Leita í fréttum mbl.is

Óli lokbrá, yfirlið karlmennskunnar og föstudagurinn 13.

jbjjh

Er búin að vera mjög upptekin við að blogga ekki. Er mest að hugsa um fjölskylduna og fólkið mitt þessa dagana. Og vinnurnar mínar. Í þessari röð. Theodóra súperstelpa datt á hjólinu sínu og fékk risagat á hnéð og við heimsóttum slysó til að láta laga skinntætlur og blóðstrauma sem láku um allt. Pabbinn beið frammi þar sem hann verður alltaf svo undarlega hvítur í framan og magnlaus þegar svona stendur á..bróðirinn var hetjulegur og rak nefið ofan í sárið meðan systirin stóð sig eins og kvenhetjum sæmir á  ögurstundum. Nokkrum mínútum síðar slóst hann í félagsskap föðurins frammi á gangi og hné svo niður skjannahvítur og rænulaus og vaknaði á sjúkrabörum með lappir uppí loft og lækna allt um kring...hehe. Ég mamman stóð vaktina þar til að öll óhreinindi höfðu verið hreinsuð upp úr blóðugum og djúpum ginningargöpum með tannbursta og öðrum tólum og sáraumbúðir komnar á sinn stað. Svo fórum við öll og fengum okkur ís til hressingar eftir annasaman dag.

Svo er búið að umbylta íbúðinni því langþráður vinur frá englandi sem flutti til ameríku er að koma á föstudag til að vera með Nóa vini sínum í 3 vikur og þeir þurfa sitt plás strákarnir. Það er alveg dásamlegt að endurgera hvert herbergi og skúra úr skúmaskotum og nú er allt hreint og fínt nema fatahrúgan sem kom í ljós undir rúmum og kommóðum og hefur nú troðfyllt heilt baðherbergi. í vikunni verður því haldið í ferð til systur minnar sem á iðnaðarþvottavél og þurrkara þar sem óhreinindin verða skoluð burt á einu síðdegi og fjölskyldan getur gengið um í hvítþvegnum flíkum sínum með vorilmi og pressubrotum og litið út eins og fannhvítir sautjándajúní englar.

caraman060500266

Einhver spurði hvað ég ætlaði svo að gera á föstudaginn. Ég veit ekkert um það nema að ár bætist við jarðarveru mína hér og ég veit hreint ekkert hvort það sé efni í einhver stórhátíðahöld. Fæ mér kannski fána og hlusta á Þursana í bænum einhverjum dögum síðar. Og hugsa meðan ég japla á bleikum bómullarís um hvað þetta sé allt saman. Og hvort við megum eiga von á því einn góðan veðurdag að njóta þeirrar gæfu að búa í samfélagi sem sé engu líkt vegna góðmennsku og gæfu allra þeirra sem landið byggja. Það væri alveg ágætis afmælisgjöf fyrir hálfníræða konu eins og mig.

Að hér rikti samkennd, samhugur og vit til að koma nauðsynlegum hlutum í verk og forgangsraða eftir hjartanu og nota svo hausinn til að fylgja þeim verkreglum eftir.

En nú verð ég að leggjast til hvílu enda klukkan langt gengin yfir minn venjulega vitjunartíma Óla Lokbrá sem færir mér dýrðlega drauma á silfurfati ef lygni ég bara aftur augunum á réttum tíma. Og mogginn bíður á stéttinni fyrir utan eftir að vera borinn í hús fyrir sjö í fyrramálið. Ég þekki minn vitjunartíma og þann hrukkubana sem svefninn er.

En ég er allavega búin með bloggskylduna í bili og bið allar góðar vættir að vaka yfir mér og mínum, þér og þínum og okkur öllum í kór á þessum ögurstundum þar sem allt getur gerst. Líka allt hið góða. Ekki gleyma þvíHeart

untitledkisur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að heyra frá þér.  Það hefur ekki verið gott að fá þetta risasár á fótin, elsku stelpann, karlmenn eru oftast hetjur í tali og þó, nei þeir eru hetjur bara í öðru en við.  Hafðu það gott mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 00:24

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knúsaðu Teddý og Nóa frá mér.  Njóttu vikunnar framundan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2008 kl. 00:33

3 Smámynd: www.zordis.com

Ekki gott ad fá gat á hnéd en ísinn á eftir hefur verid alldeilis hressandi fyrir konur sem kalla .....

Ég vaeri alveg til í idnadarvél, er reyndar ad spá í ad kaupa mér stóra STÓRA vél til ad létta med okkur gangandi englum.

Knús inn í daginn zinn!

www.zordis.com, 9.6.2008 kl. 06:39

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ó já, ég er lík of upptekinn til að sinna blogginu sem best !

en allt hefur sinn tíma, og núna er ég að fara á síðasta fundinn fyrir sumarfri og á föstudager ferð yfir hafið til stóra landsins sem er oftast að gera allt vitlaust ! 

hafðu fallega vikur og aðra líka

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 07:10

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 07:13

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Nauðsynlegt að hreinsa til að minnsta kosti einu sinni á ári.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.6.2008 kl. 10:21

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gaman að fá loksins LANGA færslu frá þér. Góðar batakveðjur til krakkanna þinna! Gónótt, ha´det så godt, så godt.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.6.2008 kl. 22:51

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Kveðja inn í góðan dag

Ía Jóhannsdóttir, 12.6.2008 kl. 09:50

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kær kveðja til þín Katrín mín

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2008 kl. 19:48

10 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Til hamingju með morgunndaginn

Kær kveðja frá Als

Guðrún Þorleifs, 12.6.2008 kl. 20:36

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða nótt Katrín mín.  Það rifjaðist upp fyrir mér svona skinntætluhjólaslys þegar ég var svona um það bil níu ára, örið var ennþá síðast þegar ég gáði  Einhvernveginn gleymi ég þessu aldrei.  En ég er viss um að prinsessan þín man bara eftir ísnum og skemmtilegri samverustund með fjölskyldunni.  Herrarnir munu örugglega ekki vilja muna neitt

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2008 kl. 00:32

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Elsku Katrín mín. Innilega til hamingju með afmælið, snúllan mín. Þú færð heldur betur gott veður.

Knús frá Skaganum ... og bráðum sumarbúðunum, er að fara þangað á eftir. 

Guðríður Haraldsdóttir, 13.6.2008 kl. 12:26

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn

Hrönn Sigurðardóttir, 13.6.2008 kl. 13:24

14 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Innilega til hamingju með daginn, Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Markús frá Djúpalæk, 13.6.2008 kl. 13:40

15 Smámynd: www.zordis.com

Ég hugsaði til þín nokkuð oft í dag og hef ekki komið því í verk að senda þér línu á meilinu!

Til hamingju með daginn þinn elsku Katrín með von um að þú glóir sem fegursta stjarnan á himnum. 

www.zordis.com, 13.6.2008 kl. 21:46

16 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Innilegar hamingjuóskir með afmælið,Katrín mín. Vonandi grær sárið fljótt. Það er undarlegt hve karlmenn eru stundum viðkvæmir.

Það rifjaðist líka upp fyrir mér hjólaslys. Ég var níu ára og keðjan slitnaði og þeyttist í annan kálfann á mér. Ég fann eiginlega ekkert til , bara dofnaði upp því mér brá svo. Enn meira brá mér, þegar ég sá stóran bita út kálfanum á mér, liggjandi á götunni.

Sárið var samt ekki saumað og ég skil ekki hvers vegna, nú þegar ég hugsa um það. En, enn þann dag í dag er ég með stórt ör á kálfanum með hvítri skænishúð yfir.

Svava frá Strandbergi , 18.6.2008 kl. 00:55

17 Smámynd: www.zordis.com

Ég sendi þér meil sem ég vona að þú hafir fengið á útvarpsmeilið .....

Knús á þig og þjóðhátíðarbros yfir hafið.

www.zordis.com, 18.6.2008 kl. 16:23

18 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Já, - og til hamingju með afmælið, Katrín kær!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.6.2008 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 310915

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband