18.2.2007 | 22:26
Gaman eða leiðinlegt?
Er gaman eða leiðinlegt í þínum bekk? Er ekki merkilegt að sami hluturinn getur skemmt einum meðan hann lætur öðrum leiðast? Hefur það með "hlutinn" að gera eða manneskjuna? Viðhorfið?
Stundum finnst mér eitthvað rosalega skemmtilegt og svo finnst mér það sama hundleiðinlegt.
Það hlýtur að hafa eitthvað með mig sjálfa að gera. Eina sem ég veit sem að er leiðinlegt í mínum bekk er þegar ég er að byrja á túr. Skiptir engu hvað er hvað. Dagana fyrir tíðir er ég ekki ég... heldur geðvond norn sem hefur allt á hornum sér. Og verð ekkert móðguð þegar familían leggur til í blíðum tón að ég fari bara á kaffihús ein og lesi eða eitthvað. Þegar ég svo kem út úr þessu undarlega ástandi er ég auðvitað bara ljós og hvers mannshugljúfi. Yndisleg og skemmtileg með afbrigðum og læt ekkert rugla mitt góða skap.
En spurningin er...er gaman eða leiðinlegt í þínum bekk?
Hvað er hvað og hvers vegna.? Alltaf betra að labba sólarmegin á gangstéttinni. Líka hlýrra. Svo hvar ert þú? Önug norn eða ljómandi ljósálfur?
Smjúts. Galdraseiður og töfraorð...Abracadabra, Hókus Pókus og Verði Ljós!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.2.2007 | 20:47
Að elska sinn næturstað....
Gott að skríða í ból eftir langan dag og láta hugann reika.
Ég er ástfangin af rúminu mínu. Þetta er besta rúm sem ég hef átt. Stórt og rúm gott..rúm geta náttla ekki verið góð nema vera RÚMgóð er það? Mjúka og góða sæng á ég og tvo kodda. Hlýja ábreiðu til að breiða yfir ef kalt er og dökk gluggatjöld til að halda veröldinni fyrir utan þegar ég hvílist. Þak yfir höfuðið og mjólk fyrir morguninn. Og ég tilheyri hínum ríku. Þessu eina prósenti sem getur allt og má allt. Kúri mig undir sæng og velti fyrir mér hvað ég vil gera á morgun. Og hvort ég vilji kaffið með kleinuhring eða kleinu. Stundum svo erfitt að vera til. Hvort?
Æ ég hugsa um það síðar. Skiptir ekki öllu núna eins og hjá hinum 99 prósentunum. Hvernig sefur þetta fólk? Ætli það geti sofið? Úff það heldur fyrir mér vöku ef ég fer að hugsa eitthvað leiðinlegt og vonlaust. Best að kveikja á sjónvarpinu. 104 stöðvar til að eyða hugsuninni sem þvælist stundum fyrir mér. Er þetta ekki dásamlegur heimur? Góða nótt þið öll sem eigið góðan hvílustað.
Fór allt í einu að velta fyrir mér hvað ég er heppin að eiga svona gott rúm. Þakka fyrir á hverju kvöldi að geta skriðið í hlýtt ból. Man eftir fréttum af kúrdum sem voru að frjósa í hel í fjöllunum með börnin sín og sendi barnasængina okkar til þeirra í svörtum plastpoka ásamt íslensku ullarteppi. Vona að það hafi gert gagn.
Gott að muna eftir því góða sem maður hefur. Góðan næturstað og mjólkurdropa fyrir morguninn. Góða nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.2.2007 | 10:07
Jarðarbúar sem vita ekki hvernig landið liggur....
Ég lofaði að gefa ykkur eitthvað sætt eftir ferð mína til London í gær. Eftir að hafa skoðað rauðu tveggja hæða strætóana, Tindátana fyrir utan höll drottningar og postulínsveggdiska með mynd af Díönu prinsessu þá fannst mér að ég ætti að gefa ykkur eitthvað sem skipti meira máli. Eitthvað sem fengi ykkur til að hugsa og humma og velta fyrir ykkur. Ég ætla að deila með ykkur minningu frá London. Og engri venjulegri minningu. Hún er súrrealísk og óraunveruleg en dagsönn. Líf mitt er troðfullt af óraunverulegum upplifunum og atburðum sem eru samt eins sannir og ég sit hér og hamra á lapptoppinn minn. Af hverju veit ég ekki. Það er lífsverkefnið mitt að finna út úr þessu öllu.
Fyrir nokkrum árum þegar ég var liststúdent fórum við nemendur til London að sjá sýningu í Tate safninu í London. Fórum að sjá samsýningu Picasso og Matisse. Svarnir óvinir var sagt um þá í lifanda lífi og voru víst alltaf að metast um hvor væri betri málari og máttu varla hvorn annan sjá. Man eftir einu verki Picasso. Auður stóll í herbergi með yfirgefinn pensilinn liggjandi á stólnum, ærandi þögnin og söknuður eftir vini og samherja. Málaði þá mynd eftir dauða Matisse. Held þeir hafi nefninlega elskað hvorn annan svona í alvörunni. Skilið og deilt listinni og á stundum þjáningarfullri leið hennar.
Til að ég myndi nú ekki gleyma þessari skemmtilegu ferð í listasafnið keypti ég tímarit sem selt var niðri í miðasölunni og fjallaði um þessa sýningu. Eftir miklar háfleygar pælingar og viturleg ummæli um öll þessi listaverk ákváðum við nokkrir vinir að fá okkur kaffitár á kaffihúsinu á 7. hæð safnsins og njóta um leið útsýnisins yfir Thames ánna. Vinir mínir úr skólanum voru skondnir og skemmtilegir. Við vorum flest mjög hippalega til fara enda að koma úr listaskólanum í sveitinni og djúpum pælingum Steiners alla daga . Áttum aldrei peninga fyrir neinu og það skipti máli hvað kaffi kostaði. Sátum einmitt við borð saman, ég og kona frá Búkarest sem skellihló alltaf af öllu, og tveir karlar. Annar sérvitur prentari úr sveitunum fyrir norðan og hinn gamall hippi sem hafði miklar áhyggjur á þessu okri á kaffinu í London. Meðan þau voru að skoða kaffilistann og bera saman verð á kaffi víða um evrópu fór ég að fletta tímaritinu sem ég hafði keypt mér. Þar rakst ég á grein sem vakti athygli mína. Hún eiginlega greip mig og hélt mér fastri. Fjallaði um Brasilískan eða belgískan ljósmyndara sem tekur myndir af hinum Landlausu. Fólkinu sem á hvergi heima. Á hvergi land sem það hefur rétt á að ganga á. Hvernig er hægt að vera jarðarbúi og mega ekki ganga og lifa á jörðinni??
Með þessari grein fylgdu magnaðar myndir. Ein var heilsíða af lítilli stúlku. Ekki meira en svona 9 ára gamalli. Standandi ein í rykugri auðn svo skítug og svo sorgmædd og týnd. Með dökkt flókið hár og illa klædd í einhverjar fatatægjur. Og augu. Augu sem heltóku mig og soguðu mig inn í sig. Full af áleitnum spurningum og landleysi. Allt í einu var ég hún. Ég stóð í auðninni og fann þreytuna og vonleysið heltaka mig. Reyndi með þurri tungunni að sleikja rykið af vörunum og fann fyrir litlum steinvölunum sem ég stóð berfætt á. Svo magnvana og aum, en samt á sama tíma svo dugleg að lifa af hvern dag í einskis manns landi. Finna mér pláss þar sem ég væri ekki rekin burtu rétt á meðan ég hvíldi mig fyrir óendanlega gönguna. Vitandi að fætur mínir áttu engan réttinn til að ganga á landinu. Það væri brot gegn lögum og reglum einhverra að leyfa steinvölunum að meiða fætur mína. Jarðarbúi sem mátti ekki vera á jörðinni. Og ég var hún og var búin að vera alla hennar ævi. Hafði enga vitund um að "ég" væri í raun húsmóðir sem ákvað á miðjum aldri að fylgja minningu um að vera listakona og rithöfundur til annars lands og láta á sjálfa sig reyna. Sem mátti stíga niður fæti hvar sem henni þóknaðist og labba berfætt og eiga réttinn til landsins. Jarðarinnar.
Ég flaug, sogaðist. Eins og með krafti sem náði í gegnum tíma og rúm og hávaðinn var á við herþotu á ógnarhraða. Kom utan úr fjarskanum og í gegnum vegginn á kaffihúsinu þar sem safngestir hvíldu lúna fætur og fengu sér kaffisopa. Veggurinn splundraðist og ég lenti á borðum og stólum og fólki og kaffibollum áður en ég magalenti á miðju gólfinu. Lá þarna hreyfingarlaus og þorði ekki að anda. Þorði ekki að opna augun og sjá allt messið í kringum mig. Gat samt ekki alveg skilið hvernig og hvað gerðist. Tók mér óratíma að opna augun og mæta augnaráði hinna sem eflaust vildu skýringar á hvað ég héldi eiginlega að ég væri að gera. Opnaði augun varfærnislega með dúndrandi hjartslátt.
Ég sat í stólnum við kaffiborðið með vinum mínum og þeir voru enn að spá og spekúlera í verðinu á kaffinu. Mikael vinur minn var bara rétt að sleppa orðinu sem hann var að byrja að segja mörgum árum áður. Níu árum áður. Þau höfðu ekkert tekið eftir fjarveru minni og lífið gekk sinn vanagang. Klukkur tifuðu, fólk drakk kaffi og ég var uppfull af tilfinningu um að lífið er ótrúlega skrítið og óútskýranlegt á stundum. En samt alveg hreina satt. Og eftir situr tilfinning og vitund um að við erum öll eitt. Að það sé blekking að halda að aðrir komi okkur ekki við. Ég geymi þetta tímarit og skoða stundum myndina til að minna mig á. Set hana hér með svo þið megið velta fyrir ykkur, hugsa og humma á sunnudegi.
Þessi færsla er endurbirt.
Bloggar | Breytt 23.4.2007 kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 18. febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari