Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir meira en 500 hundruð heimsóknir í dag!!!

Algert met..ég þori ekki að fara að sofa svo ég sjái endanlega niðurstöðu heimsóknametsins fyrir daginn. Held samt ennþá að þetta sé eitthvert plott. Sé ekki alveg svona cool.

Vegna þess að ég veit alveg að svona sérvitringur eins og ég næ ekki athygli fjöldans. Skrifa hvorki um pólitík eða kynferðislega draumóra vinkvenna sem aldrei nokkunr tímann trúa mér fyrir neinum afrekum á þeim sviðum. Og ef ég ætti að blogga um mín afrek þar á vitleysingahetjudraumum...myndu flestir bara sofna og hrjóta. Hef sjaldnast haft þá getu eða hugaróra til að lenda í svo klikkuðum aðstæðum. Já svo yndislega boring er ég nú. Læt ekki tannlækna né tantrajógasnillinga spila mig uppí einhverja vitleysu. Svo gasalega jarðbundin og raunsæ sem ég er..eins og lesa má af bloggi mínu. En eingetin börn gæti ég átt með einkennilegum himnaverum sem er miklu dagfarsprúðara en hitt.

5f320970

Kona bara spyr sig eftir einn af þessum skritnu dögum..hvað gæti svo sem ekki gerst??

Þýðir að magi sem stendur út fyrir mæld umfangsmót gallabuxna þýði eitthvað annað en að það sé tími kominn á súkkulaði og egglos? Um miðjan mánuðinn er ekki um neitt annað að ræða. Og svei þeim sem halda eitthvað annað. Unaðslegt súkkulaðitímabil er hafið!!!Jummí!!

Njótið lífsins konur..og menn. Súkkulaðið gerir þetta allt bærilegra.

10186449

Hvílík byrjun á draumi í dós???

Sjáið það oftar en 500 sinnum á þessari síðu.

Er á meðan er!!!Joyful

Ég er samt svo algerlega á því að þetta sé eitthver rugl. Ég meina hver nennir að spá í svona hluti eins og hér koma fram meðan framsókn og sjálfstæðismenn eru á fullu að rústa veröldinni?

Er ekki alveg ljóst að ég er svoooo ópólitisk??? Og mun ekki kjosa neitt!

Held bara með

10133137

nýjum sjónarhornum.

Hæna sem enn á eftir að komast upp í turninn og njóta úsýnisins?

 


Skrítnir draumar og villandi tölur. Kosningatölur???

Það er ekkert eins og það á að vera í dag. Meira að segja moggabloggsteljararnir eru  í rugli. Ég er með hundruði heimsókna sem og aðrar vinkonur mínar ...við erum samt flestar á sama róli svona dagsdaglega. Núna er allt á blússi og ég veit ekki hvort mér líkar. Þetta er eins og að vera partur af leikritinu. Vera partur af einhverri samkeppni sem maður skilur ekki. Við hvað er verið að keppa og hvar??? Þjónar mér ekkert að tölur rjúka upp en engin ærin ástæða til. Mér finnst bara fínt að hafa mína daglegu bloggvini hér og spjalla við þá í gegnum kommentin...engin ný komment frá neinum nýjum en hundruðir heimsókna og enginn segir neitt eða kommentar???

Nei ég er ekki að kaupa þetta. Gengur ekki upp!!!! Ef maður tæki svona flug allt í einu sæjust þess einhver merki einhversstaðar. En það er ekki svo. Gæti alveg hlýjað egóinu undir vængjum....en samt svo augljóst að einhver stjórnar einhversstaðar.

10117629

Passar ekki.

Vissi það bara þegar ég vaknaði í morgun að þessi dagur væri ekki eins og hann sýndist. Dreymdi að Ómar Ragnarsson væri að keyra um á stórum svörtum forstjórajeppa um göturnar og horfa niður á almúgann. Íklæddur svörtu frakka og svörtum hönskum. Merkilegur með sig og nennti ekki að tala við fólk.  Keyrði framhjá litlum verlsunum þar sem hálsmen voru til sölu eftir mig, sem ég hefði hannað sem voru tveir fiskar spyrrtir saman og neðan úr sporðunum hengju glitrandi þræðir. Og í draumnum fannst mér fiskarnir tákna kristsvitund að mæta annarri vitund hér á jörð og þræðirnir væru merki þess að það myndi breiðast út. Og ég þurfti svo að komast á ákveðinn stað en enginn vildi taka mig þangað. Svo ég lagði af stað ein en eftir langa göngu áttaði mig loks á áttinni sem ég þurfti að fara. Sömu átt og Ómar og hans bíll. Í átt að einhverri birtu bak við fjöllin.

Ummm..skrítið.

10021007

Hvaða form talar til okkar þarna??? Hver er leiðin?

Kannski á morgun verður þetta allt skýrt en í dag er það í loftinu.

10149831

Hvað snýr fram og hvað snýr aftur? Hvað er eiginlega hvað?

Horfðu í spegilinn og mundu ásjónu þess sem segir satt.

Núna eru mikilvægir tímar..við verðum að sjá hvað er hvað.

Hlustaðu og skoðaðu.

10149832

Þessi draumur segir að ekki er alllt sem sýnist og þú verðir að vera vakandi og sjá.

Hvað???

Bara rosalega skrítinn dagur eitthvað.

Og metaðsókn að blogginu.

Hmmmm.

 


Ekki dagur

í dag er ekki föstudagur

Í dag ætla ég ekki að slóra við vinnuna

Ekki að gefast upp þó jólaskapið láti á sér standa og standi fyrir jólakortagerðinni

Ekki að hugsa um að það er frekar svalt úti i dag

Ekki að trúa mínum eigin augum um bilaðan teljara á moggablogginu..hehe

Ekki að umbera lengur bullandi klikkað heilbrigðiskerfi www.gjonsson.blog.is

Ekki að blogga um talandi tréð sem ég fann í morgun

ekki að halda eitt augnblik að þetta sé ekki besti dagur lífsins.10093576

Og það er ekki bannað að setja inn athugasemdir nema þær séu

ekki skemmtilegar eða jákvæðar á þessum ekki degi.

Ekki brosa!!!!

 


Bloggfærslur 3. maí 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband