11.3.2007 | 23:46
Follow your heart!
Fylgdu hjartanu segja sumir...en er raunin kannski sú að við séum með hjartað í eftirdragi og erum þessvegna alveg í köku? Að reyna að draga aumingjans hjartað í einhverja átt sem því ekki sæmir eða hugnast??? Er allt öfugsnúið? Hjartað segir..nei nei nei....og við segjum jú jú jú við verðum.
Og svo kemur togstreitan og svo kemur frútrasjónin og svo endum við uppiskroppa með veikt hjarta sem er úrkular vonar um að við heyrum hvað að var að reyna að segja meðan það var dregið í gegnum auðnina? Aumingja mannshjartað í nútímanum. Enginn er að hlusta. En það reynir að slá sínum síðustu slögum...og vekja okkur upp.
Má ég líka tala????
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.3.2007 | 22:38
Ha???
Er maður ekki alveg utan við sjálfan sig?
Ég er búin að vera samfagna vinum mínum eins og Jóni Steinari og Cesil fyrir frábæra aðsókn á síðurnar þeirra. og að maður tali nú ekki um Gurrí sem er bara að taka sér sæti með vinsælustu bloggurunum....Jón kominn yfir 5000 heimsóknir...Cesil yfir 200 bara í gær og Gurrí á toppnum. Hefur einhvernveginn ekkert hvarflað að mér að kíkja einu sinni á mína stöðu enda skiptir hún ekkert öllu máli meðan ég hef gaman af að vera hér í góðra vina hópi. Kíkti samt áðan og var að spá hvort ég væri kannski að ná 1000 og viti menn. Yfir 6000 heimsóknir bara síðan ég byrjaði fyrir stuttu síðan og töluvert yfir 200 í dag!!!!! Hvað er eiginlega að gerast??? Ég segi bara takk fyrir frábærar viðtökur. Hélt ég væri sérvitrasta mannvera ever og að það myndu líklega mjög fáir nenna deila með mér áhuga mínum og skrifum. Annað er að koma í ljós og það gleður mig svo mikið. Setur í mig kraft....og hugrekki. Þúsund þakkir. Skiptir mig máli eins undarlega það kemur mér mikið á óvart.
Hoppa bara hæð mína. Takk aftur góðu bloggvinir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
11.3.2007 | 21:43
Vertu nú yfir og allt um kring...englatal.
Má tala um engla? Hitti eina nágranna konu mína sem er í kirkju og sækir hana stíft og elur upp sín börn vel eftir boðskapnum. Bauð henni einu sinni inn í vöfflur og rjóma og við áttum áhugavert spjall um heima og geima. Henni fannst sonur hennar frekar óþægur og baldinn, stríðinn og strákalegur eins og 7 ára guttar eiga til að vera. En sagði mér að hún hefði alveg tök á þessum ólátum. Segði stráknum litla að hann myndi örugglega og pottþétt lenda hjá djöflinum og brenna í helvítislogum um alla eilífð léti hann ekki af þessari hegðun. Og hann væri orðinn svo hræddur að hann varla svæfi svefni hinna réttlátu vegna ótta og örvilnunar og fannst það bara gott á hann. Þannig myndi hann læra sína lexíu. Mér fannst þetta algerlega hræðilegt og sagði henni að ég segði bara mínu krökkum frá englum og góðmennsku sem þau ættu stöðugt aðgengi að og að börn væru bara börn að læra á heiminn og upplifa og uppgötva. Konan saup hveljur og horði illilega á mig.
Sagði að ég væri klárlega útsendari djöfulsins sem ætti ekki tilveru rétt í heimi Guðs. Það væri rangt að tala um engla...og manni yrði harðlega refsað fyrir slíkt þar sem englar væru þeirrar gerðar að eiga ekkert samneyti við þetta skítuga og synduga mannfólk. Við værum öll syndug og ljót og yrðum að vinna fyrir himnaríkisvist með ótta og guðshræðslu. Þessi kona hræddi mig ekki.....en það sem hræddi mig var hvernig sumir geta umsnúið öllu því fallegasta yfir í ömurleika, ótta og fáfræði.
Stundum held ég að sum trúarbrögð séu hreinlega ekki af ljósinu komin. Hvernig er hægt að afskræma og hræða fólk svona mikið? Ég er handviss um að englar eru allt um kring og mjög virkir í að aðstoða okkur..og að þeir hafi ekki bara kærleika í miklu magni heldur og mikinn húmor og skilning. Og að þeir eru til í alls konar gervum Ekki bara hvítklæddir með fjaðravængi, Jafnvel getur þú mætt einum á morgun án þess að vita að þar var engill á ferð. Ég held með englum..sama hvað hver segir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.3.2007 | 18:16
Bókin sem enginn veit hver skrifaði
Ég á bók sem enginn veit hver skrifaði. Hún er svo full af fallegri visku og ég glugga reglulega í hana. Bókin heitir Kristur í oss.
Formáli þýðandans.
Bók þessi sem hér kemur fyrir sjónir almenning er þýdd úr ensku og var fyrst gefin út í New York árið 1919. Þýðingin er gjörð í þeirri útgáfu. Í tuttugustu og fimmtu lexíu er þess hins vegar getið að hún hafi verið rituð á englandi 1907. Að öðru leyti en þessu er þýðandanum ókunnugt um uppruna bókarinnar og höfund hennar...en boðskapur sá, sem hún flytur verður að mæla með sér sjálfur.
Set hér með smá kafla fyrir þá sem vilja lesa en þar er komið inn á orkusveiflur og hversu mikilvægt það er að vera í samræmi og í sambandi við kjarna sinn. Núna er einmitt heimurinn að uppgötva þessi sannindi vísindalega.
Fjórða lexia. Bænin.
"Ég skal nú segja þér hvað gerist þegar þú talar út frá guðlegum miðdepli tilveru þinnar. Ósannar sveifluhreyfiingar missa algjörlega lífsmátt sinn fyrir krafti hinnar rólegu sannfæringar sem í þér býr. Þau myrkradýpi eru ekki til að Guð sé þar ekki, og á sama augnabliki og þú sendir út hugsunina kemur þú sambandi á milli þess manns sem er í nauðumstaddur og Guðs.Þessu hefi ég oft verið vottur að. Þú getur ekki gjört þér í hugarlund hvers virði sönn bæn er. Frá oss að sjá, er eins og þér mennirnir séuð eins og börn sem eruð að leika ykkur inni í stórri rafmagnsstöð. Þið vitið ekki hvaða hnappa þið eigið að snerta, né heldur hvaða öfl þið setjið í hreyfingu með því að styðja á þennan hnappinn eða hinn hnappinn. Þið bíðið eftir að fá þekkingu á öflunum umhverfis ykkur en eruð oft eins og blind og heyrnarlaus"
Einhver spurði hvernig á að vera hægt að breyta öllum þessum heimi sem virðist vera hörmungar einar hvert sem litið er og engin takmörk fyrir vonsku og heimsku mannsins. Ég held að svarið liggi einfaldlega í því að taka til í sjálfum sér og laga brestina sem þar eru. Veröldin er einfaldlega að endurspegla okkar innri bresti í sjálfri sér.
Þetta var svona smá sunnudagshugleiðing. Sunnudagar eru einmitt fínir til að spá og spekúlera.
Eigið góðan og blessaðan dag öll sömul.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
11.3.2007 | 00:56
Athugun 7...Velkominn inn og finn að þú átt heima hér...
Hvar ertu mest velkomin?
Vinsamlegast setjið svör, hugleiðingar og tilfinningarannsóknir í athugasemdir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 11. mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari