28.8.2007 | 21:41
Til að reyna að gleyma.......
....RISAKÖNGULÓNNI sem hljóp hérna yfir gólfið áðan og passaði ekki einu sinni í glasið sem eiginmannshetjan skutlaði yfir hana og fór með alveg út í enda á okkar garði og henti yfir í garð nágrannans ætla ég að rifja upp gleði dagsins áður en ég fer að sofa.
Eins og þið vitið fékk ég mér göngu með nokkrum skópörum um bæinn. Það skemmtilega var að fólk virtist ekkert kippa sér upp við þessa samferðamenn mína og létu..a.m.k þegar ég sá til...eins og það væri eðlilegasti hlutur að verða vitni að eftirfarandi.
Skópör að hanga í trjám
Virða fyrir sér list í gamalli steinkirkju
Fara með hljóða bæn og kveikja á kerti fyrir hrjáða veröld
Og hafa gaman með Jacob sem var þarna á göngu með ömmu sinni.
Ganga um á meðal rósa
og finna höfgan ilminn.
Enduðum svo á kaffihúsinu eftir viðburðaríkan dag og þjóninn kom með kappúsínó handa öllum meðan stígvélin lásu matseðilinn.
Höfðum svo sellufund í garðinum. Það rigndi smá en það var allt í lagi.
Þetta var góður dagur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
28.8.2007 | 13:56
Ég fékk hugljómun!!
Hvernig gat ég ekki hafa fattað þetta fyrr???
Þetta er svarið við öllum mínum vandamálum. Auðvitað.
Magnað hvað maður getur verið blindur lengi og svo er svarið augljósara en sjálf sólin. Mig vantar umboðsmann!! Svona manneskju sem er snillingur að finna markað og tækifæri og gera samninga og fá borgað. Lætur hlutina gerast. Hringir og segir.."Katrín Snæhólm....ég er búin að finna leið til að koma þessu og hinu og öllu bara á sinn stað. Þá er hún auðvitað að tala um allar mínar hugmyndir og verkefni og tillögur og tilraunir og málverk, myndir sögur og ljóð...kennslu og kunnáttu. Og ég sit bara heima og vinn og geri allt sem ég elska að gera..skapa og skapa og veit að það er séð um hitt. Öll hálffæddu börnin mín fá heimili og tilgang í veröldinni.
Maður getur ekki verið góður í öllu.
Hér með auglýsi ég eftir umboðsmanni..ath að orðið umboðsmaður á líka við um konur. Umboðs konu. Helst brjálæðingi með innsæi, kraft og kunnáttu á öllu þarna úti. Heiðarlegum og mátulega harðsvíruðum. Áhugasamir geta sent mér e mail.
Ahhh...hvað ég hlakka til að hafa umboðsmann.
Næst fæ ég svo busku sem eldar og þvær og fer með krakkana í skólann og endurskoðanda. Það er alveg nauðsynlegt að hafa góðan endurskoðanda. Ég vissi að þetta yrði góður dagur þegar ég vaknaði í morgun. Bara fann það á mér. Hvílik blessun að verða fyrir svona stórkostlegri hugljómun.
Amen!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
28.8.2007 | 12:26
Að opna sér nýja leið.....
Nú er kona komin heim eftir ævintýralega ferð í bæinn. Meðferðis hafði ég nokkur pör af skóm í pokum merktum Harrods þeirri fínu og flottu verslun í London. Hefði mátt halda að ég hefði verið að gera stórinnkaup á merkjafatnaði fyrir morð fjár. Svo var þó ekki. Ég og skópörin fórum í gamla kaþólska kirkju og skoðuðum listaverk og kveiktum á kerti fyrir heiminn, klifruðum í hundrað ára gömlum trjám og gengum um á meðal ilmandi rósa í kirkjugarðinum. Við hittum líka barn sem lék með okkur og skríkti af kátínu yfir öllum þessum bráðskemmtilegu skóm sem voru til í allt. Lamdi meira að segja frú Mary Poppins í tánna með trjágrein.Hún meiddi sig ekkert enda gerð úr vönduðu og fínu skóleðri frá Ítalíu.
Seinnipartinn ætlum við svo að bregða okkur aftur af bæ og kíkja á kaffihús og eiga menningarlegar samræður og þaðan förum við hugsanlega í skógargöngu í ljósaskiptunum. Hvað við gerum svo með allt þetta mun bara koma í ljós
Er þetta ekki yndislega fallegt orðtæki í málinu..að koma í ljós!!!
Mitt uppáhald þessa dagana.
Komdu í ljós!!!!
Þegar ein leiðin lokast ekki örvænta.
Það hefur opnast leið fyrir nýtt útsýni og aðra leið í staðinn.
Það kemur allt í ljós að lokum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 28. ágúst 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
gurrihar
-
ibbasig
-
zordis
-
ipanama
-
hugarfluga
-
poppoli
-
skessa
-
vilborg-e
-
gudnyanna
-
vikingurkr
-
sarcasticbastard
-
landsveit
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
svalaj
-
halkatla
-
matthildurh
-
jahernamig
-
katlaa
-
svavs
-
kiddirokk
-
ludvik
-
heiddal
-
jonaa
-
arh
-
palmig
-
leifurl
-
mediumlight
-
bjarkitryggva
-
810
-
haukurn
-
amason
-
heringi
-
emmgje
-
hk
-
zoa
-
steingerdur
-
hronnsig
-
holi
-
steina
-
alla
-
malacai
-
almaogfreyja
-
kruttina
-
arikuld
-
arnaringvarsson
-
agbjarn
-
asgerdurjona
-
gammon
-
baldvinj
-
barafridriksdottir
-
bardurorn
-
kaffi
-
storyteller
-
birgitta
-
bjarnihardar
-
lubbiklettaskald
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
tilfinningar
-
brandarar
-
diesel
-
draumur
-
einarborgari
-
einari
-
gustichef
-
elinarnar
-
zoti
-
happy-dog
-
evabenz
-
utlit
-
finni
-
stjornarskrain
-
lucas
-
gudmundurhelgi
-
gudnym
-
glostrup
-
zeriaph
-
gullvagninn
-
silfri
-
gylfigisla
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
latur
-
hlf
-
helgatho
-
hehau
-
drum
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
ringarinn
-
ingahel
-
ingasteinajoh
-
jara
-
astromix
-
kreppan
-
jensgud
-
josira
-
jogamagg
-
jax
-
islandsfengur
-
jonsnae
-
nonniblogg
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kjartanis
-
leifur
-
kreppualki
-
kreppukallinn
-
kerla
-
lauola
-
larahanna
-
liljabolla
-
astroblog
-
markusth
-
manisvans
-
methusalem
-
misskilningur
-
neo
-
oktober
-
olijon
-
olofannajohanns
-
svarthamar
-
skari60
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
ragjo
-
salka
-
pensillinn
-
sjos
-
meyjan
-
amman
-
sigrunsigur
-
siggi-hrellir
-
sigurgeirorri
-
sylviam
-
slembra
-
athena
-
must
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
tinnaeik
-
nordurljos1
-
kreppuvaktin
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
eggmann
-
what
-
vigga
-
perlan
-
zeitgeistonair
-
tsakalis
-
steinibriem
-
thorsteinnhelgi
-
tothetop
-
icekeiko
-
thorsaari