem verða til þar sem þeirra er þörf. Ég tek ofan fyrir ykkur sem sköpuðuð Öldubrjótinn....og veit að hann á eftir að gera meira en að kljúfa ölduna..sé fyrir mér marga múra verða klofna af fólki eins og ykkur. Og það er málið. Að brjóta niður múrana og byggja svo brýr á milli í staðinn. Það er alvöru samfélag og þar sem sköpunarkraftur og vit þjóðar fær að njóta sín. Að hugarfarið einkennist ekki af uppgjöf og vanmætti þegar staðið er frammi fyrir vandamálum eða nýjum verkefnum heldur baráttu fyrir að finna lausnir sem virka. Og gera það svo bara!!!

Næst er svo að finna lausn á launamálum þessara hópa.

 Það var þessi frétt sem gladdi mig svo...var einhvernveginn alveg í réttum anda fyrir nútímaþjóðfélag og fólk sem gefst ekkert upp.

Og kannski er einhverskonar hugmynd/tilfinning að verða til um að á endanum þurfum við ekki að treysta einhverjum öðrum þarna úti fyrir velferð okkar og framþróun heldur sé það í okkar hendi..og það er góð tilfinning.  Auðvitað þurfum við einhverskonar stjórnsýslu en meginhlutverk hennar ætti að vera að virkja þjóð sína á jákvæðan hátt, tala í hana kjark og þor, gefa henni pláss til að skapa sitt samfélag og hafa pláss fyrir fullt af svona Öldubrjótum.

Það eru svo margir möguleikar og margar leiðir hægt að fara sem opna dyr að betri útkomum. Virkjum sköpunarkraft og hugmyndaauðgi. Það eru mestu auðævin!! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrði hluta af þessu viðtali og fannst það frábært.  Sumt fólk einfaldlega eru bara englar í þjóðfélaginu og skapa allt það góða í kring um sig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2008 kl. 10:00

2 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Þetta er frábært framtak.  Það eru allt of margir sem bíða eftir því að eitthvað gerist í stað þess að líta á sig sem hluta af "gangverkinu"

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 7.3.2008 kl. 11:26

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Er ekki merkilegast að þegar manni finnst maður skrifa merkilegustu pistlana þá fá þeir minnstu athyglina?? Eða fæstu kommentin??

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.3.2008 kl. 01:05

4 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Mér finnst þetta mjög flottur og merkur pistill hjá þér, Katrín, og ég er sammála þér í meginatriðum.

Ég held samt að þessar konur hafi byrjað á þessu í nauð, en ekki endilega af vilja. Ég hitti oft konurnar, sem unnu með mér á einu af hjúkrunarheimili bæjarins, og þær eru allar að verða bilaðar á því, að geta aldrei talað móðurmál sitt við samstarfsfólk sitt, né kennt því neitt, vegna þess að þau skilja lítið.

Og svo er það bara málið, fyrst ríkið gerir ekkert í þessu, þá verða þær að taka til sinna ráða, en ættu þær ekki að fá sérstök laun eða greiðslur út á þetta??? Það finnst mér.....

Lilja G. Bolladóttir, 8.3.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 310924

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband