Færsluflokkur: Bloggar
1.7.2007 | 22:23
Hvað ertu að lesa í sumarfríinu??
Segðu mér...ég er að leita að einhverju verulega krassandi til að lesa í garðinum ef sólin sést einhvern tímann aftur hér í þessu guðsvolaða regni.
Get svo sem lesið meðan rignir.
En hverju mælið þið með og hvers vegna??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
1.7.2007 | 09:32
Out of nothing and out of nowhere.....
Það gerist ekkert hér nema það rignir. Og það rignir alveg rosalega mikið og á sumum stöðum er hreinlega allt á floti og þúsundir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Eins og regnið er nú gott og hressandi þá er þetta nú einum of mikið af því góða. Sem betur fer höfum við sloppið vel.
Í gær var enn einn rigningardagurinn og við mæðgurnar einar heima. Það var alger fásinna að setjast út í garð og fá sér jarðarber eins og við gerum oft svo við ákváðum í staðinn að fara á nýju bensínstöðina.
Á bensínstöðinni þar sem núna fæst ilmandi heitur kaffisopi, bakkelsi og tímarit fengum við okkur ýmislegt góðgæti og hvor okkar valdi sér eitt tímarit til að lesa. Ætluðum bara að kúra saman í sófanum og hafa það gott og ímynda okkur hvernig það er að lenda í alvöru syndaflóði.
Það er samt á svona rigingarmomentum sem maður fer að láta sig dreyma um sumar og sólskin, fjarlæga staði þar sem maður getur bara slappað af við ströndina og upplifað eitthvað nýtt og skemmtilegt. Theodóra fór upp að lesa og ég sat niðri og kíkti í heimsókn til bloggvina minna. Staldraði við hjá Hugarflugu sem er einmitt farin í frí til Ítalíu vinkonu minnar sem ég elska mest af öllum.
Og ég var einmitt að biðja Hugarflugu að muna eftir að koma með hana með sér í eftirdragi fyrir mig og láta mig dreyma um sumarfrí þar...þegar dóttirin kom skoppandi niður stigann alveg rosalega spennt og glöð
Hún hafði fengið með tímaritinu sínu svona happrdættisskafmiða einhvern og lukkulega fengið þrjú tré sem þýðir að þú hafir unnið veglegan vinning. Við vorum ótrúlega spenntar og hringdum í línuna sem segir hvað maður vinnur.
Við fengum ekki 100.000 pund og ekki BMW bíl og ekki heldur stórt veggsjónvarp.
En.....
Við fengum ferð fyrir 2 til Toscany á ítalíu og gistingu á fínu hótli í 6 nætur!!!!!
Og ég var akkúrat í miðjunni á því að öfundast..á jákvæðan hátt og auðvitað samgleðjast hugarflugu bloggvinkonu..að vera farin í sumarfrí til ítalíu.
Er þetta ekki bara aldeilis magnað hvernig lífið getur látið við mann stundum og glatt mann svona óvænt!!!
Ha? Haldiði að þetta hafi verið tilviljun sem er ekki til? Nei held ekki. Einhvernveginn svona er nefninlega þessi veröld. Svo frábær!!
Svo núna eru í gangi plön um að kaupa tvo aukamiða fyrir pabbann og bróðurinn og fara bara öll saman til Tuscany sem er víst eitt fegursta hérað ítalíu..liggja á hvítum sandströndum og gleyma hverjum einasta rigningardropa sem hér hefur fallið undanfarinn mánuð og skoða vínekrur og fagurt land.
Og fyrir vantrúar menn og konur sem trúa ekki svona daglegum undarlegum ævintýrauppákomum er hér beinhörð sönnun um athugasemdina sem ég var akkúrat að skrifa þegar þetta ítalíuævintýri henti sér inn í veröldina og beint í fangið á okkur. Sem sýnir auðvitað svart á hvítu að akkúrat meðan þú óskar þér af öllu hjarta þá bara birtist óskin hér og nú
Athugasemdin
Hurru þegar þú kemur aftur heim viltu þá gera mér einn lítinn greiða?? Ertu til í að koma með hana Ítalíu vinkonu mína með þér??
Jeminn eini...núna þegar ég var í miðj kafi að skrifa þetta þá gerðist svolídtið merkilegt....ég verð bara að blogga um það...
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 17:09
Nú fæ ég einstakt tækifæri til að nota hvíta sumarkjólinn minn með rauða rósarmunstrinu og setja upp dömulegu sólgleraugun í stíl. Maður þarf að vera svolítið smartur þegar maður fer til ítalíu og láta líta svo út að maður hafi eitthvað vit á hönnun og listum. Ég þekki náttla strákana Mikaelangelo og Leonardo Da Vinci mjög vel eftir alla tímana í listasögunni og þvælinginn um Flórens. Get líka alveg drukkið heilmikið rauðvín undir leiðsögn vínfræðingsins míns og látið eins og ég sé veraldarvön heimsdama þegar ég fer að heiman.
Atsjú..svei mér þá að maður sé ekki bara að kvefast í öllu þessu votviðri.
Mikið hlakka ég til að fara þarna suðureftir.!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
29.6.2007 | 21:58
Ævintýri enn gerast...
Hæ......
Stundum þarf maður að skríða áður en maður getur flogið.
En mikið svakalega er gott þegar vængirnir þorna eftir lirfustigið og maður getur loks tekið flugið og notið alls sem var falið í því sem var ósýnilegt. Fiðrildi á tveimur jarðbundnum fótum syngur ykkur söng á sínu eigin máli.
Flirr flirr flirr
Fly me to the full moon....
Þó það sé hellidemba hér og allt á floti í Bretlandi er sólskin hjá mér.
Það hefur stytt upp og útsýnið er svoooo gott!!!
Er jafnvel að hugsa mér til hreyfings og flytja á eyju.
Ekki samt Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
22.6.2007 | 19:02
Andlegur svimi
Andlegur svimi og lífsins dropi loks í öruggri höfn.
Hvað dvelur í dropanum mikla sem vildi sitt pláss kemur svo bara í LJÓS!
Ekkert smá sem getur tekið á að koma einum dropa á sinn stað
sem ber í sér vökvunina fyrir þyrsta sál.
Velkomin dögg
og það sér ekki högg
á vatni
Gárur sem enginn veit hvar enda
eða lenda.
Nema þú!
Ég gefst upp
stíflan brestur
og út kemur hestur
á þeysireið.
Og ég leggst niður og les úr skugganum ljósið í lífinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.6.2007 | 17:45
Með alvarlega bloggteppu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
19.6.2007 | 22:20
info@morningmessages.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.6.2007 | 12:01
Töfrar stíga dans á ósýnilegu leiksviði
Lífið leikur fyrir dansi og töfrandi tónar framkalla dansandi menn og konur sem eru að byrja að skilja töfrabrögðin. Galdurinn sem felst í því að upplifa og vera til. Að draga frá tjöldin sem huldu snilldarverkið á sviði alls sem er. Að lífið er ævintýri samruna, skilnings og samkenndar. Hjörtu sem slá i takt við pláneturnar, alheimstóninn og röddina þína.
Taktur sem tifar í gegnum tímann og inn í þig.
Ég er miðjan og sé allt um kring.
Og allt umvefjandi verundin sér mig og þig sem eitt.
Takturinn og tifið.
Tárið sem telur taktinn í veröld sem snýst hraðar en nokkru sinni fyrr.
Dansaðu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
16.6.2007 | 21:16
Þurfti að fara mikilvæga ferð til að leiðrétta hluti....sem ekki er hægt að blogga um
.........en skiluðu að ég held samt sínu.
Stundum er lífið þannig lagað að það má ekki og á ekki að tala um það upphátt.
Þó það sé kannski magnificent!
Þegar stöðluð munstur jarðar hitta fyrir opnun himinsins.
Og skilningurinn vaknar um hvað lífið er raunverulega.
Að andinn hittir loks efnið og skilur hvað er hvað.
Að hugarfarið er fjötur nema það skili jákvæðri tilfinningu og leysi efnið undan ánauð þess að trúa að ekkert sé gott.
Að Það sem ekki er heilt geti ekki orðið heilt.
En þannig er samt lífið...það sem má laga verður lagað.
Útsýnið skiptir öllu máli..hvað sérð þú út um glugga sálar þinnar?
Opnun eða lokun?
Hvert er útsýnið?
Skiptir öllu máli um hvernig lífið verður og hvað þú sérð þar akkúrat núna.
Það sem þú sérð núna er það sem mætir þér í framtíðinni.
Megi það vera Jafnvægi.
Jafnvægi líkama og sálar.
Konu og karls.
Ungdómsins og hins aldna
Mín og þín.
Himins og jarðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
12.6.2007 | 22:29
Ferðalag 44 ára konu og 9 ára málverks
Þó ég sé enn í bloggpásu má kona ekki láta hjá líða að fagna áföngum í lífi sínu og það ætla ég sko að gera. Hef verið alltof áhugalaus um að njóta áfangastaðanna í lífinu en nú er tímabært að fara að haga sér.
Fyrir níu árum fékk ég undarlega en mjög sterka hugmynd í kollinn. Out of nowhere datt sú hugmynd í kollinn á mér að halda upp á 35 ára afmælið mitt og gera það á eftirminnilegan hátt fyrir sjálfa mig. Þetta væru á einhvern hátt tímamót í mínu lífi. Bara svona innri tilfinning sem var fyrst lítill neisti sem varð svo að miklu báli og engin bönd héldu konu. Gamall draumur sem lét á sér bæra og kvað sér hljóðs með látum. Ég ætlaði að halda málverkasýningu því ég vildi verða listakona. Húsmóðir með 4 börn og hafði aðeins dundað sér við málun einstaka sinnum eyddi öllum matarpeningum fjölskyldunnar og keypti striga og pensla ásamt olíumálningu , rýmdi eitt barnaherbergið og setti upp sitt einkastúdíó. Fór svo á stúfana og fékk inni í Listhúsinu í Laugardal. Þar skyldi haldið uppá afmælið 13. júní 1998 með einkasýningu og partýi fyrir vini og vandamenn.
Maður veit aldrei hvernig dropinn gárar vatnið
Vandamálið var hins vegar það að engin málverk voru enn til...en hva. Það má öllu redda þegar það brennur eldur hið innra og gleymdur draumur rís upp í öllu sínu veldi. Húsmóður reiknaðist til að það þyrfti 25 olíumálverk til að fylla plássið og hafðist handa daga og nætur enda aðeins rúmlega tuttugu og eitthvað dagar til stefnu. Það var eins og opnað hefði verið fyrir gátt og kona málaði með höndum og koddaverum, penslum og spöðum og þegar síðustu málverkin voru hengd upp kvöldið fyrir opnun voru þau enn blaut og reyndar nýfædd inn í þessa veröld.
Stundum heldur maður af stað án þess að vita áfangastaðinn
með bjartsýnina eina að ferðafélaga.
Í dag eru akkúrat níu ár síðan..hinum merkilega níu ára hring lokið og á morgun hefst nýtt upphaf og nýr níu ára hringur sem ég hef ekki hugmynd um hvað ber í sér. Á sl. níu árum hef ég tekið 4 ára skúlptúr nám hér í Englandi. Flutti með mér alla familíuna svo húsmóðir mætti láta drauminn sinn rætast...þaðan lá leið til Oxford til að taka Master í Art and Humanity á sérsviði social sculpture. Inn á milli læddust einnig margir kúrsar um mannlega verund, heilun og draumlíf mannsins. Orkusvið og vísindi. Og hér er ég á lokasprettinum og tilbúin þegar ég opna augun á morgun fyrir næsta kafla.
Það sem er svo spennandi við hann er að ég veit eiginlega ekkert hvað bíður. Er bara tilbúin að taka næsta stökk og sjá hvað bíður handan við hornið..en það er eftirvænting í hjartanu og hugurinn fullur af stórum hugmyndum.
Í morgun barst mér svo kærkomin gjöf frá íslandi.
Málverk sem einhver keypti 1998 á húsmóðursýningunni og hafði greinilega farið í sitt einkaferðalag og endaði í Kolaportinu þar sem systir mín sá hana fyrir algera tilviljun í síðustu viku og keypti til að gefa mér í afmælisgjöf níu árum síðar. Mér fannst þetta alveg meiriháttar.
"Hvar hefurðu verið elskan" sagði ég við hana..."Er ekki gott að vera aftur komin heim til mömmu?"
Lærði líka að allt sem maður sendir frá sér fær maður aftur í hausinn. Allt sem fer að heiman kemur á endanum aftur heim. Gott að hafa það í huga..ha?
Myndin heitir Skógargyðjurnar og núna bý ég einmitt við skóginn og fer í skógargöngu hvern morgun að eiga stund með skógargyðjunum mínum...Skyldi eitthvað innra með mér hafa vitað það fyrir níu árum hvert leið mín myndi liggja?
Verið velkomnar heim skógargyðjur mínar
Merkilegt ferðalag sem þið hafið verið á sl níu ár upp á dag.
Mikið vildi ég vita söguna ykkar.
En svona er nú lífið oft skrítið og skemmtilegt.
Ég tek opnum örmum við næsta tímabili í lífinu.
Það verður fróðlegt að vita hvað lífið bíður með fyrir mig næstu níu árin og hvað mun bíða mín eftir þann níu ára hring sem ég er að skapa núna.
Ég óska sjálfri mér til hamingju með mín 44 ár miðvikudaginn 13. júní.
Og ég er rétt að byrja.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 93
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari