Leita í fréttum mbl.is

Stórkostlegur Borgarafundur á Nasa í kvöld..næsta mánudag fyllum við Háskólabíó!!

Gunnar Sigurðsson leikstjóri sem hefur borið hitann og þungann af Borgarafundunum hvatti fjölmiðlamenn sem sátu fyrir svörum borgaranna í kvöld til að ljá okkur rödd og hjálpa okkur að fylla Háskólabíó næsta mánudag. Hann krafðist þess líka að þangað mættu ráðherrarnir.. þeim hefur verið boðið  á alla fundina hingað til en ekki látið svo lítið að koma og tala við okkur fólkið í landinu.  Í kvöld mættu einungis 2 eða 3 þingmenn. Þetta er fólkið sem er í vinnu hjá okkur og það minnsta sem þau geta gert er að TALA VIÐ OKKUR UM FRAMTÍÐ OKKAR OG BARNANNA OKKAR. Þau fá tækifæri næsta mánudag til að sýna okkur að þau hafi áhuga á því sem við höfum að segja og svara brennandi spurningum okkar.

Vonandi sjá fjölmiðlar sóma sinn í að útvarpa og helst sjónvarpa frá þessum fundum beint...enda á sú umræða sem þarna fer fram erindi til allrar þjóðarinnar. 

Við erum að lifa mjög mikilvæga tíma núna og við eigum öll að taka þátt í að móta stefnu þjóðarinnar og taka okkar ábyrgð á því að svona valdhafar sem hafa níðst á lýðræðinu hrökklist frá völdum og fái aldrei aftur tækifæri til að sýna svona vítavert gáleysi eins og þau hafa sýnt undanfarin ár.

Þessi ótrúlega samstaða fólksins sem er nú að verða til er tæki sem við getum notað til að ná valdinu okkar til baka. Við erum valdið og valdið er okkar. Ekki þeirra.

www.borgarafundur.org

Og mig langar að ÞAKKA Gunnari og hans fólki fyrir framtakið sem og Herði Torfasyni fyrir sitt framlag. Við þurfum svona fólk sem þorir og gerir hlutina af því að það er eins og við hin búin að FÁ NÓG!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að vita að allt gekk vel fram.  Það væri líka gott að vita hvaða stjórnmálamenn mættu, bara svona til að vita það.  En samstaða fólksins er það mikilvægasta, og ekki bara þeirra sem geta mætt, heldur líka þeirra sem sitja langt í burtu og geta ekki mætt, en vilja þó. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.11.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Frábær fundur!!

Heiða B. Heiðars, 17.11.2008 kl. 23:12

3 Smámynd: www.zordis.com

Var synt frá zessum fundi??

Gott ad fundurinn var gódur og vonandi ber hann árangur.

www.zordis.com, 17.11.2008 kl. 23:15

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Heiða..þú varst nú líka frábær með þínar kröftugu spurningar.

"DV er eini miðillinn sem tekur á málum í einhverri alvöru og kemur með upplýsingar sem aðrir gera ekki...hvað segir það um ykkur hina??" sagði hún og hnykkti svo út með það að hún vildi fá að vita hverjir hefðu verið á leynifundinum um daginn og hvað hefði gerst þar.

Þið bara verðið að mæta næst og upplifa sjálf hvað er að gerast kæru landar. Enfyrst fjölmennum við öll á Austurvöll á laugardaginn...fjölmiðlamenn voru einnig hvattir til að láta sjá sig þar og standa með þjóðinni. Held að eftir fundinn í kvöld munum við sjá annars konar vinnubrögð... enda löngu kominn tími til!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.11.2008 kl. 23:18

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Fundurinn var æðislegur og í gegnum hann er ég kominn úr vanmættinum. Nú á ég von. Von um að við getum sigrað spillingaröflin og endurvakið lýðræðið í samfélaginu. Baráttan er alls ekki unnin og margt en ógert en mikið er auðveldara að berjast þegar maður hefur von í hjarta.

Þeir sem vilja ljá málstaðnum krafta sína bendi ég á að senda okkur tölvupóst á borgarafundur@gmail.com

Héðinn Björnsson, 18.11.2008 kl. 01:14

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta var flottur fundur og svona fundir vekja von með almenningi?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2008 kl. 01:35

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér heyrðist í hádegisfréttum Bylgjunnar að fundinum yrðu gerð ítarleg skil í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld..þriðjudag!! Frábært ef svo er og ég hvet ykkur til að horfa!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.11.2008 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband