Leita í fréttum mbl.is

Jæja ég er farin út að hjóla í þorpinu og heyri níuhundruð sögur um hjólatúr.

outside

Og hlakka ti að sjá hvar þessi hjólatúr endar. Alveg klár  í slaginn með hatt og hálsslæðu og í bláum munstróttum kjól. Framhjá trjánum mínum burt burt.....hvar endar þessi stígur eiginlega?

3

Já í litla bænum þar sem allir vita allt um alla. Sitja við árbakkann og horfa á gulu húsin og velta fyrir sér lífi íbúanna. Rabba svo saman um sögurnar sem verða til í kolli þeirra. Svo sem ekkert annað við að vera í svona hljóðu þorpi. Getgátur geta verið spennandi gátur þó þær eigi ekki við rök að styðjast. Hver þarf á rökum að halda í veröld sem tifar án  nokkurra sýnilegra raka?? Skáldskapurinn ræður ríkjum og öllum er sama um það.  Bara ef þær kitla eitthvað sem er að sofna.

2

Svartur köttur situr um bráð sína í hjátrúarfullum stellingum. Ekki láta hann sleppa og hlaupa í veg fyrir þig. Það boðar eigi gott í þessu litla þorpi. Sögur og sagnir verða að fá að lifa meðal manna sem hafa lítið við að vera. Kötturinn sá svarti hefur sín níu líf og nærist vel..en sögurnar hafa níuhundruð líf og umbreyta raunveruleika allra í hinu þögla þorpi. Það nærir íbúana líka vel.

ROW1002

Píanótónlistin lyftir andanum og minnir alla á að hlusta vel og njóta þess sem er.

Hvílast, anda og leyfa hinu að vera. Þurfa samt aðeins að kíkja á glugga til að vera vissir um að allir séu að lifa sínum níu lífum í takt.  Við hinar níuhundruð sögur svo allt sé rétt.

Segðu mér sögu úr þínu Þorpi.

 


Bloggfærslur 14. september 2007

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband