4.2.2007 | 14:07
Talað til trúða á steintorgum nútímans af höfðingja frá Seattle 1854
Að skaða jörðina er að ausa skapara hennar svívirðingum.
Þetta er magnaður lestur á orðum índíánahöfðinga frá Seattle 1854 og á kannski sjaldnar betur við en einmitt núna.
"Hvert fótmál jarðar er voru fólki heilagt. Hver tindrandi barrnál, hvert sandkorn á ströndinni, hver daggarperla hina myrku skóga, hvert rjóður og hvert skorkvikindi er heilagt í minningum og reynslu míns fólks. Hinn rammi safi er stígur upp boli trjánna geymir minningar hins rauða manns. Dauðir gleyma hvítu mennirnir því landi sem fæddi þá af sér, farnir á gönguferð milli stjarnanna. En vér erum partur jarðar og jörðin er partur af oss. Ilmberandi blómin eru systur vorar, hjörturinn, hesturinn, hinn mikli örn, allir þessir eru bræður vorir. Gilklungrin, vessar jarðar í enginu, búkvarmi hestsins og....maðurinn, allir heyra þeir sömu fjölskyldunni til. Hinn hvíti maður möndlar svo móður sína jörðina og bróður hennar himininn, sem hún væri eitthvað sem má plægja, rupla eða selja, eins og kvikfénað eða glerperlur sem ganga kaupum og sölum. Lítt seðjandi græðgi hans blóðmjólkar jörðina og skilur hana eftir í flakandi sárum blásandi foksanda. Ég veit ekki. Vorir vegir greinast frá yðar vegum. Borgir yðar...slíkar sýnir gera oss súrt í augum, hinum rauðu mönnum. En vera má það sé vegna þess að hinn rauði maður sé villimaður og sé skilnings vant. Í borgum hins hvíta manns finnst hvergi hljóðlegt afdrep. Ekkert hlé, enginn griðastaður þar sem maður getur hlustað eftir laufunum þegar þau sprengja af sér vetrarhulstrin, þegar þau breiða úr sér á vorin, eða eftir skrjáfandi vængjablaki skordýranna. En kannski það sé vegna þess að ég sé villimaður og mig skorti skilning? Skröltið aðeins meiðir eyru manns. Og hvað er lengur til að lifa fyrir þegar maðurinn nemur ekki óttusöng fuglanna eða kappræður froskanna umhverfis tjarnirnar? Ég er rauður maður og skil ekki. Indíáninn kýs fremur þann blíða þyt vindsins, er hann fer höndum um andlit tjarnarinnar og sjálfan ilm golunnar sem stígur hrein upp eftir hádegisbað skúrarinnar eða þrungin angan furunnar. Að skaða jörðina er að ausa skapara hennar svívirðingum. Hinn hvíti maður..einnig hann...mun líða undir lok, kannski skjótar en nokkur kynþáttur annar. Haldið áfram að ata náttból yðar sorpi og fyrr en nokkurn uggir munuð þér kafna í yðar eigin saur".
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2013
- Júní 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Myndaalbúm
Bloggvinir
- gurrihar
- ibbasig
- zordis
- ipanama
- hugarfluga
- poppoli
- skessa
- vilborg-e
- gudnyanna
- vikingurkr
- sarcasticbastard
- landsveit
- asthildurcesil
- jenfo
- svalaj
- halkatla
- matthildurh
- jahernamig
- katlaa
- svavs
- kiddirokk
- ludvik
- heiddal
- jonaa
- arh
- palmig
- leifurl
- mediumlight
- bjarkitryggva
- 810
- haukurn
- amason
- heringi
- emmgje
- hk
- zoa
- steingerdur
- hronnsig
- holi
- steina
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- kruttina
- arikuld
- arnaringvarsson
- agbjarn
- asgerdurjona
- gammon
- baldvinj
- barafridriksdottir
- bardurorn
- kaffi
- storyteller
- birgitta
- bjarnihardar
- lubbiklettaskald
- salkaforlag
- gattin
- skordalsbrynja
- tilfinningar
- brandarar
- diesel
- draumur
- einarborgari
- einari
- gustichef
- elinarnar
- zoti
- happy-dog
- evabenz
- utlit
- finni
- stjornarskrain
- lucas
- gudmundurhelgi
- gudnym
- glostrup
- zeriaph
- gullvagninn
- silfri
- gylfigisla
- handtoskuserian
- iador
- heidistrand
- latur
- hlf
- helgatho
- hehau
- drum
- himmalingur
- hinrikthor
- ringarinn
- ingahel
- ingasteinajoh
- jara
- astromix
- kreppan
- jensgud
- josira
- jogamagg
- jax
- islandsfengur
- jonsnae
- nonniblogg
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kjartanis
- leifur
- kreppualki
- kreppukallinn
- kerla
- lauola
- larahanna
- liljabolla
- astroblog
- markusth
- manisvans
- methusalem
- misskilningur
- neo
- oktober
- olijon
- olofannajohanns
- svarthamar
- skari60
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- ragjo
- salka
- pensillinn
- sjos
- meyjan
- amman
- sigrunsigur
- siggi-hrellir
- sigurgeirorri
- sylviam
- slembra
- athena
- must
- sunnadora
- svatli
- saethorhelgi
- tinnaeik
- nordurljos1
- kreppuvaktin
- valgerdurhalldorsdottir
- vertu
- eggmann
- what
- vigga
- perlan
- zeitgeistonair
- tsakalis
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- tothetop
- icekeiko
- thorsaari
Athugasemdir
Takk fyrir þessa viðbót Guðmundur. Já þú hefur örugglega verið índíánahöfðingi í fyrra lífi.
Maður gerir sér svo grein fyrir hvað við erum orðin fyrrt og fjarlæg náttúrunni þegar maður les svona. Það eru til milljónir manna sem aldrei hafa raunverulega komist í tengsl við náttúruna og lifa bara sínu lífi á steypuklumpum í hávaða, látum og algerlega ótengdu umhverfi. Sorglegt.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.2.2007 kl. 16:49
Hvernig væri að flytja bara heim á fróna búin að finna rétta húsið lítið hvítt með trjám í garðinum sjáðu bara
http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=193682
Bestu kveðjur æur heitasta plássinu HVERAGERÐI
Hulda (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 21:29
Þetta var frábært að lesa og mikill sannleikur í þessu fólgin.
Svava frá Strandbergi , 4.2.2007 kl. 23:12
Ég flyt ekki í Hveragerði þó það séu tré í garðinum nema vera örugg með vinnu í Eden. Eru ekki aparnir þar örugglega ennþá?
Sætt samt af þér að hugsa til okkar og þetta er cool hús.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.2.2007 kl. 23:36
Þetta las ég ungur piltur í tímariti sálarrannsóknarfélagsins: Ganglera.
Big Chief Seattle sendi þetta bréf til þáverandi Bandaríkjaforseta en hefur greinilega talað fyrir daufum eyrum. Hvað er líka "villimaður" að vilja upp á dekk hjá ofurkyni voru með ævafornan boðskap, sem ekki eru í nokkrum tengslum við hugmyndafræði okkar um auð völd og yfirráð? Hroki okkar og blinda er gengdarlaus og við munum bíta úr nálinni með það fljótlega.
Þessi vitri maður skildi að við og náttúran erum eitt. Af sama efni og alheimsandinn sjálfur...Guð eins og sumir kalla hann... allt um lykjandi og í öllu.
Nú hefur skammtafræðin, sýnt fram á að þegar við skyggnumst dýpra í smæstu öreindir kemur í ljós að enginn massi er til heldur aðeins tifandi orka. Tíðni þessarar orku ræður þéttleika hluta og gerir þá áþreifanlega. Annars erum við raunar aðeins tifandi tóm. Allt í öllu...ekkert í neinu.
Jón Steinar Ragnarsson, 5.2.2007 kl. 01:06
Er ekki allheimurinn að mestu leyti gerður úr hulduefni.
Svava frá Strandbergi , 5.2.2007 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.