Leita í fréttum mbl.is

Vindasamt í kerlingarhaus

vindasamt

Vindasamur dagur. Allar góðar fyrirætlanir fuku út í veður og vind.

Nú er sko fokið í flest skjól segir veðurfræðingurinn og leitar skjóls.

Það fauk bara í mig að heyra manninn láta þetta út úr sér.

Veit maðurinn ekki að á eftir logninu kemur stormurinn. Eða var það á eftir stormi kemur logn?

Hvað veit kona sem er með hárið út um allt eftir rok?

Æ þetta er bara stormur í vatnsglasi segir forsætisráðherrann þegar það hvín í kerlu.

Þannig lauk þeirri stormasömu sambúð stríðs og friðar.

Að leysa vind í lognmollu er ekki kurteisi.

Sunnangolan strauk henni um kinn og kyssti burtu brakandi brosið.

 Þessi færsla er vindhögg!

Lognið er best þegar allt er kyrrt og hljótt.

nægtir

USS!!!


Fyndið flækjulíf

sooo funny

Ha ha ha...ég hef bara ekkert að gera akkúrat núna nema hlægja að allri þessari vitleysu.

Og ég hlæ hátt og dátt.

Halla mér aftur svo það strekkist smá á mallanum og brjóstin leka aðeins til hliðanna og leita auðvitað suður af því að þau eru alvöru og hlæ að því hvað mér finnst gott að geta hlegið innilega í stað þess að láta hluti og sumt fólk pirra mig. Er reyndar svo gæfusöm að þessa dagana er bara yndislega skemmtilegt og gott fólk í kringum mig og svo heppilega vill til að þetta eru fjölskyldumeðlimirnir mínir...maður getur ekki valið sér familís bara vini...svo mér finnst ég rosalega heppin með mitt fólk. Og líka vini mína. Og ekki undanskil ég bloggvini mína frá þessari kátínu.

Já nú get ég glaðst og skelllihlegið. Svo dásamlega glöð með nýju hvítu sportsokkana mína. Mér er alltaf svo kalt á hnjánum en ekki lengur!

Það er líka lítill pjakkur í heimsókn sem fInnst allt skemmtilegt og allt sniðugt.  Bara ef það hreyfist og það heyrist eitthvað hljóð með þá ljómar litli kútur og gefur himneskt tannlaust bros yfir heiminn.

Já það er gott að hlægja stundum og lengja lífið og leikinn sem það er. Því þetta er bara leikur...kannski bara leikrit þar sem við erum aðalleikarinn sem þarf ekki að læra neina rullu heldur hefur fullt skáldaleyfi til að skálda jafnóðum hvernig hann vill hafa sitt leikrit.

 Hvort það á að vera mikið og magnað drama, tragedía og táradalur eða gamanleikur troðfullur af skopi og skondnum atburðum. Kannski bara allt af þessu í mismiklum hlutföllum.

Lífið er kannski bara ein furðuleg flækja sem er svo okkar að leysa úr með tíð, tíma, þroska og visku.

ruglingur 

 En samt held ég að það sé mikilvægast að muna að hafa bara gaman í sínum bekk og hlægja dátt þegar flækjan verður hvað mest. Hlægja hátt og taka hreinlega bakföll af hlátri yfir þessu bráðfyndna lífi sem er að drepa flesta úr alvöruleikanum. Sem eru búnir að gleyma að þeir sjálfir eru höfundurinn. Og að það má endurskrifa, stroka út og betrumbæta allt..eða ekkert.

Tjallið fellur.

Og nú má klappa því nú vita allir sem hér voru að þetta var bara enn eitt leikritið og höfundurinn situr uppi í höfðinu á sjálfum sér og brosir kumpánlega til ljósameistarans. Þeir vita fyrir hverju er klappað.

klappa fyrir því

Takk fyrir komuna kæru meðleikendur.


Bloggfærslur 3. apríl 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband