Leita í fréttum mbl.is

Bloggedí blogg....Moggedí Mogg.

Sko þegar maður fær loksins vinnu þá duga ekkert minna en svona 4 vinnur fyrir kvinnur.

Byrja daginn á því að hoppa og skoppa um Vesturbæinn með Nóa syni mínum og koma Mogganum og hundrað og sextíu sólarhringum heim til vesturbæinga áður en þeir vakna.  Það er eiginlega ekki hægt að vera meiri Moggabloggari en þetta finnst ykkur það nokkuð. Kona sem vaknar klukkan 5 um NÓTT og úr höndum hennar fjúka Moggar og bloggar svo í þokkabót á sama miðli hlýtur bara að vera aðal.

 Þegar þessum morgunverkum er lokið þá fer ég og sel auglýsingar.. Ertu að byggja. viltu breyta þjóðfélaginu..eða langar þig til að heyra hvað öllum finnst um allt???

Þá er útvarp Saga málið!!

.Á mánudögum er ég auðvitað með ímyndunarveikina og ímynda mér að þegar ég tala þá heyri allir í mér. Útvarp Saga aftur í aðalhlutverki sko....Og ekki nægir mér að fylla á fólki eyrun heldur ætla ég að fylla augun á fólki fyrir vestan á Reykhólum á sumardaginn fyrsta með málverkum mínum á eins dags listsýningu og segja skemmtilegar sögur og alvöru ævintýri.

vatnskonaskúlptúrkonaLoftið

Svo fauk á fjörur mínar "verkefni" og svo aðstaða til að stunda svolitla vinnu með fólki...og svo og svo og svo... já ég er eiginlega steinhætt að telja enda löngu komin yfir 4.

Ætla að leggjast með mínar frjálsu tær uppí loft og hvíla mig áður en ég fer að sofa svo ég verði falleg á morgun. Maður má ekki krumpast af öllu þessu orkuflæði og muna að hafa gæði í lífi sínu. Gæðin in my life now eru þau að það er allt fullt af svo frábæru fólki í kringum mig að ég gæti  næstum trúað þeirri dellu að það sé "of gott til að vera satt".

Það er ekkert of gott til að vera satt!!!

007_FXIW1_ITS_WONDERFULL_LIFE~It-s-a-Wonderful-Life-Posters

 

 


Bloggfærslur 17. apríl 2008

Höfundur

Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Maddama kerling fröken frú Katrín Snæhólm. Hef áhuga á öllu milli himins og jarðar og telst þá hvoru tveggja með. Himinn og jörð.

 

kbaldursdottir@gmail.com

 

 

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...xoqlinc
  • ...x-o-
  • ...katrin_mynd
  • ...peru_3
  • ...peru_2
  • ...peru_786202
  • ...peru
  • ...usturv_llur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband