1. Til hamingju með þessa litlu veru sem er komin til að veita viðtöku umhyggju þinni, ást og kærleika. Sem færir þér það verkefni að kynnast því fallegasta í sjálfum þér sem foreldri. Þú sérð himnana í þessum saklausu augum, hamingjuna í björtu brosinu og kærleikann í mýkt snertingarinnar. Megi englar umlykja veröldina ykkar alla tíð og færa ykkur gæfuríka framtíð.
2. Er ekki undursamlegt hve svona agnarlítil mannvera kemur með miklar og stórar gjafir inn í þessa tilveru? Þetta óendanlega traust til þín sem foreldris, hamingjuríkt hjal og hlýtt kærleiksbros sem lýsir upp tilveruna? Litlar hendur sem fálma eftir ævintýrum veraldarinnar sem þú skapar í öllum litbrigðum lífsins? Megi gleði og gæfa fylgja ykkur út í lífið sem bíður ykkar og litla fallega barnsins ykkar.
3. Velkomin í heiminn litla sál. Þú ert að leggja af stað í ævintýralegt ferðalag um þessa stóru veröld. Megi foreldrar þínir kenna þér allt um kærleikann, traustið og hamingjuna sem þau bera í brjósti sínu fyrir þig og leiða þig af stað út í lífið með trú og gleði á þá framtíð sem bíður þín. Megi verndarenglar vaka yfir hverju spori þínu og syngja þér fagnaðarsöngva sérhvern dag og sérhverja nótt.
4. Megi stjörnur himinsins lýsa þessu litla barni leið í þessari veröld og megi það eiga öruggt skjól í faðmi ykkar foreldranna, umvafið ást og kærleika, gleði og hamingju og megi allt það besta og fallegasta sem í ykkur býr vaxa og dafna í þessum litla afleggjara:)
Ljósmyndari: Katrín Snæhólm | Staður: Verð kr 500 | Bætt í albúm: 30.5.2007
Athugasemdir
Engar athugasemdir hafa enn verið skráðar um þessa færslu.