Leita í fréttum mbl.is

Frúin á leigumiðluninni er svo vitur.

Þegar við fórum til hennar í morgun eftir að hafa dáðst að litlu sætu krókusunum sem eru að stinga sér upp hérna í veðurblíðunni sagði hún eftirfarandi.

You guys are mad!

Life is not a rehersal, you better live when you can!

Life is to short to not do what you dream about!lykill

Svo horfði hún á okkur brosandi og lofaði okkur fínu húsi.

Hefði gefið mikið fyrir hvað hún var að hugsa, en eftir svipnum að dæma þá held ég að henni líki bara vel við þessa "crazy icelanders"


5. Febrúar. Fæðingardagur sögu skringilegrar kerlingar.

 kona

Sérvitur og skringileg kona hefur verið á sveimi í kringum mig í nokkrar vikur núna. Hún kynnti sig til sögunnar með því að stökkva út úr málverki sem er málað sterkum rauðum og gulum litum, einn morguninn þegar ég var að drekka morgunkaffið mitt. Í málverkinu er á einum stað turkisblár litur, bara örlítið af honum. Eins og fjarski sem kallar. Akkúrat þaðan kom þessi kerla. Fór að segja mér sögu sína og hefur síðan næstum daglega bankað uppá í kolli mínum og tekið mig með sér í styttri ferðir um hugarheima sína og kynnt mig fyrir vinum sínum og áhugamálum. Hún á eitt mjög sérstakt áhugamál sem tekur mestan tíma hennar eða á ég að segja að hún sé með þráhyggju? Og ég hef samviksusamlega punktað hjá mér þessi sögubrot. Eftir því sem ég kynnist henni betur því skemmtilegri og skringilegri finnst mér hún vera. Og mér finnst hún eiga erindi. Henni liggur margt á hjarta og er ófeimin við að fara ótroðnar slóðir til að finna út úr lífinu og ......þessari áráttu sinni. Reyndar tekur þetta áhugamál hennar hana á furðulega staði og inn í frábær samskipti við alls konar fólk.

Ég get ekki sagt ykkur neitt meira. Nema það að í dag 5. febrúar ætla ég að verða við beiðni þessarar skringilegu vinkonu minnar og byrja á bók um hana. Vildi bara deila þeirri ákvörðun okkar með ykkur af því að þið eruð bloggvinir okkar. Það skríkir í kerlu og hún er kát. Held hún hafi haldið að ég myndi aldrei drattast af stað og raunverulega skrifa söguna hennar. Hún heimtar metsölubók enda áköf með allt sem hún tekur sér fyrir hendur og ég brosi bara útí annað og segi.."við skulum nú bara sjá til hvernig gengur mín kæra". En allavega, við erum spenntar og hver ferð hefst á einu skrefi. Við lítum á þessa tilkynningu sem fyrsta skrefið í áttina að því  að til verði bók.

Knús.


Bloggfærslur 5. febrúar 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband