Leita í fréttum mbl.is

Í föðurlandið fyrir föðurlandið!!

Ég fékk lánað föðurland úr ull til að klæðast í dag þegar ég fór til að mótmæla á Austurvelli. Það var nístandi kuldi úti og eins gott að búa síg vel svo Kári kallinn klipi ekki of fast í lærin á konu með sínum ísköldu krumlum. Ég tók líka með mér pottlok og sleif og lamdi svo fast í pottlokið að sleifin brotnaði en það gerir ekkert til... ég á fleiri.

Ég ætla ekki að segja ykkur  hvern ég var að hugsa um að rassskella  þegar sleifin brotnaði en leyfi ykkur að geta sjálf.

Þar sem ég er andofbeldissinni og vil ekki sjá ofbeldi..mæli ég eindregið með því að fá útrás á pottlokum.

En talandi um ofbeldi þá finnst mér samt alveg nóg komið af ofbeldi gagnvart þjóðinni. Við þurfum nú að þola gífurlegt efnahagslegt ofbeldi, viðskiptalegt ofbeldi, félagslegt ofbeldi, andlegt ofbeldi og sumir jafnvel piparúðaofbeldi  og þegar við söfnumst saman á Austurvelli til að bera hönd fyrir höfuð okkar og hrópa laugardag efitir laugardag eins hátt og við getum þúsundum saman..."Ekki meir Geir..plís ekki meir Geir" þá beitir hann okkur bara enn meira ofbeldi sem er samskiptaofbeldi og skellir skollaeyrum við kröfum okkar.

Svo þorir sumt af því fólki sem er beitt öllu þessu ofbeldi alla daga árum saman ekki að mæta á Austurvöll af ótta við ofbeldi??  Ég verð að viðurkenna að ég botna ekkert í sumu fólki.

untitled8i

En föðurlandið gerði sitt gagn fyrir föðurlandið i dag og mig langar að smella brennheitum kossi á kaldar kinnar allra mótmælenda um leið og ég tek í kaldar hendurnar þeirra og þakka fyrir samstöðuna í dag. SMJÚTS!!Kissing

Einn góðan veðurdag í framtíðinni... já í sól og sumaryl minninganna...munum við geta horft til baka og verið stolt af því að hafa staðið saman í nístandi kuldanum og mótmælt órettlætinu og ofbeldinu. Og það sem meira er . Við munum geta horft framan í börnin okkar og barnabörnin okkar án þess að skammast okkar. Og þá skiptir ein skitin trésleif engu máli. Bara alls engu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 29.11.2008 kl. 20:35

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 29.11.2008 kl. 22:03

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert frábær.  En mikið rosalega er kallt úti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2008 kl. 22:23

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Vonandi verður ekki eins kalt næsta laugardag en það skiptir ekki máli. Við mætum samt vegna þess að okkur stendur einfaldlega ekki á sama. Takk fyrir uppbyggilegan hvatningarpistil

Rakel Sigurgeirsdóttir, 29.11.2008 kl. 22:51

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er stolt af öllum sem mættu á Austurvöll í dag.  Hetjur

Sigrún Jónsdóttir, 29.11.2008 kl. 22:52

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Frétti að þeim þúsundum sem mættu í Smáralindina og í Kringluna hafi ekkert verið kalt og bara notið sín vel. Skil vel að fólk vilji bara trúa að þetta reddist allt eins og áður...og það sé óþarfi að hafa áhyggjur. Við skulum sjá til í febrúar hvernig ástandið verði þá. Auðvitað væri gott að trúa því að allt verði gott og að stjórnvöld séu þrátt fyrir allt bara að huga að okkar hag..en því miður blasa staðreyndirnar við og okkur er ekki stætt á að ana áfram með lokuð augun og trúa áfram á blekkingarnar.

Kannski..já kannski voru bara flestir að spara sig fyrir morgundaginn en þá verður Þjóðfundur á Arnarhóli klukkan 15.00. Margir vinnuveitendur hafa gefið fólkinu sínu frí til að mæta og sýna samstöðu. Mæli með föðurlandi og lopasokkum...bara alls ekki sitja heima þó það verði kalt. Ef við ekki stöndum saman núna verður alltaf kalt í þjóðarsálinni...Mætum með funheitt hjarta og eldglæringar í lýðræðisaugunum og krefjumst nýrra gilda og afsagnar  spillingarliðsins.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.11.2008 kl. 08:25

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

ÞJÓÐFUNDUR ÍSLENDINGA

1. desember 2008

Arnarhóli

Borgarahreyfing um Þjóðfund 1. des. eru regnhlífarsamtök þeirra hópa og einstaklinga sem hafa haft sig í frammi opinberlega undanfarnar vikur vegna þess gjörningaveðurs sem fjármálamenn, stjórnvöld og embættismenn hafa kallað yfir þjóðina.

Borgarahreyfingin stendur algerlega utan við alla stjórnmálaflokka og telur að núverandi stjórnvöld sem og stjórnarandstaða hafi glatað trausti landsmanna.

Borgarahreyfingin hvetur alla landsmenn til að sýna samstöðu og krefjast breytinga á stjórn landsmála og breytinga á stjórnsýslu með því að leggja niður vinnu og mæta á

Þjóðfund á Arnarhóli klukkan 15, mánudaginn 1. desember.

Jafnframt hvetur Borgarahreyfingin til þess að öll samtök launþega veki athygli félagsmanna sinna á fundinum og að Samtök atvinnulífsins sýni vilja sinn til þjóðarsáttar og hvetji aðildarfélög sín til að gefa starfsfólki leyfi frá störfum.

Frummælendur í stafrófsröð:

Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
Lárus Páll Birgisson, sjúkraliði
Margrét Pétursdóttir, verkakona
Snærós Sindradóttir, nemi
Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur

Blaz Roca (Erpur) rappar um þjóðmál

Fundarstjóri: Edward Huijbens, landfræðingur

BORGARAHREYFING UM ÞJÓÐFUND 1. DES.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.11.2008 kl. 09:12

8 Smámynd: Sævar Helgason

Veðrið á Þjóðfundinum á morgun 1.desember 2008 veður hollt og gott til mótmælaútivistar  . Hæg norðlæg átt með 2-4 °C frosti- sem sagt hið besta vetrarveður.  Síðan myndar miklli mannfjöldi góðan hitahjúp . 

Nú er örlagastund á morgun kl. 15 á Arnarhóli- því fleiri sem mæta - því meiri árangur fyrir þjóðina.   Mætum öll.

Sævar Helgason, 30.11.2008 kl. 12:19

9 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Mætti í mínu föðurlandi með minni konu. Gengum fram á sérsveitarbílinn staðsettan á sama stað og síðast.

Urðum fyrir vonbrigðum með mætinguna. Spurning hvort það ættu ekki fleiri að fjárfesta í föðurlandi. Ég held að þau fáist í kringlum og lindum.

Ævar Rafn Kjartansson, 30.11.2008 kl. 13:25

10 identicon

ég kaupi mér föðurland fyrir næstu mótmæli, það var ansi napurt þarna í gær.  annars var ég búin að merkja ákveðna kælingu frá 4. valdinu vikuna fyrir mótmælin, meira að segja DV sem ég hélt að væri farið að tala máli fólksins, það kældi sig niður og hætti að tala um fjármála og stjórnmálaperra og fór bara að tala um þessa venjulegu perra...

en þá þurfum við bara að vinna meira sjálf, í að smala fólki og hvetja til þess að koma þessu liði frá með góðu frekar en illu

Skríllinn kældur

Gullvagninn (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 14:43

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

asskoti vara kalt.........en mæti á þjóðfund

Hólmdís Hjartardóttir, 30.11.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband