Leita í fréttum mbl.is

Athugun 8

bodies

Er hægt að fara úr líkamanum?

Hefur þú upplifað slíkt?

Vinsamlegast skrásetjið sögur, upplýsingar eða athuganir á viðfangsefninu í athugasemdir.


Hvíld og jafnvægi....vita hvað skiptir máli.

lauf í hvíld

Hvíldardagur. Vaknaði lúin og fór til London að sjá litlu ömmustelpuna. Hún núna brosir og hlær, spriklar og setur í brýrnar, blæs búbblur og rekur upp kvart þegar við á. Magnaðar þessar litlu mannverur. Kom svo heim um hádegi og var svo þreytt að ég lagðist til hvílu og vaknaði ekki aftur fyrr en undir kvöld. Það er einhver flensupadda búin að vera á sveimi hérna megin..sem dregur burtu alla orku og gefur hausverk og hósta. Maður þarf að passa sig að gera ekki of mikið af einu og  of lítið af öðru. Hafa hlutina í jafnvægi. Það er galdurinn. Þarf að huga betur af uppáhaldinu mínu sem eru heimapressaðir ávaxta og grænmetissafar, tandurhreint vatn og ferkst salat og túnfiskur. Þetta er minn matur. En vegna þess hvað það er búið að vera mikið að gera á öllum vígstöðvum undanfarið og mikið stress og streita gleymdi ég öllum einföldum grundvallaratriðunum. Borða vel, sofa og hvíla mig, stunda útiveru og hitta vini mína. Hugleiða og lesa. Sakna bókanna minna sem eru búnar að vera í kössum allt of lengi. Og tónlistin mín líka. Maður verður nefninlega að næra líkamann og andann jafnt. Ætla að hvíla úr mér þreytuna og flensupödduna og fara svo í litlu lífrænu verslunina í næsta þorpi í fyrramálið og ná mér í hrúgur af velræktuðum ávöxtum og grænmeti, spriklandi vatn.....sparkling water... á grænum glerflöskum og brakandi salat. Lesa svo smá og hitta góða vini.

ávextir  bækur  babúskur

Um það er lífið. Að hafa jafnvægi og vita hversu mikið maður þarf að hverju og hvenær allt er rétt og gott. Finna taktinn sinn.

Mæla rétt.

balance


Bloggfærslur 13. mars 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband