Leita í fréttum mbl.is

Fólkapáskaegg.....

utangátta

Já ţađ er svolítiđ furđulegt páskaeggiđ mitt í ár...

ég er enn ađ velta fyrir mér hvort ţađ sé nammi eđa málsháttur ţarna einhversstađar eđa hvort ţetta páskaegg sé bara um eitthvađ allt annađ.

Líklega ekki til ađ borđa svo mikiđ er víst.

Hmmm...?

Klór í haus.


Páskahćnur og ofursnöggir hanar

hćnsnahópur 

Í gćr fórum viđ í yndislega göngu í góđa veđrinu og röltum framhjá bóndabćnum ţar sem hamingjusamar hćnur hoppa og skoppa út um öll tún og rogginn hani reygir sig og galar yfir púdduhópinn. Ţćr eru gestrisnar og glađar hćnurnar ţegar ţćr fá heimsókn og ţyrpast ađ girđingunni og gagga hver í kapp viđ ađra. Ţćr sem eru lengra í burtu engjast um í forvitni og koma á harđahlaupum gaggandi og kjagandi og ćtla sér ekki ađ missa af neinu. Mér finnnst vođa gaman ađ heilsa upp á ţćr. Ţegar ţađ var kominn álitlegur hópur fyrir framan girđinguna og gaggandi púddum tók haninn sig til og rigsađi stórstígur  og rogginn í miđjan hópinn. Skyndilega tróđst hann upp á eina hćnuna og stóđ keikur á bakinu á henni!!!!!

hani dađrar

....Innri feministinn í mér varđ bara hneykslađur yfir svona framkomu. "Hva...hvernig dettur hanabjánanum ađ standa bara á bakinu á hćnugreyinu"??? spurđi ég í heilagri skírdagsvandlćtingu.

Borgardaman náttla alveg grćn fyrir ţví hvernig páskaeggin og páskaungarnir verđa til....og gerđi sér enga grein fyrir ađ ţetta var alvöru hanadráttur sem ţarna fór fram á ţremur komma sjö sekúndum heilum. Svo vippađi haninn sér af og spígsporađi rogginn um svćđiđ og hćnan virtist bara sćl međ sitt. Og komin međ páskaegg í framleiđslu á skírdegi.

Borgardama lćrđi sem sagt ýmislegt um náttúruna á göngu sinni um náttúruna..hehe.

páskaungar

Mér fannst ţetta samt frekar snaggaraleg skemmtun fyrir hćnuna verđ ég ađ segja. Takk Guđ fyrir ađ hafa ekki veriđ púdda í ţessu lífi. Vćri hreint ekkert sćl međ ţađ held ég. En svona hugsa ekki dömur á löngum degi og ekki má láta sér stökkva hér bros fyrr en um miđjan dag á morgun.

Gleđilega páska!

 

 

 


Bloggfćrslur 6. apríl 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband