Leita í fréttum mbl.is

Slétt, brugđiđ, mér er brugđiđ og ţađ er ekkert slétt né fellt í ţessu ţjóđfélagi.

Hér sit ég í hlýjunni viđ ljóstýru og prjóna af kappi.  Ég er ađ prjóna mér svarthvítan yrjóttan mjúkan trefil sem á ađ halda á mér hita í öllum mótmćlunum sem framundan eru.

Skjaldborgin utan um Alţingi í dag klukkan 12 á hádegi, Mótmćlin á Austurvelli  n.k laugardag og svo mótmćlin mánudaginn 1. des á Arnarhóli klukkan 15.00   Eins gott ađ eiga góđan trefil fyrir allar ţessar útisamkomur međ vaknandi íslendingum sem vilja ekki láta koma fram viđ sig eins og fífl lengur.

Ţađ er eitthvađ svo róandi og gott viđ ţađ ađ prjóna.  Ţađ ólgar í maganum á mér byltingarúmba og hjartađ slćr taktinn viđ lýđrćđisţránna og ég nota tímann til ađ láta hugann reika og hugsa mitt. Slétt brugđiđ, slétt brugđiđ.  Vinkona mín í englandi hringir reglulega til ađ athuga hvort ég hafi nokkuđ veriđ handtekin. Hún hefur áhyggjur af ţessu brölti mínu og segir ţađ alvöru mál ađ reyna ađ koma ríkjandi stjórnvöldum frá. Ég brosi bara góđlátlega út í annađ og segi henni ađ ţađ sé engin hćtta á ađ svona friđsöm húsmóđir eins og ég verđi tekin af löggunni....ég standi bara međ mitt mótmćlaspjald og mótmćli friđsamlega ţó ţađ ólgi í mér óréttlćtistilfinningin og reiđin yfir ţví hvernig fariđ hefur veriđ međ ţjóđina mína og mig. 

Hún segir ađ ţeir safni af manni myndum og geymi..skrái vel og vandlega hverjir séu í andstöđu og hljómar bara eins og spennandi söguţráđur í tékkneskri byltingarbíómynd.

Svo heyri ég af ţví ađ sumum bloggum sé lokađ vegna tengsla ţeirra viđ kjosa.is, Bjarni Harđar talar um ósýnilega valdaklíku á bak viđ framsóknarflokkinn sem stjórni ţingmönnum og Sigurđur Bankstjóri er sveittur í Lúx ađ reyna ađ kaupa og koma undan skilst mér. Leyndóin farin ađ leka út í samfélagiđ og spillingin augljósari međ hverjum deginum og stjórnin situr sem fastast og ćtlar engu ađ breyta...hlćr međ hroka ađ fólkinu og kallar ţađ "ekki ţjóđin".

Slétt brugđiđ, slétt brugđiđ. Eins gott ađ eiga góđan hlýjan trefil fyrir verkefnin framundan. Ţau eru mikil og mörg og ein svona húsmóđir skiptir máli til ađ vekja upp lýđrćđiđ..rétt eins og ţú. Hver og einn sem skipar samstöđuna skiptir miklu máli. Svartur og hvítur yrjóttur trefill... ţađ er gott ađ finna ylinn um hálsinn ţví nógu oft fer ískaldur hrollurinn niđur eftir bakinu  ţegar grímurnar falla og hiđ raunverulega andlit valdaklíkunnar kemur betur og betur í ljós.  

Slétt brugđiđ..slétt brugđiđ..

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Bara gott ađ prjóna, ekki spurning. Hafđu ţađ gott kćra Katrín

Ásdís Sigurđardóttir, 26.11.2008 kl. 09:45

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2008 kl. 09:55

3 Smámynd: Heiđa B. Heiđars

Ći Kataskata....ţú ert eitthvađ svo yndisleg!

Kaffi eftir skjaldborg í dag?

Heiđa B. Heiđars, 26.11.2008 kl. 10:14

4 Smámynd: Katrín Snćhólm Baldursdóttir

Já heitt kaffi eftir Skjaldborgina.

Katrín Snćhólm Baldursdóttir, 26.11.2008 kl. 10:22

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 26.11.2008 kl. 10:24

6 Smámynd: Heiđa B. Heiđars

Sjáumst ;)

Heiđa B. Heiđars, 26.11.2008 kl. 10:33

7 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

O já - ađ prjóna er eitthvađ ţađ mest sefandi og gefndi sem hćgt er ađ hugsa sér.

Soffía Valdimarsdóttir, 26.11.2008 kl. 11:28

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ţiđ eruđ flottar ungar konur, ţiđ Heiđa

Sigrún Jónsdóttir, 26.11.2008 kl. 16:44

9 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Eins gott ađ halda á sér hita og nauđsynlegt ađ hafa ljós Handavinna er eiginlega besta sálfrćđimeđferđ sem til er, held ég fram Gangi ţér vel međ spjald í hönd í kuldanum. Ég er međ ykkur á Austurvelli í huganum og hjartanu og set ljós í gluggann minn.

Ragnhildur Jónsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:58

10 Smámynd: Guđný Anna Arnţórsdóttir

Gangi ţér vel, elsku prjóna- og athafnaskáld (prjónaskáld...gott orđ..?) - og gangi OKKUR öllum vel, for that matter. Hvílíkir tímar, hvílíkar hugsanir, hvílík endurröđun. Ţarf samt ađ rađa ENN betur og réttlátar.

Guđný Anna Arnţórsdóttir, 26.11.2008 kl. 21:58

11 Smámynd: Aprílrós

prjóna prjóna prjóna, gangi ţér vel ađ prjóna kona góđ. ;)

Aprílrós, 26.11.2008 kl. 22:06

12 Smámynd: www.zordis.com

Skáldleg prjónakona ... zú ert frábaer og gaman ad lesa faerslurnar zínar.

Um ad gera ad trefla sig upp á köldum stundum. Ég set ljós í baráttuna.

www.zordis.com, 26.11.2008 kl. 23:47

13 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Já, ţú kannt ađ orka á tilfinningarnar og skapa stemminguna međ skrifunum ţínum Ég var eiginlega farin ađ finna fyrir sömu tilfinningum í hjarta og maga í lok lestursins eins og ţeim sem ţú lýsir í byrjun. Hver getur ţađ nema magnađur penni Ţú ert líka mögnuđ frelsishetja!

Ég er búin ađ leita á netmiđlunum af einhverjum fréttum af skjaldborginni en hef ekkert fundiđ. Vona ađ af ţessu hafi orđiđ ţví miđađ viđ ţađ hvernig ríkisstjórnin öslar og göslast áfram ţá veitir ekki af ađ sýna henni framan í óánćgđa kjósendur og ţađ helst daglega!!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.11.2008 kl. 00:48

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Get ekki prjónađ elskuleg mín, vegna vöđvabólgu, en ég get rifiđ kjaft og ţađ ćtla ég ađ gera međan ég hef kjaft til ađ rífa.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 27.11.2008 kl. 01:50

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband