Leita í fréttum mbl.is

Sögulegur borgarafundur í Iðnó í kvöld

Var að detta inn úr dyrunum eftir magnað kvöld í Iðnó. Fyrir þá sem vilja fá samantekt og niðurstöðu fundarins og upplýsingar um næstu borgarafundi er mailið borgarafundur@gmail.com og þá munuð þið fá sendar upplýsingar til baka.

Ég þarf aðeins að sofa á því sem ég upplifði í kvöld..en ég er ekki frá því að nú hafi verið brotið blað í sögu þjóðar og ég hef það á tilfinningunni að samkenndin góða sé komin til að vera. Það var kraftur og hiti í mönnum og konum og nú er bara um að gera að beina þessari alíslensku orku í góðan og uppbyggilegan farveg. Það er mikil ólgan og mjög mikilvægt að nú verði vel haldið á málum. Hvet ykkur eindregið til að mæta á næstu borgarafundi því það var virkilega gott að heyra hvað fólki liggur á hjarta og heyra hvernig alþingismenn svöruðu fyrirspurnum fólksins. Enda var líka alveg kominn tími á að við fengjum tækifæri til að tala saman án þess að þurfa að gera það í gegnum fjölmiðla.

Ég hins vegar neita að trúa mínum eigin augum núna þegar ég horfi á 10 fréttir á RÍKISSJÓNVARPINU. sjónvarpi allra landsmanna og sé þessa margumtöluðu þöggun sem er í gangi. Ekki eitt orð um borgarafundinn og það var fullt út úr dyrum. Hvað er eiginlega í gangi??? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Sigurlína Ólafsdóttir

Algörlega sammála. Ég beið spennt eftir 10 fréttum ríkissjónvarpsins, en þar var ekki sagt orð um fundinn. Þar ríkti algjör þögn í sjónvarpi allra landsmanna. Skrítið.

Sigurlína Ólafsdóttir, 27.10.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jæja mín aðeins of fljót á sér..en þetta var bara svo flottur fundur að mér finnst hann eiga að vera í hverjum fréttatíma. Sérstaklega vegna þess að það gefur fólki von á þessum tímum að það sé kannski hægt að gera eitthvað til að verja okkur og að við erum að tala saman og reyna að finna leiðir saman út úr vandanum og inn i betri framtíð.

Rosalega þarf ég að skrifa niður fyrir næsta fund það sem mér liggur á hjarta. Svo minni ég á mótmælin á Austurvelli næsta laugardag klukkan 15.00. Nú þýðir ekkert að gefa neitt eftir. Ég horfi bara á litlu ömmubörnin mín og krakkana mína og þá halda mér engin bönd. Mín bara mætt í bomsum út að berjast fyrir framtíðinni þeirra sem þegnar þessa lands en ekki þrælar. Nú bara verðum við að standa í lappirnar kæru samferðamenn og konur. Good night

Jenný.....hver er Gregory?? 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 00:00

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er Gregory krúttið þitt.

En þú ert flott Katrín, no doubt about it.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 00:03

5 Smámynd: Kreppa Alkadóttir.

Ég verð að segja að mér þykir ekki mikið vit í því að boða til svona fundar og biðja stjórnmálamenn eða forsvarsmenn þeirra að mæta til að taka þátt og búa og baula á það þegar þeir ætla til máls að taka!

Hver er tilgangurinn með því og haldið þið sem að fundinum standið og þið sem mættuð að það munu skila einhverju öðru en að það mun enginn stjórnmálamaður mæta næst?

Ég myndi alla vega ekki fyrir mitt litla líf hafa nokkurn áhuga á að mæta og svara spurningum ef þetta væri móttakan.

Annað mig langar að spyrja hverju er verið að reyna að ná fram með þessum mótmælum?

Eru einhver markmið með þeim og einhverjar lausnir í boði eða er þetta bara svona mæta til að mótmæla einhverju?

Kreppa Alkadóttir., 28.10.2008 kl. 00:20

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kreppa mín....til að komast að tilganginum væri vert að mæta og sjá og heyra með eigin augum að á borgarafundinum  fór ekki fram mikið pú né baul.....og eftir þennan fund í kvöld held ég að stjórnmálamenn munu slást um að fá að koma og tala við fólkið. En það er einmitt hugmyndin með svona borgarafundum að hittast og tala saman. Fólkið og ráðamennirnir. Borgarfundur er ekki mótmælafundur. Og hverju er verið að reyna að ná fram???  Virku lýðræði auðvitað!!!

p.s gott að þú ert ekki stjórnmálamaður Kreppa mín..nógu eru þeir vitlausir margir sem við eigum samt

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 00:31

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Rakst á þennan link hjá Tyrfingssyni og vil ekki týna honum svo ég geymi hann hér þar til ég hef tíma til að horfa betur á hann. Fjallar um að eina lausnin gegn kapitalismanum sé alvöru lýðræði!!

http://video.google.ca/videoplay?docid=7382297202053077236

Endilega kíkið og segið mér hvað ykkur finnst. Og nú fer ég að sofa. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 00:51

8 identicon

Sæl Katrín.

Ég hef verið einn af þeim sem hef talað fyrir daufum eyrum um þessa ÞÖGN stjórnvalda og Fjölmiðla Ríkisútvarpsins,sem er þeirra aðalvopn gegn fréttafrelsi og fréttaflutningi.

Við eigum EKKI og megum EKKI láta kúga OKKUR svona.

Ég bíð svo spenntur frétta frá þér. Kærleikskveðjur.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 02:53

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært!

Kærleiksknús

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 05:36

10 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Það er auðvitað jákvætt að það hafi verið fjallað um borgarafundinn fyrirfram í Kastljósi en óskiljanlegt að það hafi ekki verið minnst á hann einu orði í 10-fréttum Sjónvarpsins! Ég er trúi því nefnilega sem þú segir að þetta hafi verið svo „flottur fundur“ að það ætti að fjalla um hann í öllum fréttatímum. Þögnin elur á þeirri slæmu tilfinningu að þrátt fyrir að fólk sé farið að vakna til vitundar um það að samstaðan skipti máli þá standi til að sniðganga rödd þjóðarinnar...

Rakel Sigurgeirsdóttir, 28.10.2008 kl. 05:53

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

minnispunktar fyrir pistil um borgarafund..þar sem ég þarf að fara út núna og get ekki skrifað allt sem mér liggur á hjarta set ég inn minnispunkta sem hafa verið að snúast í höfðinu á mér yfir morgunverkunum og þurfa einhversstaðar að verða festir áblað eða blogg

verkfærin sem eru að verða til og munu breyta öllu og skapa farveg fyrir nýjar leiði og nýtt samfélag...atvinnuleysi og gjaldþrot

ástæðan fyrir að við nennum stjórnmálamönnum ekki meir..mótsagnir og lygar?? Skýrt dæmi á borgarafundinum í gærkveldi.

Og svo verð ég að segja ykkur frá draumnum sem mig dreymdi sl nótt. Ég var stödd í einhverskonar smíðaverkstæði eða vinnustofu ásamt ungu folki, börnum og unglingum sem voru að smíða líkan að nýrri samfélagsgerð. Það voru alls konar tannhjól og flóknar samsetningar og ég skildi ekkert í þessu enda lítill verkfræðingur í mer. Þau bara hlógu og sögðu alltaf aftur og aftur að það skipti engu máli. Aðalatriðið væri að hugsa út fyrir boxið og nálgast þessa smíði frá allt annari átt en ég héldi að ætti að gera eða mér hefði verið kennt. 

Og síðan ég vaknaði er bara allt á fullu innra með mér og ég hef á tilfinningunni að eitthvað kúl muni brjótast upp á yfirborðið fyrr en síðar. Við lifum á spennandi tímum fólk!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 08:37

12 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Vonandi gengur þetta vel.... en samt hef ég nokkrar áhyggjur að þjóðarsálinni. Hrífst gjarnan með.... tekur þá í nokkurn tíma og svo nennir hún þessu ekki.... sem sagt, skortur á úthaldi.

Hvort fjallað er um svona í fréttum er varla von... fjölmiðlar velja hvað þeir hafa áhuga á. Hverjir eiga fjölmiðlana ? ráð að velta því fyrir sér.

Jón Ingi Cæsarsson, 28.10.2008 kl. 08:50

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sannfærð um að við lifum á breyttum tímum. Og að það muni eitthvað gott koma út úr þessum hrærigraut.  Og ekki er verra að hafa svona fólk eins og þig, til að upplýsa og uppfræða okkur sem erum svo langt í burtu.   Takk Katrín mín, ég stend heilshugar með ykkur í baráttunni, þó ég komist ekki á fundina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2008 kl. 11:27

14 Smámynd: Kreppa Alkadóttir.

Þakka þér fyrir að vísa til þess að ég sé vitlaus, alltaf gaman að eiga uppbyggilegar umræður við fólk eins og þig.

Ég veit vel hverju var verið að reyna ná fram með þessum fundi enda var það ekki spurning mín heldur var mín spurning þessi:

Hverju eru Hörðu og Co að mótmæla á Laugardögum, hver er yfirskrift mótmælana, hverju er verið að reyna að ná fram með þeim?

Fólki finnst alveg fáránlegt að mæta á mótmæli ef það veit ekki hverju er verið að mótmæla og þar sem fyrstu mótmælin snérust um að koma Davíð frá völdum en þau næstu að mótmæla auðmönnunum þá er fólk orðið ringlað og vill fá að vita hverju á og er verið að mótmæla!

Og kannki með því að setja það skýrt fram munu fleiri en 500-1000 manns mæta næst!

Kreppa Alkadóttir., 28.10.2008 kl. 12:43

15 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

þetta fréttamat hjá ríkisfjölmiðlinum er bara í takt við það sem við femínistar höfum séð í mörg ár. Það er hins vegar með því að láta ekkert þöggun og ýmis konar önnur viðbrögð slá okkur út af laginu sem okkur hefur miðað áfram. Bara að sá hugsunarháttur og lífsýn sem við höfum barist fyrir hefði verið komin inn í stjórn ríkisins fyrir áratug. þá hefði ekki svona farið fyrir Íslandi.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.10.2008 kl. 12:45

16 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kreppa ..þar sem þú virðist horki hafa verið   á mótmælunum á Austurvelli sl laugardag né borgarafundinum í gærkveldi þá hefðir kannski gaman af að lesa ræðuna sem var flutt á báðum stöðum af Einari Má. Þá þarftu ekkert að velta þér frekar upp úr getgátum um einfaldan boðskap og ruglingslegar kröfur.

Set hér inn ræðuna hans fyrir alla sem vilja lesa...enda er hún GÓÐ!!!!

Höfundur

Hrannar Baldursson
Hrannar Baldursson

Hrannar hefur mikinn áhuga á að grafa undir yfirborðið og velta upp því sem er á felum undir yfirborðinu. Einnig þykir Hrannari gaman að skrifa, er svolítið sjúkur í leyndardóma skákarinnar, þykir spennandi að ræða við fólk um sameiginleg áhugamál, horfa á og pæla í góðum bíómyndum, smíða vefsíður og grúska í möguleikum upplýsingatækninnar, og þykir ekkert betra en þegar hans nánustu líður og gengur vel. Hrannar hefur áhyggjur af efnahagsástandi þjóðarinnar og vill láta gott af sér leiða í baráttunni fyrir betri tíð, sjálfsvirðingu og heiðri á Íslandi. Á unglingsaldri var Hrannar sjónvarpsfíkill og spilaði mikið af tölvuleikjum í Sinclair Spectrum, Commodore 64, Amiga og PC með Windows 3.0 og Windows 95, en nennir varla að kveikja á sjónvarpstækinu lengur eða spila tölvuleiki. Bestu fréttirnar fást með eigin rannsóknum og miskunnarlausri notkun á Google, frekar en að láta mata sig með viðhorfi eða sjónarhorni einnar fréttastofu eða fréttamanns.

Tenglar

Áhugavert

Mínir tenglar

Okt. 2008

SMÞMFFL
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031 
//Fyrri'; var blog_calendar_next = new getObj('blog-calendar-next'); blog_calendar_next.obj.innerHTML = ''; blog_calendar_next.obj.innerHTML = 'Næsti'; } //]]>

Athyglisvert

Smelltu hér:

Ég er á þessum listum

// 5 ) { return false; } // Allir mega if( ratings_def == 1 ) { // Athuga cookie var user_id = get_user_id(); if( !user_id ) { user_id = 0; } var cratings = readCookie( 'ratings' ); if( cratings ) { var parts = cratings.split( ',' ); for( var i in parts ) { if( parts[i] == entry_id ) { log( "I found that cookie!" ); return false; } } } var l = new LINA({ comp: "/utils/lina_methods", method: "send_rating", with_context: 1, args: {rating: r, entry_id: entry_id, author_id: user_id}}, send_rating_cb ); jQuery(obj).parent().find('img').unbind().css('cursor','default'); // Einungis innskráðir notendur } else if( ratings_def == 2 ) { var logged_in = lina_is_logged_in(); if (logged_in) { var l = new LINA({ comp: "/utils/lina_methods", method: "send_rating", with_context: 1, args: {rating: r, entry_id: entry_id, author_id: get_user_id()}}, send_rating_cb ); jQuery(obj).parent().find('img').unbind().css('cursor','default'); } else { alert( 'Aðeins innskráðir geta gefið einkunn á þessu bloggi.\nSkráðu þig inn hér að ofan til að gefa einkunn.' ); } // Einungis tilteknir notendur } else if( ratings_def == 3 ) { // Er notandinn á lista yfir leyfða notendur? var l = new LINA({ comp: "/utils/lina_methods", method: "send_rating", with_context: 1, args: {rating: r, entry_id: entry_id, author_id: get_user_id(), restricted: 1}}, send_rating_cb ); jQuery(obj).parent().find('img').unbind().css('cursor','default'); return false; } else { return false; } return false; } function get_user_id() { var cookie = readCookie('blog_reader'); if (!(cookie && cookie.length)) return false; return cookie.split(":")[0]; } function send_rating_cb(resp) { if( resp.msg ) { alert( resp.msg ); } if( resp.ok ) { //displayRatings ratings[resp.entry_id] = resp.current_rating; rating_set( resp.entry_id, 1 ); } } // initCallback if( ratings_def != 0 ) { addInitCallback( rating_init ); } //]]>

einar_mar

Einar Már Guðmundsson skrifar magnaða grein í Morgunblaðið um þá kreppu sem læðist yfir landsmenn þessa dagana. Þar sem að ég hef mikið pælt í og rannsakað þessi mál og einnig skrifað mikið um þetta sjálfur sé ég að þarna fer snilldarpenni sem skrifar beitt en með mannúð um ástandið sem ríkir í dag.

Ég vil endilega að sem flestir lesi þessa grein og leyfi mér að birta hana án samráðs við Einar Má, en fjarlægi hana að sjálfsögðu biðji hann mig um það:

 

Hvort sem sagan
er línurit eða súlurit
í auga hagfræðingsins
er heimurinn
kartafla í lófa guðs.

***

Vissulega er hinn frjálsi maður
ekki lengur veginn með vopnum,
ekki höggvinn í herðar niður
eða brenndur á báli.
Sem slíkur gæti hann öðlast samúð
sagnritara og orðið gjaldgengur
á myndbandaleigum framtíðarinnar.
Þess í stað er honum svipt burt
með snyrtilegri reglugerð
og málinu skotið til markaðarins
sem mállaus vinnur sín verk.

***

Ég byrja á smá ljóðabrotum, venjunni samkvæmt, en það er líka til mannætubrandari sem er einhvern veginn svona: Mannæta flýgur á fyrsta farrými. Flugfreyja kemur með matseðil, skrautlegan með nokkrum valkostum. Mannætan er afar kurteis, eins og mannætur eru víst við fyrstu kynni. Mannætan rennir augunum yfir seðilinn og segir svo við flugfreyjuna: Ég sé ekkert bitastætt á matseðlinum. Vilduð þér vera svo vingjarnlegar að færa mér farþegalistann?

Ég ætla ekki að fara að líkja auðmönnum Íslands, sem komið hafa okkur á kaldan klaka ásamt stjórnvöldum, við mannætur, ekki í bókstaflegri merkingu, en eftir að hafa fengið nánast allt upp í hendurnar, banka og ríkisfyrirtæki, virðast þeir samt hafa sagt við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir: Það er ekkert fleira bitastætt á matseðlinum. Vilduð þið vera svo vingjarnleg að rétta okkur þjóðskrána?

Og stjórnvöld ábyrgjast heilt spilavíti, rússneska rúllettu, og niðurstaðan er ónýtt mannorð heillar þjóðar – og við sem vorum svo stolt og áttum stundum ekkert nema stoltið. Aumingja Jón Sigurðsson í nepjunni niðri á Austurvelli og Jónas Hallgrímsson, svo laglegur í frakkanum. Hvar er nú andi frönsku byltingarinnar og þýsku rómantíkurinnar þegar það hafa verið sett á okkur hryðjuverkalög þar sem við megum dúsa með skuggalegustu þjóðskipulögum heims og þjóðhöfðingjum sem enginn vill hitta í myrkri.

Hver Osama bin Laden er í þessu dæmi skal ósagt látið, en margir af auðjöfrunum eru flúnir land og láta ekki ná í sig eða aka um með lífverði sér við hlið. Verður ekki allt tal um turnana tvo í íslenskum stjórnmálum dálítið kaldhæðnislegt í þessu samhengi? Hafa þeir ekki orðið fyrir hryðjuverkaárás, jafnvel sjálfsmorðsárás? Eru þeir ekki hrundir og það af eigin völdum? Ég ætla heldur ekki að líkja neinum við feðgana Kim Yong Il og Kim Il Sung, en stjórnvöld og eftirlitsstofnanir þeirra virðast hafa sagt við auðmenn þessa lands þegar þeir báðu þau um þjóðskrána: Já, gjörið þið svo vel. Er ekki eitthvað fleira sem við getum gert fyrir ykkur?

Þetta eru auðvitað ekkert annað en landráð, hafi það orð einhverja merkingu lengur, og það er því skýlaus krafa okkar sem eigum ekkert nema sjálf okkur og börnin okkar að eignir auðmannanna verði frystar strax, og kerfið hætti að rannsaka sjálft sig. Almenningur vill að fjármálaeftirlitið sé sett af og það og aðrar eftirlitsstofnanir séu rannsakaðar; líka Seðlabankinn, líka ríkisstjórnin. Menn sem hafa haft hagsmuni af sukkinu eru látnir rannsaka sukkið, og fjármálaspillingin teygir sig jafnvel inn í ríkisstjórnina, en við sitjum uppi með risavaxinn reikning, tólf þúsund milljarða, og þeir ætlast til að við borgum, við, börnin okkar og barnabörnin og barnabarnabörnin líka.

Ég hirði ekki um að halda romsunni áfram, slíkur er glæpurinn sem framinn hefur verið, og þessi glæpur hefur verið framinn með vitund stjórnmálamanna, þeirra sem einkavæddu bankana, gáfu þá raunar pólitískum vildarvinum, já létu þá í hendur fjárplógsmanna sem veðsett hafa okkur langt fram í tímann og gert okkur að bónbjargarmönnum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum lánastofnunum.

Við erum gíslar á lögreglustöð heimskapítalismans, því reikningurinn sem skilinn var eftir á veitingahúsi hans er svo stór að enginn getur borgað hann og ríkisstjórnin segir ekki eins og strákarnir í Englum alheimsins: Við erum öll saman á Kleppi, það væri of gott til að vera satt, heldur segir hún: Þjóðin borgar. Við munum pína skrílinn. Já, ríkisstjórnin er alveg jafn ábyrgðarlaus og strákarnir sem snæddu á Grillinu í áðurnefndri sögu. Munurinn er bara sá að samfélagið var búið að taka af þeim ábyrgðina en ríkisstjórnin var kosin til að axla ábyrgð.

***

Marktækur hagfræðingur, sem var búinn að vara okkur við, segir að ríkisstjórn Íslands og seðlabanki séu engu hæfari sem stjórnendur nútímahagkerfis en þau væru sem stjarnvísindamenn. Þau skildu ekki að uppsveifla íslenska hagkerfisins árin 2005 og 2006 byggðist á skuldasöfnun – lán voru tekin til þess að standa í skilum með önnur lán – og nú vita þau ekki hvernig unnt er að ná jafnvægi aftur þegar pappírsauðurinn er horfinn.

Og hagfræðingurinn bætir við: Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld.

Þarf frekari vitnanna við? Hvað segja stjórnvöld og hvað segja fjárplógsmennirnir? Þau segja ekkert og þeir segja ekkert. Enginn segir neitt. Það ætlar enginn af þessu fólki að axla ábyrgð. Sigurjón bankastjóri, sem lýsti ICESAVE-reikningunum sem tærri snilld, segist ekki bera neina ábyrgð, og Halldór Kristjánsson félagi hans ekki heldur, en þessum reikningum var komið á fót þegar engir marktækir bankar vildu lengur lána íslensku bönkunum. Já, þá var þeim komið á fót með ábyrgð í þjóðskránni. „Það eina sem ég þarf að gera er að kíkja í lok dags hvað er kominn mikill peningur inn,“ sagði Sigurjón bankastjóri hlæjandi við blaðamann einhvers viðskiptablaðsins. „Það bættust við fimmtíu milljónir punda bara á föstudaginn!“ Þetta hafa verið skemmtilegir föstudagar sem við fáum nú í hausinn.

Bera slíkir menn enga ábyrgð? Ekki segja þeir, og allir meðvirku stjórnmálamennirnir taka undir. Það má ekki dæma, það má ekki hafa skoðun. Samt er enginn að æpa úlfur úlfur, þeir halda bara sjálfir eða heyra það löngu á undan öllum öðrum, en þegar jafnvel götunnar menn sem stela einum lifrarpylsukepp og koníaksfleyg þurfa að sæta ábyrgð er ekkert nema eðlilegt að þeir sem hafa komið þjóðinni á kaldan klaka geri grein fyrir máli sínu og reyni að bæta fyrir brot sín, jafnvel þótt brotin kunni að vera lögleg og hafi gerst með blessun stjórnvalda. Hér er einfaldlega svo miklu meira í húfi; þjóðin getur ekki beðið eins og Breiðavíkurdrengirnir eftir einhverri hvítbók, það væri eins hægt að syngja fyrir okkur gamla Flowers-lagið Slappaðu af, nema að verið sé að viðurkenna að við séum eins og Breiðavíkurdrengirnir, við höfum verið misnotuð í einhvers konar kennitöluflakki um öll hagkerfi heimsins og gott ef ekki sólkerfi.

***

Sú hagfræðibóla, sem stjórnvöld settu engar skorður, var svo augljós vitleysa og stjórnvöldum var margsinnis bent á það, nei ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur hvað eftir annað. En í stað þess að taka mark á þessum ráðleggingum fóru ráðherrarnir út í lönd sem kynningarfulltrúar bankanna. Héldu Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún virkilega að ástandið myndi lagast ef þau héldu blaðamannafundi? Hvaða stjórnspeki er þetta eiginlega? En þetta fólk ber auðvitað enga ábyrgð. Þau gátu ekki séð þetta fyrir, segja þau. Nei, þau hlustuðu bara ekki á neinar viðvaranir, þar liggur ábyrgðin, og þess vegna á að skylda þau til að hlusta á það sem við erum að segja.

Það voru orðin hálfgerð trúarbrögð að hægt væri að kjafta ástandið upp og niður, enda réð ríkisstjórnin einn aðalkjaftaskinn til sín sem ráðgjafa og hann hætti þegar hann komst að því að ráðgjafastörfunum fylgdi vinna. Við viljum líka sjá ábyrgð greiningardeildafólksins, sem virðist hafa verið í vinnu við að ljúga að okkur. Skoðið tekjublað Frjálsrar verslunar og sjáið hvað þetta fólk var með í laun! Sjaldan undir fimm milljónum á mánuði. Fyrir hvað? Fyrir að ljúga? Skoðið líka hvernig fólk nátengt ríkisstjórninni hefur makað krókinn, og nú ætlar þetta fólk að fara að rannsaka sjálft sig. Það er annars merkilegt að tekjublað Frjálsrar verslunar er allt í einu orðið eins og mögnuð heimildaskáldsaga. Fyrir hvað voru forstöðumenn greiningardeilda, fyrirtækjasviða og ég veit ekki hvaða sviða að fá sjö milljónir, átta milljónir, tíu milljónir, í mánaðarlaun? Ef Jóhann Páll Valdimarsson borgaði ljóðskáldum slík laun myndi Forlagið strax fara á hausinn. Samt virðast mér ljóð margra skálda margfalt verðmætari en pappírarnir sem þetta fólk var að sýsla með. Verður þetta fólk ekki líka að axla ábyrgð, reikna sér eðlileg laun og skila afganginum upp í skuldir? Öðruvísi verður engin sátt í þessu þjóðfélagi. Þannig er Ísland í dag.

Eða eigum við nú þegar skuldunum rignir yfir okkur að fara bara með reikningana okkar út í tunnu og halda síðan blaðamannafund? Hvað á fólkið sem nú missir húsin sín, vinnuna, að gera? Á það að halda blaðamannafund? Eins og stjórnvöld. Sjá menn ekki hvílík vanhæfni hér er á ferð? En þau bera enga ábyrgð. Samt stjórna þau landinu. Halló! Þetta er eins og að segja: Ég rústaði húsinu, en ég ber enga ábyrgð af því að ég gerði mér ekki grein fyrir að ég væri að rústa húsinu. Myndi einhver taka slíka röksemdafærslu gilda? Nei, en þetta er röksemdafærslan sem okkur er boðið upp á.

Geir Haarde átti að vita að hann var á hriplekum báti, en hann sagði: Við róum bara áfram og sjáum hvað gerist. Það er best að gera sem minnst. Það var speki frjálshyggjunnar, að gera ekki neitt. Aðspurð um vanda bankanna sagði hinn leiðtogi ríkisstjórnarinnar, Ingibjörg Sólrún: Þetta er fræðilegt vandamál, og bætti við: Ég fæ ekki betur séð en að bankarnir standi ágætlega.

Hún sagði ekki þetta er hræðilegt vandamál, heldur fræðilegt, og fór svo til Köben með Sigurði Einarssyni, fjármálafurstanum sem nú byggir sér níu hundruð fermetra sveitasetur í Borgarfirðinum og hefur nýverið látið bankann sem farinn er á hausinn kaupa handa sér hús í London upp á tvo milljarða. Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún ætla kannski að sitja með Sigurði Einarssyni og dást að sólarlaginu í Borgarfirðinum og segja: Þetta er fræðilegt vandamál, þegar allir verða farnir úr landinu, og Sigurður Einarsson, varla ber hann ábyrgð, þessi mikli snillingur, sem fyrir örfáum vikum fékk hundruð milljóna í kaupauka. Fyrir hvað? Þetta var maðurinn sem hótaði að fara úr landi ef hann fengi ekki ofurlaun.

Já, Ingibjörg Sólrún, hvað varð af hinni hagsýnu húsmóður kvennalistans? Það eru ekki bara unglingar sem lenda í vondum félagsskap. Stjórnvöld hafa verið í vasanum á ábyrgðarlausum fjármálafurstum og nú ber þeim að taka ábyrgð á því.

Nei annars, þetta er ekki þeim að kenna. Þau bera enga ábyrgð. Geir Haarde forsætisráðherra segir að kreppan sé bara einhver óþægilegur vindur sem kom frá útlöndum, svipaður óveðrinu í síðustu viku, og ef það hefði ekki gerst, ef það hefði ekki blásið, þá væri allt í himnalagi. Það var sem sé ekkert að, bara ef bullið gat haldið áfram. Allt fjármálasukkið, ofurlaunin, kaupaukarnir, endalaus sala á verðlausum bréfum og endalaus niðurlæging á fólki sem vann heiðarleg störf. Laun Lárusar Weldings bara fyrir að byrja í bankanum voru hærri en ævitekjur flestra vinnandi manna. Rithöfundur þyrfti líklega að skrifa tugi metsölubóka til að vera andvirði eins fótspors hjá Lárusi Welding. Er þetta eðlilegt verðmætamat? Vita menn í hvað ICESAVE-peningarnir fóru? Er það satt að þeir hafi verið lánaðir til Baugsfyrirtækja sem nú skulda hundruð milljarða á meðan eigendur fyrirtækjanna monta sig af lystisnekkjum, einkaþotum, lúxusíbúðum, sveitasetrum og hótelum? Það virðist hafa verið samkomulag fjármálafurstanna að lána hver öðrum út á veð sem ekkert stóð á bak við. Og þetta finnst stjórnvöldum bara allt í lagi; og þau ætla að fara hægt í sakirnar og ekki að dæma.

Eini vandinn er sá að þetta fékk ekki að halda áfram. Það segir Geir Haarde. Nákvæmlega sama viðhorf birtist hjá Jóni Ásgeiri. Maðurinn heldur því blákalt fram, og virðist trúa því sjálfur, af svipbrigðum hans að dæma, að fyrst þeir fengu ekki meira lán til að halda vitleysunni áfram þá hafi bara allt stoppað og það sé allt Davíð að kenna. Maður gæti haldið að Jón Ásgeir væri alinn við einhverja sérstaka útgáfu af Davíðssálmum, svo hugleikinn er Davíð honum. Jón Ásgeir notar sömu rök og drykkjumaðurinn sem segir að það sé allt í lagi að keyra fullur, bara ef hann er ekki tekinn, og þegar hann keyrir á ljósastaur er það ljósastaurnum að kenna. Síðasti bankinn sem ekki gat lánað, hann gerði mig gjaldþrota! Eigum við að kaupa þetta bull? Það kann vel að vera að eitt og annað hafi verið óheppilegt við yfirtöku bankanna, til dæmis Glitnis, en hefði verið heppilegt að lána banka sem var kominn í þrot miklar fjárhæðir? Ef ég skuldaði Jóni Ásgeiri margar milljónir myndi hann þá lána mér fleiri milljónir? Skuldir banka og fyrirtækja voru einfaldlega orðnar svo miklar að dæmið gekk ekki upp. Talað er um að Stoðir skuldi 260 milljarða, Eimskip um 200 og þar fram eftir götum.

Þess vegna erum við orðin þreytt á öllu þessu bulli. Við þessar aðstæður er ríkisstjórnin rúin öllu trausti nema hún taki til hendinni og beri niður þar sem eitthvað er að sækja. Það er rétt, við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna, en við erum farin að heyra mjálmið og afneitunina. Stjórnmálamennirnir munu fylla eyru okkar af langlokum og afsökunum. Þeir vonast til að geta setið af sér storminn eins og þeir eru vanir að gera. Eins og Bjarni Ármannsson var sérfræðingur í. Hann hefur kannski kennt þeim trikkin. Var það ekki Pétur Blöndal sem uppgötvaði Bjarna, Pétur Blöndal sem sagði þessa skemmtilegu setningu í þættinum Mannamál í sjónvarpinu á sunnudag: „Ég viðurkenni ekki neitt.“

Eitt hafa stjórnvöld þó framkvæmt, það er að koma sér upp sérsveit lögreglu, en að við séum búin að missa landið út úr höndunum, að hér ljúki sögu lýðveldisins, og það allt af því að örfáum fjárplógsmönnum var gefinn allt of laus taumur, það er auðvitað þyngra en tárum taki, því satt best að segja hef ég alltaf kunnað vel við lýðveldið og ég geri ráð fyrir að sakna þess þegar fram líða stundir.

Nei, ég get ekki gert mikið fyrir ríkisstjórnina, en vil þó nesta hana með einu ljóði sem henni er frjálst að fara með næst þegar hún hittir fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og önnur yfirvöld af veraldlegum toga, en það heitir einmitt Síðasta tilboð Íslendinga og er að finna í ljóðabók með því viðeigandi nafni: Í auga óreiðunnar.

Því miður, herra framkvæmdastjóri,
ég hef ekkert að bjóða
í þessum samningaviðræðum
nema þrjú tonn af kokteilsósu,
örfá eintök af dýrafræði Jónasar frá Hriflu
og allar hljómplötur Árna Johnsens.

Höfundur er rithöfundur.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 14:18

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jæja...þið verðið bara að vera þolinmóð og skrolla alla leið að grein Einars Más hér í athugasemdinni fyrir ofan..kom svolítið aukaefni með..hehe.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 14:25

18 identicon

En hversu góð svör fengust úr þeim þingmönnum sem mættu á fundinn? Nú var ég að lesa í frétt að Geiri H ætlar að mæta á alþingi á fimmtudag til að upplýsa þingið um hvaða aðgerðir stjórnvöld hafa framkvæmt og ætla sér að gera. Hversu mikið vita þeir sem sitja á þingi um stöðu mála og hvað menn ætla að gera í málunum? Hafa þeir sem sitja á þingi almennt eitthvað um það að segja? Það hljómar þannig að "stjórnvöld" séu að ákveða allt saman en þingið situr bara og talar um hvað á að gera við þau listaverk sem bankarnir áttu. Hversu margir þingmenn ætli hafi vitað um stýrivaxtahækkunina fyrirfram? Hversu margir þingmenn vita hvaða fleiri skilyrði IMF hefur sett okkur?

Davíð Arnar (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 15:05

19 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta eru mjög góðar spurningar hjá þér Davíð Arnar...ég hef fengið það a tilfinninguna að alþingismennirnir okkar geri nefninlega ansi lítið gagnið og ráði í raun engu og geti engu ráðið. Ákvarðanir eru teknar annarsstaðar og öllu hleypt í gegn af afli...sama hvað hver segir. Lýðræði??

I don´t think so. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband