Leita í fréttum mbl.is

Þrír fuglar í hári mínu....

200172593-001..sem syngja samt sama sönginn.

rauði syngur ..Vertu þú sjálf/ur því kærleikur er cool.

Það er bara flott að láta sig aðra varða og gera það sem hjartað býður en ekki bankareikningurinn. 

blái syngur...Höfuð herðar hné og tær,

þú hin unga mær. Dulin skilaboð um fleiri og betri magaæfingar

Og sá brúni syngur...Það er engin leið að kreppa tær í kreppu í c dúr. Svo allir saman nú og rétta úr sér. Ég bara neita mér og þér um að trúa á kreppuna...í kreppum verður alltaf eitthvað mikilævgt til og ég stend með því.

Og ég velti fyrir mér hvern þeirra ég skuli hlusta á...lagið er hið sama en textinn ekki eins og höfðar til mismunandi  tilfinninga í konu.

Það er engin leið að hætta að syngja svona....Whistling popplag í Bloggdúr.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hlusta á þenna rauða, þá fylgja hinir á eftir

Ragnhildur Jónsdóttir, 6.4.2008 kl. 00:15

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tek undir með Röggu, en svo er líka oft gott að hlusta á Krumma, hann er snjall.  Kær kveðja til þín

Ásdís Sigurðardóttir, 6.4.2008 kl. 00:42

3 Smámynd: www.zordis.com

Elskulegu fuglarnir okkar!  Söngur sálarinnar kallar og þú hlustar með galopið hjartað.  Það er engin leið að hætta, haltu áfram að vera yndislega þú og þá hefuru fuglinn í hendi þér.

Hjartans knús til þín!

www.zordis.com, 6.4.2008 kl. 08:44

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það er engin leið að hætta  enda vor í lofti og Tjaldurinn vorboðinn minn kominn í móann minn

Eigðu góðan dag, það ætla ég að gera og eyða deginum með systir minni, við báðar grasekkjur og hvað er betra en verja deginum með systur sinni

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 6.4.2008 kl. 09:55

5 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Skemmtilega uppsettur pistill. Ég naut þess að lesa hann.

Steingerður Steinarsdóttir, 6.4.2008 kl. 09:57

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gaman að lesa pistilinn þinn eins og vanalega.

Svava frá Strandbergi , 6.4.2008 kl. 13:48

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sá rauði höfðar til mín.  Reyndar þeir allir, en gaman að þessu Katrín mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 13:49

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Leit við og naut lestursins að vanda.

Marta B Helgadóttir, 7.4.2008 kl. 00:00

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Fuglarnir eru æðri verur og boða alltaf eitthvað nýtt og yfirleitt gott sama hvaða lit þeirra skrúði er.

Bors inn í bjarta viku Katrín mín.

Ía Jóhannsdóttir, 7.4.2008 kl. 08:41

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Frábærar pælingar !

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.4.2008 kl. 22:42

11 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Þú bloggar alltaf svo fallega

Björg K. Sigurðardóttir, 8.4.2008 kl. 18:10

12 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Innlitskvitt og að vanda gaman að lesa bloggið þitt. Gangi þér vel með þín plön.

Kær kveðja frá Als

Guðrún Þorleifs, 9.4.2008 kl. 07:25

13 Smámynd: Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador

Takk fyrir mig. 'Eg er sko rauð í gegn Ekki alltaf hentugt he he

Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador, 9.4.2008 kl. 12:22

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Blessi þig

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.4.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband