21.3.2007 | 19:55
Sófakartafla og orkubúst handan við hornið.
Jæja..nú er maður bara sófakartafla
Það er að hellast í mig flensa eða eitthvað..er búin að vera að lullast áfram undanfarið en núna bara gefst ég upp og leggst. Er með frunsu og kvef, hálsbólgu, magaverk og beinverk.
Og framsóknarverk. Lýsir sér með svima og tilfinningu fyrir að vera ekki alveg með sjálfum sér. Og vera ókurteis í tali. Stundum held ég að þeir sem eru að taka "framfararskref í nafni þjóðarinnar" séu með tærnar afturábak og hælana fram. Það er sem ég segi...pólitíkin er heilsuspillandi og nú heiti ég sjálfri mér að hugsa ekki um hana meir og vera þannig með fyrirbyggjandi geðheilsuvarnir. Er samt spennt að sjá listann hjá Íslandshreyfingunni sem á að koma fram á morgun. Skrítið..hélt ég væri löngu búin að skutla byltingarsinnanum í mér eitthvert útí hafsauga en svo hangir hann bara í hárinu á mér. Verð að fara að komast í almennilega klippingu.
í gær hitti ég mann sem ég er búin að heyra um í 7 ár. Við erum búin að vera á sama punktinum læra lifa og starfa í sama litla þorpinu allan þennan tíma og ég er alltaf að hitta fólk sem er að segja mér frá honum og að við ættum nú að hittast og vinir mínir þekkja hann og ókunnugt fólk sem ég rekst á hingað og þangað segir mér frá honum.
En það var ekki fyrr en í gær að við hittumst og getiði hvað? Hann býr hérna handan við hornið svona tveggja mínútna gangur á milli. Er íslenskur Reikimeistari sem hefur lifað hér og starfað í yfir 15 ár og kennt hundruðum manna reiki. Best ég hringi í hann á morgun og athugi hvort hann geti ekki gefið mér spá orkubúst og heilun. Hann er voða skemmtilegur og minnir mig á Leo Sayer söngvarann góðkunna.
Já Heimurinn er stundum lítill og stundum stór.
Jæja...nú tek ég mér hvíldartíma og safna kröftum fyrir næstu verkefni og hlakka til að stíga tvíefld á fætur aftur og taka þetta líf með trompi.
Þetta er örugglega bara sólarskortur að hrjá mig eftir langan og dimman vetur. California hljómar lokkandi núna fyrir kellu sem tekur sig einstaklega vel út í hælaskóm. Þeir eru frábærir til að sparka fast í rassg...á pólitíkusum sem....Úpps.!!!! Muna eftir að panta mér klippingu sem fyrst og taka magnýl við þessum framsóknarverk.
Verð að fara núna. Gera nokkrar hugleiðsluæfingar og muna hvað ég vel og hverju ég hafna og af hverju.
Bæ elskurnar..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
21.3.2007 | 15:21
Stjórnmálamenn og frambjóðendur...Ákall!!!
Það er kallað hátt eftir svari frá ykkur á blogginu hjá Dúu Dásamlegu um úrbætur í geðheilbrigðismálum og stefnu ykkar í félagsmálum. Þar er orðið laust ef þið hafið eitthvað fram að færa. Ég bíð spennt eftir viðbrögðum ykkar og vona að aðrir fylgist líka vel með hvernig þið bregðist við.
Takk fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.3.2007 | 11:19
Mömmu og ömmudagar...og fyrsta kvitt á jörðu.
Fékk tvö umslög í póstinum í morgun. Annað þeirra bleikt og hitt ljósgult. Verið alveg róleg, þetta er ekki um pólitík. í Ljósgula umslaginu var kort með mynd af konu að slappa af og eftirfarandi texti.
MUM
How lovely it is
to do nothing at all
an then sit back
and relax
Innan í kortinu stóð svo.......Elsku mamma mín. Happy mothers day. Kær kveðja Þín Karen
P.s sorry hvað kortið kemur seint. Alice greyið..litla ömmustelpan sem er tveggja mánaða...reyndi að minna mig á það en ég skildi bara ekkert hvað hún meinti þegar hún hjalaði til mín "guaodi" sem auðvitað þýðir "Sendu kortið"!!!
Svo opnaði ég bleika umslagið og þar var annað kort og á því stóð......
For my wonderful Grandma
a Grandma so special
in every way
deserves a special
Mother´s day! Innan í því korti stóð svo...
Elsku Amma mín. Til hamingju með mömmudaginn!
Sorry að kortið kemur seint, sagði mömmu að senda það fyrr en hún skildi mig ekki.
With lots of love...elska þig mest amma. Litlir kossar og lítl knús
Og svo kemur það sem bræddi algerlega í mér hjartað. Lítil undirskrift Alicar Þórhildar. Hennar fyrstu skrif...óljós lína með litlum boga..hennar fyrsta undirskrift sem mannvera á þessari jörð. Ahhhhhh.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 21. mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari